Vikan


Vikan - 13.01.1966, Blaðsíða 47

Vikan - 13.01.1966, Blaðsíða 47
Þetta áhald er gert til að hreinsa hreistrið af fiski. Það hefur þann kost fram yfir hníf, að hreistrið flýg- ur ekki í allar áttir, því að það festist í tökkunum á blaðinu. Þar að auki er þetta frekar þungt áliald og fer vel í hendi, þannig að ekki þarf að strjúka fisk- inn nema einu sinni eða tvisvar, þá er fiskurinn hreinsaður. Sumir nota þetta áhald líka sem huff- hamar, og er ágætt að geta þannig slegið tvær flugur í sama höggi. Verðið er kr. 30,00. "i m Því er ekki frysti maturinn í frystikistum verzlana dagsettur — annaðhvort með dagsetningardegi innpökkunarinnar og þá helzt upplýsingum um hve varan heldur sér lengi, eða þá dagsetningu síðasta söludags, líkt og Mjólkursamsalan hef- ur á hyrnunum? Það er takmarkað hve lengi er hægt að geyma flestar vöruteg- undir, feitur fiskur er t.d. góður í aðeins 2 mán. við 18 gráður, en 4 mán við 25 gr., magur aftur í 3 mán, við 18 gr. og í 6 — 7 mán. við 25 gr. Fiskurinn, sem er á boðstólum úr þessum kistum gæti verið betri oft og tíðum, en þó keyrir um þverbak hvað rækjurnar snertir. Þær gætu sannarlega verið betri, því að hvað eftir annað kemur í Ijós, að maður hefur lent á eldgömlum óþverra, rækjurnar þurrar og oft gulleitar yzt í pakkanum með greinilegu gamalbragði. ■Ucklað sial Þetta fallega sjal er heklað úr mjög fíngerðu Wermer & Carlströms Shetland ullargarni og heklu- nál nr. IVi. Sé þessi garntegund ekki fyrir hendi, má nota Scheepjers Olga garn, fíngerðustu teg- und, er fæst í Hof. Magn um 300 gr. Hver fern- ingur er heklaður með því að draga upp 2 sm. langa lykkju * bregða garninu um nálina, draga aftur upp álíka langa lykkju úr sömu lykkju, og eru þá 3 I. á nálinni. Bregðið þá garninu um nálina og dragið það fyrst í gegn um 2 I., bregðið því þá aftur um nálina og dragið það í gegn um 2 I. * Endurtakið frá * til * 10 sinnum. Fitjið upp 391 loftlykkju og hekl. 1 umf. stuðla- hekl * 1 umf. fastahekl og farið í þráðinn, sem tengir stuðlana frá röngu. Síðan 1 umf. stuðla og farið undir báða lykkjuhelminga. * Endurtakið frá * til * 4 sinnum og endið kantinn með 1 umf. fastah. Hekl. síðan á eftirfarandi hátt: 1 ferning í 11. I. * Sleppið 5 I., 1 fastal. í næstu I., sleppið 5 I., 1 ferning ( næstu I. * Endurtakið frá * til * umf. á enda og skiljið eftir 10 I. á endanum. Heklið næstu umferð með fastahekli og festið ferningana niður í 5. I. frá endanum báðum megin. Næsta ferningaumferð er hekl. á sama hátt, nema hvað hún víxlast við þá fyrri og ferningur- inn kemur úr fastalykkju fyrri ferningaumferð. 1 umf. fastahekl. Heklið nú áfram á þennan hátt og fækkið báðum megin um 1 ferning á jöðr- unum í hverri umf. þar til 1 fern. er eftir. Heklið þá gataröð þannig: festið garninu í 1. I. á jaðri og heklið 10 loftlykkjur, 1 fastal. í 1 I. ferningsins, 10 loftl., 1 fastal. í miðjan ferning. Heklið þannig í alla ferningana einnig ( fyrsta og síðasta. Hekl. síðan 1 umf. með lausum stuðlum á sama hátt og ( ferningunum: Farið ( 3. loftl. og dragið upp 2ja sm. langa lykkju, bregðð garninu um nálina, farið ! næstu lykkju og dragið upp langa lykkju, bregðið garninu um nálina og farið ( gegn um 2 I., bregðið því þá aftur um nálina og farið I gegn um 2 I. Hekl. áfram á þennan hátt þar til 3 loftl. eru eftir af fyrsta boganum, bregðið þá Framhald á bls. 41.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.