Vikan - 25.11.1965, Síða 59
— Jahá, sagði Craig. — En ég
held, að það hafi ekki verið ó-
heiðarlegt.
— Hvað kom fyrir barnið?
— Dó, svaraði Craig. — Heila-
himnubólga. Hún vildi ekki annað.
Eg svo sem ekki heldur. Samkomu-
lagið — það hefði ekki verið gott
fyrir barn. Svo flæktist ég í þessu
máli. — Eg vona að hún deyi ekki,
Hak. Eg hafði engan rétt til að
gera henni þetta.
— Eg vona, að hvorugt ykkar
deyi.
— Ætli við höfum ekki bæði
fengið tækifæri, sagði Craig.
IV kafli.
Nefndin um lausn Alsírvandans
hafði aðalstöðvar í Nizza, í stóru
steinhúsi, sem hafði skrifstofur olíu-
félags á aðra hlið en fjölhæða
bílageymslu á hina. Óhrjáleg og
yfirlætislaus bygging, nema hvað
gluggarnir voru úr styrktu gleri,
tomma á þykkt og varðir með stál-
grindum að innan; aðaldyrnar úr
stáli, spónlagðar með viði. Bygg-
ingin var skotheld fyrir öllu minna
en skriðdreka og allir, sem unnu
þarna, voru fyrrverandi hermenn,
þjálfaðir í stríðinu í Indókína og
Alsír, en trúir og tryggir þeirri hug-
mynd, að Alsír væri franskt að
eilífu. Inn á milli skrifstofanna voru
leikfimissalir, skotæfingasalur, full-
kominn útbúnaður fyrir nútíma
njósnatækni, mikrofilmur, skýrzlu-
safn, stuttbylgjusendir, ókjör af
upplýsingum um Arabalöndin, um
leiðtoga Araba, vini málstaðarins,
menn, sem myndu vilja berjast,
menn, sem myndu vilja gefa pen-
inga, menn, sem myndu vilja gefa
líf sitt. Einnig listi yfir óvini. Þá,
sem nóg var að ógna, þá, sem
hægt var að múta; og að lokum
þá, sem varð að drepa. Það var
ein önnur deild, Spurningadeildin,
en hún var í húsi herdeildarfor-
ingjans, og sérfræðingarnir, sem
unnu þar, komu mjög sjaldan til
aðalstöðvanna.
Þrem dögum eftir að Charlie
Green dó, kom maður nokkur að
byggingunni, og var þegar í stað
hleypt inn. Skrifstofan, sem hann
fór til, var á efstu hæð, þar sem
erfiðast var að koma fyrir sprengj-
um eða kúlum. A dyrunum stóð:
St. Briac herdeildarforingi, stofn-
andi og forseti. Fyrir utan dyrnar
var maður með vélbyssu, en hin-
um megin við þær var hávaxinn,
grannur maður i olívugrænum ein-
kennisbúningi með axlaskúfa her-
deildarforingja, jafnvel þótt franski
herinn hefði fyrir löngu veitt hon-
um lausn. Hann bar með sér hungr-
aða orku og föl augu ofstækis-
mannsins,1 og hann leit á gestinn
með hættulegri rósemi þess manns,
sem er svo þröngsýnn, að það nálg-
ast brjálsemi. Við fætur hans sat
varðhundur og horfði stórum aug-
um á hinn nýkomna, beið eftir
einu orði, einni hreyfingu, til að
drepa. St. Briac kippti lítillega í
eyra hundsins og hann var kyrr.
Framhald í næsta blaði.
cLeita, ®
FATNABUR
ALLAN
'ARSINS
HRING
cLeLta,
9
ÖLLUM
helztu
VERZLTJNUAV
landsins
SÖLUUMBOÐ:
Júlíus Pf Guðjónsson, Heildverzlun, Skúlagötu 26, Rvík. Sími 11740 — 13591.
SÖLUSTAÐIR:
London, Rvík, Tízkan, Rvík, Verzl. Huld, Akranesi, Kf. Borgfirðinga, Borgarnesi,
Einar & Kristján, ísafirði, Jóh. Blöndal, Sauðárkróki, Markaðurinn, Akureyri,
Fönn, Neskaupstað, Ve'rzl. Sigurbj. Ólafsdóttur, Vestmannaeyjum, Edda, Keflavík,
Verzl. Fons, Keflavík, Nonni & Bubbi, Sandgerði.