Vikan - 13.01.1966, Blaðsíða 27
*0 Sverrir og Lótusinn.
Á leið suður til Ítalíu með Lotusinn á aftanívagni. Þá biluðu bremsurnar á Mimi
Morris-Coopernum á hættulegum stað í Ölpunum og þá var ekki um annað að
ræða en skifta um borða.
Að neðan til vinstri: Þessir bílar eru mjóir og þröngir, og helzta ráðið að smeygja
sér ofan í þá.
vald á bílnum. Hann lyftist fyrst upp að aftan og framend-
inn rakst í brautina af heljarafli. Eg sá hvernig bíllinn bók-
staflega lagðist saman að framan. — Það minnti helzt á
kökudeig, sem ldesst er niður á borð. — Því næst flaug bíllinn
upp í loft og snerist nokkra hringi án þess að koma við jörðu.
Hann snerist eins og blýantur, sem maður hefur haldið í
oddinn á og fleygt frá sér. Ég reyndi að halda í stýrið, en það
var tilgangslaust. Annars get ég litla grein gert mér fyrir
því hvað gerðist þessar sekúndur þar til bíllinn og ég lentum
eftir flugferðina. Sjónarvottar sögðu mér, að ég hefði kastazt
út úr bílnum í einni sveiflunni og flogið fram fyrir hann. Við
lentum báðir í skógarkjarri. Ég talsvert fyrir framan bílinn,
en báðir fyrir utan brautina. Ég held ég hafi stokkið strax á
fætur, enda varð ég fyrstur að bílnum og stóð þar bölvandi
og ragnandi, þegar sjúkraliðarnir komu. Þeir vildu fá að leggja
mig á sjúkrabörur, en ég neitaði algjörlega; sagði þeim, að
ekkert amaði að mér. Þeir stóðu lengi hjá mér og voru af
og til að spyrja hvort ég væri viss um að ekkert væri að mér.
Það var mikið ritað um þennan atburð í dönsku blöðin og
þannig bárust fréttirnar hingað heim.
Bíllinn var mikið skemmdur og ég fór með hann heim til
Bretlands daginn eftir. Þar tókst að tjasla honum saman aftur
og eftir þrjár vikur var ég kominn heim til Svíþjóðar. Þar
tók ég þátt í einni keppni, en var dæmdur úr leik, þar eð olía
lak úr bílnum mínum á brautina. Ég var þriðji í röðinni er
það gerðist. Frá Svíþjóð fór ég til Parísar. Þar tók ég þátt
í öðrum kappakstri. Hamingjan var mér ekki hliðhollari þá
en í fyrri keppnum þetta sumar. Kælivatnskerfið í bílnum
bilaði. Þetta var síðasti kappaksturinn, sem ég tók þátt í á
Framhald á bls. 50.
Radfords. Sérstök
verksmiðja, sem sér-
hæfir sig í body
smíðum. Meðal ann-
ars smíðuðu þeir
hinn fræga Aston-
Martin fyrir James
Bond (kvikmynd-
ina), og til gamans
má geta þess, að
Peter Sellers lætur
þá alltaf flikka upp
á bílana sína áður en
hann sezt upp í þá.
VIKAN 2. tbl.
27