Vikan

Ataaseq assigiiaat ilaat

Vikan - 16.09.1965, Qupperneq 12

Vikan - 16.09.1965, Qupperneq 12
Kuppakstur Smásaga efftir Alberfto Moravia Það er ekki hægt að hafa tvær ástríður samtímis. Ánægja mín yfir bíln- um, sem ég hafði loksins eignazt kom mér um tima til að gleyma ást minni á Ines, stúlkunni sem ég ætlaði að trúlofast. Meira þurfti ekki til, að Tullio sem var góður vinur minn, komst upp á milli okkar og reyndi að ræna henni frá mér. Æi-iá, það er bezt að tala sem minnst um þessa' vini. En ef maður neyðist til að tala um þá, verður maður að viðurkenna, að vináttan er góð, svo lengi sem ekki er kona með í spilinu. Við getum tekið dæmi úr hænsnagarðinum! Tveir hanar gogga friðsamlega saman, gala saman og sofa saman. En komi hæna inn til þeirra, lítil snjóhvit hæna með rauðan kamb, þá er friðurinn búinn, hanarnir riúka saman og gogga augun hvor úr öðrum. Þvílíkar hugsanir! Hvað sem maður gerir, hvort maður er á skemmti- göngu eða við vinnuna, og hvort sera maður er einn eða í hóp, sækja þessar hugsanir á mann, eitthvað algerlega óskilianlegt. Einmitt vegna þess að maður skilur þetta ekki, fer maður að velta því fyrir sér, og hætt- ir aldrei að velta því fyrir sér. Maður skilur ekki hversvegna hann elsk- ar. Þannig var það með okkur Ines, þangað til að ég keypti bílinn; þá fékk ég ofurást á honum. Það er mjög erfitt að skiþa suma hluti. Ines er lifandi vera, hold og blóð, en bíllinn er úr málmi. Ines hafði fallegt kringlu- leitt andlit, svört, mild augu og hlæjandi munn, en nefið á bílnum var með stuðara, sem líktist einna helzt tönnum í varðhundi. Þó að Ines væri lítil, var hún mjúklega vaxin, en bíllinn var eins og aðrir bílar, eiginlega ekk- ert annað en stór kassi; og samt gleymdi ég stundum Ines, vegna bíls- ins. Ef ég hefði bara látið mér nægia að hugsa um bílinn: Það versta var að ég talaði um hann líka, og aðrir tóku eftir því, meira en mig grunaði. Tullio sagði einu sinni við mig, þegar Ines var viðstödd: — Heyrðu Gigi, þú hugsar ekki um annað en bílinn. Veiztu hvað Ines, ef að ég væri í þínum sporum, væri ég afbrýðisöm út í bílinn . . . í speglinum sá ég aö hönd Tullios nálgaöist hönd stúlkunnar minnar, og einmitt þegar að ég tók kröppu beygjuna strauk hann handlegg hennar. Svo kallaði hann til mín: Heyröu Gigi, farðu fram úr þessum bíl þarna, eftir hverju ertu aö bíða?

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.