Vikan - 13.01.1966, Side 7
JÖSTURINN
svohljóðandi, og vitnað til fyrr-
nefnds knattspyrnumanns:
„Bezta ráðið til að auka úthald
íslenzkra knattspymumanna er
að senda þá í bítlahljómsveit".
Síðar í fyrrnefndu viðtali segir
að þessi bítla-knattspyrnumaður
hafi í einu dagblaðanna verið tal-
inn þriðji bezti knattspyrnumað-
ur ársins. Verður lesandi óneit-
anlega undrandi að heyra þetta
þar sem þessi maður var EKKI
valinn í landsliðið síðastliðið
sumar. Hvað veldur því? Fyrir
því er aðeins eitt svar. Hann var
með OF mikið HÁR.
Og hvernig yrði þá ef allir
beztu knattspyrnumenn landsins
færu í bítlahljómsveit?
Landsliðið yrði ekki upp á
marga fiskana það er víst.
Staðreyndin er sú að þeir sem
minnst hár hafa ganga fyrir í
landsliðið (sbr. K.R.-inga). Mitt
álit er að velja eigi í landsliðið
eftir getu manna á vellinum og
hvernig þeim tekst að beita fót-
um sínum gegn knettinum (ekki
andstæðingnum), en ekkiaðvelja
eftir hárvexti. Sé maðurinn
snyrtilegur ber ekki að víkjahon-
um af leikvelli þó svo að hann
hafi mikið hár. Og sízt af öllu
þar sem þetta er atvinna Guð-
mundar Rúnars Júlíussonar en
það er hann (ásamt landsliðinu)
sem orðið hefur fyrir barðinu á
óréttlæti háttvirtrar landsliðs-
nefndar. Svo þakka ég ykkur fyr-
ir ef þið birtið þetta fyrir mig.
Og um leið vil ég beina þeim til-
mælum til landsliðsnefndar að
hún athugi sinn gang.
Óánægður.
Húrra! Ég vissi ekki, að lands-
liðsnefndin væri svona sniðug!
Annars er það sennilega ekki
vöxtur hársins, sem úrslitum
ræður, heldur meðferð þess.
Hugsið ykkur bara ef 11 lubba-
hausar væru að gana um knatt-
spymuvöllinn! Þeir dyttu bara
hver um annan þveran af þvi þeir
sæju ekkert, og gott ef boltinn
týndist ekki í lagðinum á ein-
hverjnm. Og hvemig færi, ef
svona lubbahaus ætlaði að
skalla? Lubbinn tæki allt stuðið
af, svo boltinn dytti bara mátt-
laust niður. Það þarf harðan haus
til að gefa fjaðrandi högg. Og
hvers vegna þurfa hljómsveitir
að hafa lubba eins og brezkir
bítlar, þótt þær fremji hljóO eft-
ir þeirra fyrirmynd? Ég vil beina
því til Iandsliðsnefndar, að hún
haldi áfram að undirstrika nauð-
syn góðrar hárhirðu.
MEIRA UM LOÐHAUSA.
Til Pósts Vikunnar!
f 51. tbl. 27. árg. í FULLRI
ALVÖRU, skrifar G.S. um hár-
tízkuna: Hversvegna mega ekki
unglingar vera með mikið hár?
Af hverju er það óhollara að vera
með mikið hár núna, en í forn-
öld? í fomöld voru allir karl-
menn með mikið hár, og lang-
flestir með miklu meira hár en
bítlar núna. Það mætti segja mér
að G.S. væri sköllóttur, og væri
bara öfundsjúkur. G.S. virðist
hafa áhyggjur af því að þeir sem
séu með mikið hár verði kven-
legir. Ekki urðu Egill Skalla-
grímsson eða Gunnar á Hlíðar-
enda kvenlegir á því að vera
með mikið hár. Svo talar hann
um fræga en leiðinlega bítla-
hljómsveit úr Keflavík. Hann
notar tækifærið meðan þeir eru
úti í löndum, og geta ekki svar-
að fyrir sig. Hljómar er núna
vinsælasta hljómsveit landsins,
og þess vegna held ég að Vikan
græði ekki miklar vinsældir á
því að tala svona um þá, að
minnsta kosti ekki hjá ungling-
unum.
