Vikan


Vikan - 13.01.1966, Blaðsíða 41

Vikan - 13.01.1966, Blaðsíða 41
liti er sá, að hinn kurteisi lætur skoðun sína eða athugasemd í Ijós á friðsamlegan hátt og ef kostur er, án þess að rýra virðingu þess, sem við er rætt, en hinn ókurteisi tekur ekki minnsta tillit til þeirra, sem við er rætt, grípur fram í fyrir þeim, ræðst á þá með háreysti og mis- býður sómatilfinningu þeirra á hlið- stæðan hátt. Hinn fyrrnefndi aflar sér vinsælda og heldur rétti sínum vegna þess, að hann hefur tamið sér fagra, friðsæla og þar með farsæla umgengnishætti við annað fólk, en hinn síðari aflar sér óvin- sælda og verður venjulegast lítið ágengt í málflutningi sínum vegna sinna Ijótu siða. Kurteisin, sem ekki kostar peninga, er því venjulegast einn af hagnýtari eiginleikum ein- staklingsins í lífi og starfi, því hún kallar fram það bezta í fari fólks í samskiptum þess hvert við annað. Sölumaður dauðans Framhald af bls. 19. að og hélt svo áfram, og bíllinn ók fallega, var fallega ekið. Hana, kvikindið þitt, öskraði Grierson í huganum. Svona! Hann renndi sér skáhallt á öllum fjórum fyrir beygju, sló af án þess að snún- ingum fækkaði nokkuð sem hét, þrýsti síðan fætinum á bensíngjöf- ina aftur. Craig, sem hafði í nokkr- ar mfnútur ekki mælt orð af vör- um, hallaði sér fram og lagði eyr- un við gangi vélarinnar og sneri sér síðan að Grierson. — Það þarf að hreinsa kertin hjá þér, sagði hann. Eitt andartak varð Grierson svo reiður, að hann hafði nærri því ek- ið út af. Svo slakaði hann aðeins á og hætti á að líta til hægri. Craig var að hlægja að honum. Grierson þrýsti fætinum niður aft- ur svo bfllinn tók kipp áfram, síð- an slakaði hann aftur á og tók að hlægja. — Allt í lagi, sagði hann. — Ég gefst upp. Ég býst við að þú akir Le Mans líka. — Nei, sagði 'Craig. — Ég vildi óska að ég gæti það. Ég átti Jag- uar „E", en ég skipti honum fyrir Bristol. Konan mfn — hann hikaði — hún vildi hafa þak. Þú varst kom- inn á dálaglega ferð þarna. — Hann fer ekki hærra en í hundrað og tíu, sagði Grierson. — A hans aldri er ekki sanngjarnt að biðja um meira. Hann sló meira af. — Jæja, nú skulum við rifja þetta upp. Ég er sá, sem auglýs- ingadeildin sendi niður eftir, vegna þess að þeir halda að ég geti kannske fundið þarna eitthvað við mitt hæfi. Þú ert gamall kunningi minn, sem fylgir í sporin mín. A þann hátt verður það ég, sem fylgzt verður með. — Ágætt, sagði Craig. — Að hugsa sér. Gamli McLaren. Kominn í sjónvarpið. Rödd hans var stríðn- isleg, og Grierson leit á hann aft- ur. Craig var ekki reiðilegur; það var tvíræður glettnissvipur á and- liti hans, vottur af vorkunnsemi. — Hvað heitirðu? spurði Grier- son. — John Reynolds. — Starf? — Framkvæmdastj., sagði Craig. — Hvað heitir auglýsingafirmað? — Jansen, Caldecott and True, sagði Craig. — Rétt, sagði Grierson. — Það er partý hjá McLaren, þegar öllu er lokið. Við getum farið líka ef þú vilt. — Við sjáum til, sagði Craig. — Láttu mig vita, sagði Grier- son. — Segðu mér nú eitthvað frá fyrirtækinu þínu. — Express Television Company var til húsa í stórri byggingu með forhlið úr gleri og reis upp af grasflötum, gosbrunnum og blóm- um. Forðazt hafði verið að eyði- leggja Hertfordshirelandslagið, til að mýkja harðneskjulegt glerandlit- ið, og í vornóttinni glóði glerið af yl margra Ijósa. Þarna var ein- kennisklæddur dyravörður og dyrn- ar voru stórkostlegar, flekklausar glerplötur, sem opnuðust af sjálfs- dáðun. Lyfta, sem angaði af nellik- um, og sjónvarpsstarfsmaður, sem var svo önnum kafinn og svo ham- ingjusamur yfir því að fá að þjóna sjónvarpstækninni, að mennirnir tveir skömmuðust sín fyrir að viður- kenna, að þeir vissu ekkert um sjónvarp. Framhald ( næsta blaði. Heklað sjal Framhald af bls. 47. garninu um nálina og farið í næstu loftl. og 3. loftl. í næsta boga og heklið þær saman í eina langa I. Fyllið síðan alla bogana á þennan hátt og skiljið eftir 3 loftl. á báðum endum. Hekl. 1 umf. með fastah. yfir löngu stuðlana. Hekl. nú lausa loftlykkjubekkinn. Byrjð í 1. upp- fitjunarumf. * heklið 8 loftl. og festið niður með 1 fastal. ( næstu stuðlaumferð. * Endurtakið frá 3 sinnum. Heklið þá aftur 8 loftl. og festið niður í fyrstu löngu lykkj- una er fyllir loftlykkjubogana * * B. S. Parket og Jaspelin gólfdúkur - nýir litir. Einnig linoleum parket-gólfflísar í viðarlíkingu. Eiynist nýja vini! Pennavinir frá 100 löndum óska eftir bréfaskriftum viS yður. Upplýsingar á- samt 500 myndum verða send til yðar án endurgjalds. CORRESPONOENCE CLUB HERMES Berlin 11, Box 17, Germany 8 loftl., 1 fastal. ( 4. I. * * Endurt. frá * * til * * yfir allar löngu lykkjurnar og endið á sama hátt og þegar byrjað var. Heklið þá aðra umf. á sama hátt og fitjið upp 8 loftl. og festið með 1 fastal. í miðjan loftlykkjuboga fyrri umferðar. Hekl. ( allt 7 umf. á þennan hátt nema hvað næstu 2 umf. eru með 10 loftl. og þarnæstu 3 umf. með 12 I. Hnýtið að lokum 20 sm. langt kögur í seinustu loftlykkjubogana og hafið um 20 þræði í hvern hnút. Einnig má hekla þetta sjal á þann hátt að hekla allar fasta- heklumferðir með silkigarni og aðra hverja loftlykkjuumferð í lausa kantinum að neðan. Sé sjalið hekl- að á þennan hátt fer vel að hnýta kögrið með báðum garntegundun- um. VIKAN 2. tbl.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.