Vikan - 13.01.1966, Qupperneq 9
Henrique Galvao varð heimsírægur í
einni svipan í janúar 1961, þegar hann
tók með valdi millilandaskipið Santa
Maria út af strönd Venesuela. Þetta
var stórt skip eins og allir muna;
áhöfn uppá 350 manns og 588 far-
þegar. Hann réði lögum og lofum á
skipinu í 11 daga og það var fylgzt
með þessum atburði af athygli um
allan heim. Hugmynd Galvaos var að
beina með þessu athygli heimsins að
einræðisstjórn Salazars í Portúgal,
enda var Galvao félagi í andspyrnu-
hreyfingu Humberto Delgados á móti
einræðisherranum.
Þetta var víst einhver djarfasta til-
raun til að ná völdum á einu skipi
sem um getur, en tókst þó án meiri
háttar blóðsúthellinga; aðeins þriðji
stýrimaður lét lífið og einhver messa-
gutti slasaðist. Þeim slasaða var kom-
ið á land í Vestur-Indíum, en Galvao
beindi því næst för skipsins í áttina
tíl Afríku og sendi stanzlaust skeyti
til íbúanna í potúgölsku nýlendunum
í Afríku um að gera uppreisn. En
áður en langt um leið, kom það í ljós,
að skipið var að verða olíulaust og
Galvao tók þann kost að snúa því til
Brasilíu. Hann tók land þar sem heit-
ir Recife, fékk yfirvöldunum skipið
í hendur og baðst hælis í Brasilíu
sem pólitískur flóttamaður
Enn þann dag 1 dag býr Galvao í
Brasilíu, nú sjötugur að aldri. Að
vísu brá hann sér til Evrópu stuttu
eftir titækiö, hélt þar fyrirlestra um
óhræsið hann Salazar og bætti við
fyrri afrek sín með því að ræna flug-
vél í Marokkó og notaði hana til að
dreifa áróðursmiðum yfir Lissabon.
Annars hefur Galvao að mestu ver-
ið starfsmaður hjá brasilíska blaðinu
O Estado í Sao Paulo. Hann lifir ró-
legu lífi og stórviðburðalausu, en held-
ur áfram baráttunni á móti fjand-
manni sínum í valdastóli Portúgals
með því að skrifa bækur og bæklinga.
Nýlega hefur hann gefið út áttundu
bók sína sem ber heitið: „Barátta mín
á móti Salazarisma og kommúnisma
í Portúgal“.
Áður fyrr var Galvao starfsmaður
stjórnarinnar 1 heimalandi sínu og
hafði meira að segja umsjón með ný-
lendum Portúgala. Þá mótmælti hann
hástöfum því sem fram fór undir
stjórn Portúgala í þessum hrjáðu ný-
lendum og fékk að launum 18 ára
fangelsisdóm. Eftir sex ár bak við
lás og slá þurfti hann að leggjast á
spítala og þaðan flýði hann og baðst
ásjár í argentínska sendiráðinu. Allt
frá þeim tíma hefur hann lifað í
stöðugum ótta við PIDE, leynilög-
reglu Salazars, sem byggð er á fyrir-
myndum frá Gestapó.
Velkomin aftur
Sagan
Það er nú orðið æði langt síðan að
Francoise Sagan sendi frá sér bók.
En nú vinnur hún að næsta meistara-
verki (?). Hún hefir komið sér fyrir
í Suður-Frakklandi, þar sem hún hýr
með þriggja ára gömlum syni sín-
um og vinnur að bókmenntastörfum.
Hér eru myndir af henni, önnur þar
sem hún er með handritið af fyrstu
bókinni sinni, og hin þar sem hún
er að hamast við að skrifa nýja bók.
Sonur hennar, Denis er með henni á
myndinni.
Svart 09 livítt
Það hafa verið kjaftasögur á
kreiki um að Sammie Davis og
hin Ijóshærða May Britt séu að
skilja. Þessi mynd ber vott um
það gagnstæða. Þarna er Sammy
pabbi að taka á móti fjölskyld-
unni, sem er að koma heim úr
sveitinni.
Galvao
streltist á móti
Salazar
Zanussi heimilistækin eru
árangur af löngu samstarfi og
rannsóknum tæknifræðinga og
skipulagsfræðinga á þörfum
heimila og húsmæðra, ásamt
áralangri reynslu á fjölmörgum
sviðum tækninnar.
Hin sívaxandi sala á Zanussi
heimiljstækjum hér á landi
sýnir að það er óhætt að treysta
hinum þroskaða smekk og
gæðamati íslenzkra húsmæðra.
SIIORRMIRMIT 44 - SÍtl 16242.
VIKAN 2. tbl. Q