X.Z.
Hver segir, að það hafi verið
hollt að ganga með loðhaus í
fornöld? Hefur þú bréf upp á
það? Ég held þeir Egill sálugi
og Gunnar heitinn hljóti að hafa
verið kvenlegir til höfuðsins með
allan sinn lubba, þótt þeir hafi
kannski ekki túberað hann eða
notað Magic Curl. Hitt er svo
annað mál, að þeir kunna að
hafa haft einhverja vöðva karla-
greyin, enda höfðu þeir ekki lært
að elta uppi frægar en leiðinleg-
ar hljómsveitir til að hrópa je je
og reka uppi önnur kynlaus gól,
milli þess sem þeir tottuðu síg-
arettuna og snöpsuðu sig á
brennivíni til að vera miklir
karlar. — Ég get fullvissað þig
um, að G.S. hefur þykkt og fall-
egt, Ijóst og liðað hár, sem hann
klippir og hirðir vel, og ef þú
trúir mér ekki, skaltu bara koma
og sjá sjálfur. — Þetta með vin-
sældirnar — það væri gaman að
heyra meira um þær — t.d. frá
eldra fólkinu.
0
Flttmíngo
hárþurrkan
— fallegri og fljótari
og hefur alla kostina:
700 W hitaelement, stiglaus
hitastilling 0—80°C og nýi tur-
bo-loftdreifarinn skapa þægilegri
og fljótari þurrkun. Hljóðlót og
truflar hvorki útvarp né sjón-
varp. Fyrirferðarlítil [ geymslu,
því hjálminn má leggja saman.
Auðveld uppsetning á herberg-
ishurð, skáphurð, hillu o.fl., en
einnig fást borðstativ og gólf-
stativ, sem líka má leggja sam-
an. 2 fallegar litasamstæður,
bláleit (turkis) og gulleit (beige).
..v *i£
FLAMINGO
straujárnið
er létt og lipurt, hitnar og kóln-
ar fljótt og hefur hárnákvæman
hitastilli, hitaöryggi og hitamæli,
sem alltaf sýnir hitastigið. Fæst
fyrir hægri og vinstri hönd — og
þér getið valið um 4 fallega
liti: króm, topasgult, opalblátt
og kóralrautt.
Ábyrgð og traust
varahluta- og við-
gerðaþjónusta.
FLAMINGO úðarinn
er loftknúinn og úðar tauið svo
fínt og jafnt, að hægt er að strauja
það jafnóðum. Omissandi þeim,
sem kynnst hafa. Litir ( stíl við
straujárnin.
FLAMINGO
snúruhaldarinn
er ekki siður til þæginda, þv[ hann
heldur straujárnssnúrunni á lofti,
svo að hún flækist ekki fyrir.
S f M I 2-44-20 - SUÐURGATA 10 - REYKJAVÍK
P Ö N T U N — SendiS undirrit. í póstkröfu:
.... stk. FLAMINGO hárþurrka . .. litur: .
.... stk. FLAMINGO borðstativ ..........
.... stk. FLAMINGO góHstativ ...........
.... stk. FLAMINGO straujárn ...litur: .
.... stk. FLAMINGO úðari .......litur: .
.... stk. FLAMINGO snúruhaldari ........
Naín: ..................................
Heimili: ...............................
Til: FÖNIX S.F., Pósthólf 1421, Reykjavik. V-2
kr. 1115,-
kr. 115,—
kr. 395,-
kr. 495,-
kr. 245.-
kr. 109.—
VIKAN 2. tbl. rj