Vikan - 16.09.1965, Side 33
sitt tjáningarform, engu síður en
sitt klæðasnið og reiðtygjagerð.
En auðgert er að heyra enn í
gegnum sum orðanna þó karl-
mennsku og þann drengskap, sem
að baki býr. Það sem hér ræðir
um, eru samtök til varnar helg-
um réttindum og sæmd. Og þar
er enginn undanskilinn, hvorki
ríkur né fátækur. Það er ætlan
þessara manna að gera aðför að
hverjum ofbeldismanni, og skilj-
ast ekki við fyrr en sá hefur fulla
sæmd, er fyrir miska varð, fé-
tjóni eða vansæmd. Þeir gera ráð
fyrir að hefndin kunni að verða
meiri á eftirförinni en tilverkn-
aðurinn, en þá skulu allir bjarg-
álna bændur að jöfnu halda uppi
bótum, en þeir sem minna eiga
gjaldi eftir mati hreppstjóra.
Engan skal óhlutgengan gera
sakir fátæktar, og engan undan-
skilja þeirri réttarvernd, sem
samtökin megna að veita. Þetta
eru harla merkileg ákvæði og
bera vott um drenglund og fé-
lagsþroska, sem þýðingarlaust er
að leita — dæma um í samþykkt-
um og gjörningum bænda í ná-
lægum löndum á þessari uppi-
vöðsluöld lénsvaldsins 1496. Eng-
ir bændur í Norðurálfu hefðu
verið þess umkomnir að standa
að og semja plagg á borð við
Áshildarmýrarsamþykkt á þeim
tíma, einfaldlega vegna þess að
íslendingar byggja hér á sögu-
legri erfð og réttarerfð, sem þeir
voru einir um og átti sér rætur
í grundvallaðri, háþroskaðri
þjóðmenningu. Illa berum vér þá
heitið söguþjóð, ef oss þykir eigi
vert að minnast slíkra atburða.
Eigi er oss kunnugt af heim-
ildum, að fleiri hafi orðið fundir
að Áshildarmýri, til framkvæmda
samþykktinni, en vel geta þeir
hafa átt sér stað allt um það.
Beinar frásagnir um aðgerðir á
grundvelli hennar eru eigi held-
ur fyrir hendi, en eru engin sönn-
un þess, að til þeirra hafi aldrei
komið. Það er raunar nærri ó-
hugsandi, að svo einarðleg og
djarfmannleg samtök, sem þeirra
Árnesinga 1496, hafi hvergi lát-
ið til sín taka og engin áhrif
haft. Þau hljóta að hafa verið
allrækilega undirbúin og fylkt
mönnum saman til innbyrðis
trúnaðar og áræðis. Það eru t.d.
ekki nema sex ár liðin frá því,
er Áshildarmýrarsamþykkt er
gerð, þangað til Torfi hinn ríki
Jónsson í Klofa ræðst að Lénharði
fógeta að Hrauni í Ölfusi 1502
og tekur hann af lífi. En Lén-
harður var útlendur umboðsmað-
ur hirðstjóra og hafði farið hið
hroðalegasta tneð marga menn og
misbeitt valdi sínu freklega. 37
árum síðar má annar illræmdur
fógeti, Diðrik frá Minden, bíta í
grasið í Skálholti er staðarráðs-
maður, séra Jón Héðinsson, læt-
ur vega hann í ránsferð. Vera
má, að á milli þessara atburða
sé ekkert beint samband og sízt
svo að rakið verði. En annað er
alveg víst. Hvorugt þetta land-
hreinsunarverk hefði unnið ver-
ið, ef sú einurð og karlmennska,
sem lýsir sér í Áshildarmýrar-
samþykkt, hefði ekki búið í
brjóstum landsmanna. Og sam-
tök slík, sem þau, er stofnuð voru
að Áshildarmýri gátu ekki ann-
að en glætt hana og eflt. Sam-
þykktin sjálf átti og sinn þátt í
því að varðveita með þjóðinni
þann anda niður í gegnum ald-
irnar, viðhalda skilningi hennar
á fornum þjóðréttindum og lög-
um, búa í haginn fyrir voryrkju-
menn síðari kynslóða. Vér höfum
því fyllstu ástæðu til þess að
minnast með þakklæti og lotn-
ingu mannanna, sem komu sam-
an að Áshildarmýri 1496. Þeir
voru einna fyrstir í fylkingu
þeirra trúu varðmanna, sem sáu
um það niður í gegnum aldirnar
að réttur vor dó aldrei í vitund
sjálfra vor, því stöndum vér nú
þar sem vér stöndum.
Þetta er sá boðskapur sem hinu
stutta og einfalda leikriti mínu
var ætlað að flytja. Og sú vísa
verður ekki of oft kveðin, jafn-
vel þó að betur mætti gjarnan
kveða, en nú hefur tekizt til.
Sigurður Einarsson
í Holti.
Kappakstur
Framhald af bls. 13.
Ég fór að aka fram úr einum
bílnum eftir annan, llkast því að ég
væri að þræða perlur á band. Þeg-
ar að ég flautaði ákaft, viku flest-
ir bílar til hliðar, vel uppalið fólk
sem tók tillit til umferðalaganna,
en svo voru aðrir, sem ekki vildu
lofa mér fram úr undir neinum
kringumstæðum. Ég tók eftir einu:
það voru skrautlegustu bílarnir sem
voru kraftmestir, stóru lúxusbílarn-
ir, sem ekið var af fólki sem kærði
sig kollótt þótt ekið væri fram úr
þeim. Það vissi sem var að ef það
vildi það viðhafa gat það ekið
hraðar en nokkur annar.
Það voru smábílarnir, sem voru
alveg óþolandi, fullir af konum og
börnum, með pabba við stýrið.
Þessir vesalingar höfðu líklega eytt
allri vikunni í stól, og vildu nú sýna
konum og börnum hvað pabbi var
duglegur og kaldur, og alltaf þeg-
ar að ég ætlaði fram úr þeim, juku
þeir hraðann, í stað þess að hægja
á sér og víkja til hliðar.
Ég hefði getað myrt þá, ekki sízt
vegna þess hvað þeir voru sauð-
þráir og rólegir, og óku þessum
litlu bílum, sem þeir hafa eflaust
keypt upp á afborgun, með ofsa-
hraða. Fjölskyldan horfði á mig út
Skólatöskur - Skjalatöskur
fyrir námsfólk á öllum aldri. Sérstaklega skemmtilegar töskur fyrir börn. Úr meira en
50 tegundum að velja. Verðið er mjög hagkvæmt, t. d. kosta plasttöskur frá kr. 112.00
og leðurtöskur frá kr. 184,00,
í mjög miklu úrvali, úr ekta leðri. Einnig mjög falleg plast-pennaveski.
Höfum aldrei fyrr haft eins mikið og gott úrval
af skólavörum og núna
Pappírs- og ritfangaverzlun
Hafnarstræti 18 - Laugavegi 84 - Laugavegi 176 (með nægilegum bílastæðum).
VIKAN 37. tbl. /JQ