Vikan


Vikan - 13.01.1966, Blaðsíða 19

Vikan - 13.01.1966, Blaðsíða 19
orrustunni viÖ fylgdarsveina Lish- mans. Þiálfarinn stundi og lá kyrr. Craig sneri sér að Loomis, og Grier- son minntist fyrirmæla sinna og bjó sin undir stökk. — Nokkuð fleira? spurði Craig. Grierson stökk á hann og greip um handlegg hans með hörkutaki. Craig tók heljarstökk áfram, hreif Grier- son með sér, sem enn hélt um úln- lið Craigs. Hann lenti undir og Craig vatt sér til hliðar og sló með hand- ariaðrinum á upphandlegg Grier- sons. Sársaukinn breiddist út um vöðvana og hann losaði takið. Craig sieit sig lausan og tók með öðrum handlegg um háls Grier- son, þrýsti fastar og fastar að bark- anum. Grierson barðist við að ná andanum; augun virtust þrútna út í tóftunum og hann sparkaði frá sér með báðum fótum. — Hvern á ég að afgreiða næst? hreytti Craig út úr sér í áttina til Loomis. — Þig? — Nei, nei, ég hef séð nóg, sagði Loomis. — En ég varð að sjá þetta sjálfur. Þú hlýtur að skilja það. Leyfðu nú Grierson greyinu að anda svolítið. Craig reis á fætur og dró Grier- son með sér. Stundarkorn varð hann að halda honum uppi, en að lokum gat Grierson andað, án þess að honum fyndist hver andardrátt- ur þrengja sér í gegnum vindpípu, sem væri full af stálull. — Þú ert í afturför, Grierson, sagði Loomis. Svo sneri hann sér að þjálfurunum. — Þið eruð allir í afturför. Annar þeirra sagði ekkert; hann var ennþá meðvitundarlaus. Hinn sagði með morð í augunum: — Já, sir. Loomis sló Craig á bakið. — Komdu, sagði hann. — Ég held að þú hafir unnið fyrir sjúss. Lengra inni f kjallaranum var lítill, (burðarmikill bar. Loomis fór inn fyrir barborðið og blandaði þrjá hálfpotta af svörtu flaueli, Guinnies beint úr tunnunni og kampavín úr flösku. Craig leit með tortryggnisaugum [ krúsina sína. — Hvað er [ þessu? spurði hann. — Ástardrykkur? — Gjörðu svo vel, sagði Loomis. — Ég er fullkomlega ánægður, og ég er viss um, að það' er Grierson líka. Ekki rétt, Grierson? Grierson kvakaði já, og lét sval- andi drykkinn gæla við hálsinn. — Ég hef áhyggjur, sjáðu til, sagði Loomis. — Ég á að hafa áhyggjur. Þessvegna reyni ég hlut- ina fyrst. Eg hef aldrei reynt neinn á borð við þig áður. Ég hélt, að ég myndi aldrei fá tækifæri til þess. — Ég held, að það sé ekki ann- ar eins og ég, sagði Craig. — Sé svo, vorkenni ég honum. Sjáðu nú til. Ég græddi mikið af peningum. Hundrað þúsund pund. Loomis bKstr- aði. — En þú aflar þér ekki pen- inga á þennan hátt og lifir svo hamingjusamur alla tíð síðan. Að minnsta kosti ekki ég. Craig drakk meira svart flauel, hikaði og hélt svo áfram: — Ég vissi fyrir tveim- ur árum, að ég var á listanum hjá þeim. Ég vissi, að ég átti að deyja. Þessvegna hélt ég áfram að læra og þjálfa júdó. Þú getur ekki f- myndað þér, hvað það var erfitt. Ég varð að aka tuttugu mNur til að geta æft mig — ég þorði ekki einu sinni að láta tala um þetta, þar sem ég bjó. Það var of mikil vísbending. Svo var það byssan. Eina leiðin til að verða flink skytta, er að æfa, og æfa meira, og það var heldur ekki auðvelt. Hann and- varpaði. — Ég græddi peninga, rétt er það, og ég naut þess. Ég hafði ekki miklar áhyggjur af því, hvað- an þeir komu. Nei, þetta var ekki rétt orðað. Ég hafði engar áhyggj- ur. En það færði mér enga ham- ingju. Ég hafði ekki áhyggjur af því heldur. Ekki fyrr