Vikan

Eksemplar

Vikan - 16.09.1965, Side 17

Vikan - 16.09.1965, Side 17
<5 í Nauthaga. 0 A3 neðan: Armann, Gunnar, Ingólfur og Pétur. Pétur við komuna til Reykjavíkur. l) O Pétur, Sverrir og Ármann í tjaldstað. þarna fjarri öllum öðrum manna- byggðum. Daginn eftir fórum við um Brúaröræfi, þar sem gróð- ur og auðnir skiptast ó. Klukk- an sex næsta morgun komum við að Kverkó, sem við höfð- um óttazt allmjög og okkur létti stórlega, þegar við komumst að raun um, að hún rétt fyllti í kvið og varð okkur þess vegna enginn Þróndur í Götu. En því miður var ekki það sama að segja um Kreppu. Við höfðum fró upphafi gert róð fyrir því, að hún yrði okkur ekki auðveld viðfangs, enda varð það orð að sönnu. Áin fellur mikið í gljúfrum, og er því erfið yfir- ferðar. Við rannsökuðum óna vel, riðum með henni hótt ó þriðja tíma, og okkur fór nú ekki að lítast meir en svo ó blik- una, því að okkur sýndist óin algjörlega ófær fyrir menn og klyfjaða hesta. Þó varð það okk- ur til happs, að við komum auga ó göngubrú úr plönkum ó bakk- anum og þótt hún væri síður en svo dvergsmíði, þá var eina ráð- ið fyrir okkur að setja hana upp á ána og til þess þurfti ná- kvæmlega fimm manna handtök. Nú leystum við allar klyfjarnar af hestunum og bárum allt drasl- ið yfir brúna, en við vorum al- veg lafhræddir, því að það hrikti í plönkunum og grátt og illilegt fljótið beljaði undir fótum okkar. Þegar við höfðum borið allt draslið yfir, var það eftir að koma hrossunum yfir ána. Ég var sendur yfir til þess að taka á móti þeim, en hinir ráku vesa- lings skepnurnar út í ólgandi vatnsflauminn. Ég hef alltaf staðið í þeirri sælu trú, að ég sé frár á fæti, en í þetta skipti missti ég alla hestana frá mér og þeir voru þotnir eitthvað út í buskann, áður en ég vissi mitt rjúkandi ráð, blessaðar skepn- urnar hristust alveg og skulfu, og voru alveg óðar eftir baðið. Þetta fór samt allt vel, því að þeir Gunnar og Ármann náðu þeim svo aftur við Lindará. Um kvöldð komum við í Hvanna- lindir, og sáum að þar höfðu einhverjir komið á undan okkur og höfðu reist þar tjöld sín. Okk- ur langaði nú satt að segja, að gera vart við okkur og fá skemmtilegan félagsskap, en við vorum svo ósköp kurtesir og prúðir, að við héldum aftur af okkur, tjölduðum, borðuðum, drukkum og vorum glaðir. Þeg- ar líða tók á kvöldið, gerði leið- indaveður og rigningu, og við bollalögðum, hvort við ættum að Ferðin jafnaðist á við geimskot Þeir ferðuðust á hestum nærri 800 km., frá Austurlandi og vestur um öll öræfi. VIÐTAL VIÐ PÉTUR JÓNSSON A EGILSSTÖÐUM TEXTI: GUDRÚN EGILSON. MYNDIR: SVERRIR SCHV. THORSTEINSSON. VIKAN 37. tbl. Yi

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.