Vikan - 13.01.1966, Blaðsíða 23
nú reyndar að því síðar, að það stekkur enginn upp á
verðlaunapallinn í þessari grein né annarri, án þess að
á undan sé gengið þrotlaust erfiði.
Árið 1963 fór ég til Bretlands og lieimsótti þá kapp-
akstursskóla, sem er í eigu manns að nafni Jim Russel.
Þá ók ég raunverulegum kappakstursbíl í fyrsta skipti.
— Áður en lengra er haldið er bezt að segja frá því,
að bílar, sem atvinnukappakstursmenn nota, eru nefnd-
ir FORMULA eitt, tvö og þrjú. Nýliðar byrja að aka
FORMULA þrjú. Allir þessir bílar, af hvaða gerð sem
þeir eru, eru smíðaðir eftir ákveðnum reglum. Þungi
þeirra er ákveðinn, vélina verður að smíða eftir settum
reglum, og ýmislegt fleira kemur þar til greina. Allir
eru bílar þessir ákaflega dýrir og þá sérstaklega FOR-
MULA eitt, sem venjulega er aðeins smíðaður fyrir
þekktustu og snjöllustu ökumennina. Oftast eru það
olíufélög, hjólbarðaframleiðendur, bifvélaframleiðendur
og slík fyrirtæki, sem kosta smíði þeirra. Allt er þetta
gert með það fyrir augum, að ef bifreiðin kemur fyrst
í mark, geta verksmiðjurnar, olíufélögin eða þeir, sem
í hlut eiga, sagt í auglýsingum: NN, sem sigraði í hin-
um erfiða kappakstri í Monaco, notaði þessa olíu, þessa
hemlaborða og svo framvegis. Auk þess fæst auðvitað
dýrmæt reynsla í sambandi við eiginleika hinna ýmsu
vélarhluta, til dæmis blöndungs og gírkassa, og aksturs-
eiginleika bifreiða og fleira, sem bifreiðaverksmiðjurnar
geta notfært sér til endurbóta á framleiðslunni. En það
er nú fyrst og fremst Mammon, sem stjórnar þessu öllu.
Peningaverðlaunin eru oft ævintýralega há, ef vel geng-
ur. Kappaksturshetjurnar fá ríkulegan hluta af þeim
peningum, sem áhorfendur greiða fyrir að fá að horfa
á þá aka og það eru háar upphæðir, sem skipta um
eigendur, þegar hin voldugu fyrirtæki kaupa beztu
mennina til að keppa fyrir sig. Einn þekktasti kapp-
akstursmaður veraldar, Jim Clark, hafði á síðasta ári
Á braut í Mallory Park, Englandi. Lotus.
Rétt fyrir start f Snetterton. Bílunum hef-
ur verið raðað upp, kcppni hcfst cftlr þrjár
mínútur. Nr. 16 á bróðir Profumos hins
fræga, og það er hann sem er f úlpunni.
VIKAN 2. tbl. 23