en núna. Ég valdi mína leið og græddi mitt fé, og svo ekki meira með það. Ég bjó mig aðeins undir átökin. Ég hélt ekki, að það myndi verða Alice og þessi vesalings bróðurræfill hennar, sem myndu verða fyrir þv[. Hann leit ofan í glasið sitt. — Ég vissi ekki, að kampavín gæti gert mann svona angurværan, sagði hann. — Það er bjórinn, sagði Loomis. — Hvað ætlarðu að gera núna? — Hitta stúlkuna mfna, sagði Craig. — Ef þér er sama. — Af hverju ætti mér ekki að vera sama? spurði Loomis. — Við höfum allir náttúru hér. Nokkuð fleira? — Mig langar að hitta mann, sem heitir McLaren, sagði Craig, og þegar Loomis spurði hversvegna, reyndi hann að útskýra: — Ég kynntist honum á Sikiley, sagði hann, og sagði þeim hvað hafði gerzt. — Allt ( lagi, þetta er góð saga, en ég skil ekki af hverju þig lang- ar að hitta hann, sagði Loomis. — Maður er alltaf að heyra um ýmislegt, sem breytir Kfum manna, sagði Craig. — Readers Digest efni, og ég saka McLaren ekki um það, sem gerðist með mína ævi, en hann var sá eini, sem kom auga á hvað ég var og hvað ég gat gert mér úr því. Mig langar að vita, hvort hann hefur farið eins að. — Eins að með hvað? spurði Grierson. Craig barðist við óvanalegar hugsanir; hugsanir, sem ekkert áttu skylt við hleðslunótur, farmskrár eða vopnaverzlun. — Hann sagði mér hvernig heim- urinn myndi verða, og hann hafði rétt fyrir sér. Að minnsta kosti um heiminn. Ég gerði það sem hann sagði að ég ætti að gera. Ég sé ekki, að það sé hans sök. Ég gerði það bara. Mig langar að vita, hvort hann hefur snúið sér að kennslunnl. Einhvernveginn hef ég það á til- finningunni, að hann hafi langað til að fara sömu leið og ég. — Og ef hann hefur nú ekki gert það? spurði Loomis. Craig yppti öxlum. — Það skiptir engu máli. Það er of seint nú. Mig langar bara að vita það. Aftur varð hann að leita að orðum. — Hér — ég hafði gert sitt af hverju, áður en ég hitti hagn. Ég hef gert margfalt meira síðan. Og mér verður aldrei hugsað til þess, aldrei. En mér verður hvað eftir annað hugsað til þessara ár- ans hvíldarbúða, söngsins ( McLar- en, og hvernig ég horfði á þessa vesalings hermenn dansa ( tungls- Ijósinu. Mig langar að vita hvernig hann er núna. — Veit hann, hvað þú heitir? spurði Loomis. Craig hristi höfuðið. — Hann vissi aðeins, að ég hét John. Ég komst hinsvegar að hans nafni, vegna þess að hann kynnti sig. Það rumdi í Loomis, meðan hann hugsaði. Eftir stundarkorn sagði hann: — Það ætti svo sem að vera allt í lagi. En mig langar til að þú segir öðrum manni þessa sögu, áður en ég tek ákvörðun. — Hverjum? Loomis gaut augunum hálf feimn- islega á hann. — Sálfræðingi, sagði hann. — Heldurðu, að ég sé vitlaus? spurði Craig. — Mig langar ekki að drepa hann. Mig langar aðeins að tala við hann. — Mig skiptir ekki máli, hvort þú ert vitlaus eða ekki, sagði Loom- is. Ég vil fá þig eins og þú ert. Ef þú heldur, að þú sért tepottur, verðurðu að halda áfram að vera tepottur, þangað til þú hefur lok- ið þessu starfi. Og ef þú talar við McLaren, getur það breytt viðhorf- unum. Ég get ekki átt það á hættu. Hann sneri sér að Grierson. — Farðu og sæktu Wetherly. Wetherly kom til þeirra í barinn. Hann var lítill, rósrauður og mildur á svip, smáútgáfa af Pickwick, og hann drakk hálfpott af svörtu flau- eli og hiustaði á söguna af Mc- Laren, meðan Loomis dró sig