Vikan - 13.01.1966, Blaðsíða 6
Nútíma kona notar
Yardley fegrunarvörur
Yardley fegrunarvörur eru fram-
leiddar fyrir yður samkvæmt
nýiustu tækni og vísindum, eftir
margra óra rannsóknir og til-
raunir í rannsóknarstofum Yardl-
ey ( London og New York.
Yardley veit að þess er vænst
af yður, sem nútíma konu, að
þér lítið sem bezt út, án tillits
til hvar þér eruð eða hvernig
yður liður.
Þess vegna býður Yardley yður
aðeins hin réttu andlitsvötn og
krem, hvernig svo sem húð yðar
er og Yardley tízkulitirnir (
vatalitum, augnskuggum og
make up, sem fara yður bezt.
BIÐJIÐ UM YARDLEY í NÝJUSTU
PAKKNINGUNUM.
Innflytjandi GLÓBUS h.f.
GERMANSKIR PENNAVINIR.
Kæri Póstur!
Gætir þú sagt mér hvernig ég
get eignazt þýzkan pennavin,
helzt strák, en það má vera
stelpa. Ég hef nefnilega áhuga á
að læra þýzku og mér er sagt
að það gefi góðan árangur að
skrifast á við einhvern. Kannski
þú getir vísað mér á eitthvað
blað, sem hefur með svona
pennavinaskriftir að gera, ef þú
vildir gjöra svo vel.
Þakkir skaltu hafa. Gleðileg jól!
Kópavogsbúi.
Við vitum ekki um neitt penna-
vinablað þýzkt, erum satt að
segja lítið inni í þýzkum ungl-
ingablöðum. En þú gætir reynt
að skrifa til DER STERN, 2
Hamburg 1, Pressehaus, Deutsch-
land, og biðja þá að koma bréfi
þínu til einhvers pennavinablaðs,
ef þeir geta ekkert fyrir þig gert
sjálfir.
DÓTTIR HÉRAÐSLÆKNISINS OG
HJÚKRUNARMAÐURINN.
Kæra Vika!
Við skrifum þér vegna veð-
máls sem okkur langar til að fá
skorið úr um.
Kom út bók, fyrir nokkrum ár-
um, sem hét „Dóttir héraðslækn-
isins og hjúkrunarmaðurinn" eða
var þetta bara grín.
Með fyrirfram þökk.
Þrjár.
Allt tómt grín og vitleysa! Svona
„frumlegur" hefur enginn verið
ennþá.
STÓRGETRAUN VIKUNNAR.
Kæra Vika!
Þakka þér kærlega fyrir leik-
fangagetraunina. Það var bæði
gaman að taka þátt í henni og
svo var líka falleg brúðan sem
ég fékk. Ef þú kemur með svona
getraun aftur ætla ég að taka
þátt í henni þá líka ...
... Vikan á skilið heiður fyrir
jafn viðamikla verðlaunagetraun
og þessa. Bömin hafa áhuga fyr-
ir þessu, og vinningslíkurnar eru
gífurlegar...
... Mér fannst bara hálsfestin,
sem hún dóttir mín fékk, varla
nógu merkilegur gripur, en dóttir
vinkonu minnar fékk ansi fallegt
baðsett. Það er skemmtilegt leik-
fang...
... Raunar ætti ég að þegja yfir
því, að ég, kominn undir fertugt,
skyldi freistast til að taka þátt
í getrauninni, en ég á engan
strák, bara fimm stelpur, og
langaði töluvert til að fá svona
rafknúna bílabraut. Ég veit ekki
hvað konan og dæturnar hefðu
sagt, ef ég hefði arkað út í búð
og keypt mér hana, svo ég ákvað
að treysta gæfunni. En hún brást
mér hrapalega; þess í stað fékk
ég uppeldisleikfang ætlaðtveggja
eða þriggja ára börnum. Það var,
eins og þið vitið, skífa með ýms-
um myndum og tveir vírendar,
og þegar ég gat fundið út, hvaða
tvær myndir áttu saman og snert
þær með vírendunum, kom ljós
í enda kassans. Og trú mér til,
ég hef haft mikið gaman af þessu
leikfangi, og jólagestir mínir hafa
allir spreytt sig á því af mikilli
ánægju, svo aldrei þessu vant
hef ég fengið að ráða krossgát-
urnar mínar sjálfur um jólin —
þær voru alveg látnar í friði.
Hjartans þakkir — ég verð með
næst...
... Ég vissi alltaf að ég myndi
vinna. Hann pabbi var búinn að
segja mér að það gæti vel verið,
og það var líka satt...
FREKNUR Á SUNDI.
Kæri Póstur!
Ég hef séð að margir leita til
þín með vandamál sín og ég ætla
að leita til þín nú og vonast eftir
góðu svari.
Ég fer oft í sundlaugina en mér
þykir mjög leiðinlegt af því að ég
er með mikið af freknum á and-
liti og höndum.
Veist þú um einhvem áburð
eða eitthvað sem læknar svona.
Bless.
Freknur eru ótvírætt hreysti-
merki og ekkert við þeim að
gera. Farðu bara í sundlaugina
með freknurnar þínar, og láttu
þér ekki detta í hug að „Iækna“
þær.
LOÐHAUSAR OG KNATTSPYRNA.
Háttvirta blað!
f 52. tbl. 1965, segið þið frá
þekktum Bítil-hljómsveitarmanni
sem einnig er kunnur á knatt-
spyrnuvellinum. Þar segir að
blað eitt hér í bæ hafi skrifað
g VIKAN 2. tbl.