í hlé og las velkta vasaútgáfu af bók, sem hét „Morð f rauðum sokka- böndum". Eftir stundarkorn yfirgaf sálfræðingurinn Craig og truflaði Loomis við lesturinn. — Það er alltaf sama sagan, kvartaði hann. — Þú vilt fá svarið á mínútunni, þegar það tekur mig að minnsta kosti nokkra daga að komast til botns t málinu. Loomis gaut augunum framan á bókina. Jú, rauðu sokkaböndin voru á sínum stað, Ijómandi góðum stqð. — Allt ( lagi, hreytti Wetherly út úr sér. — Hann er með fullum sönsum en undir miklu tilfinninga- iegu álagi, sennilega ótta. Þessi McLaren er mikilvægur fyrir hann á sérkennilegan hátt, sem ég á erf- itt með að útskýra. Það er kannske hægt að segja, að hann sé ( huga hans einskonar Super Craig — per- sónugervingur allra langana og þarfa Craigs. — Mér er sama hvernig þú orðar það, sagði Loomis. — Þetta er ár(ð- andi. Wetheriy andvarpaði. — Nú er hann ekki eins viss. Hann er farinn að gruna að Mc- Laren hafi sjálfan langað að taka sinni ráðleggingu. - Nú? — Craig skammast sfn fyrir sjálf- an sig. Hann hefur brugðizt ( hví- vetna. — Hann er auðkýfingur. Hefur hugsun eins og rakblað og gæti malað þig með annarri hendinni. Hvernig i ósköpunum hefur hann brugðizt? Wetherly andvarpaði: — Þú notar sömu orðin og ég, en með annarri meiningu, sagði hann. — Hann hef- ur brugðizt konunni sinni, brugð- izt vinum sínum, og óttast að hann muni einnig bregðast stúlkunni sinni. Hann er mjög ofsafenginn maður. Fólk, sem kynnist honum náið, bíður tjón af því. — Allt i lagi, meðan ég get val- ið fólkið, sagði Loomis. — Hverju máli skiptir þetta McLaren? — Sé hann einskonar Super Craig, og hafi hann einnig brugð- izt, líður Craig ekki eins illa. Ef honum hefur heppnazt. . . — Hvað áttu við — heppnazt? — Craig heldur að hann sé kannske skólastjóri. Að mati Craigs hefur hann þá náð sínu hæsta tak- marki. Ég myndi ekki ráðleggja fund þeirra, sé sú raunin. Hinsveg- ar, ef hann er það, sem Craig myndi álita misheppnaðan mann, gæti fundur þeirra orðið nytsam- legur tilgangi ykkar. — Ég skal komast að því, hvað hann er að gera, sagði Loomis og horfði enn á forsíðuna á bókinni. — Hann lét mig hafa heimilis- fang McLaren. Loomis rétti fram höndina án þess að horfa á hann. — Það skiptir svo sem engu máli, sagði Wetherly, — en ég fullvissa þig um, að líkamsvöxtur þessarar ungu konu er líffærafræðilega ó- mögulegur. Loomis leit upp, sár á svipinn. — Við höfum allir okkar drauma, sagði hann. — Við neyðumst til þess. Annars værir þú atvinnulaus. 11. kafli. Sama kvöld ók Grierson Craig til upptökuhúss Express Television Company í Lagonda bilnum sfn- um. Hann var nýhættur að finna til i handleggnum og var fúll t skapi. Hann hafði andstyggð á Craig, andstyggð á fyrirlitninguni t fasi hans, þegar hann kastaði honum og meiddi hann, og nú var honum kappsmál, að Craig yrði fyrir áhrifum, ef ekki óttasleginn. Stóri, þýðgengi bdlinn var eftir- tektarverður ( öllu tilliti og sama var að segja um ökuleikni Grier- sons, þegar hann þræddi norður til Hampstead, ( gegnum umferð Lundúnaborgar; síðan yfir heiðina og norður á A 1, setti á „super- charger"-inn, fylgdist með snúnings- hraðam.inum og stöðugum sttganda hraðamælisnálarinnar, upp og upp og upp, þangað til hún náði hundr- Framhald á bls. 41. VIKAN 2. tbl. jg

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.