Vikan


Vikan - 13.01.1966, Síða 11

Vikan - 13.01.1966, Síða 11
talin börnin í Heyrnleysingiaskólanum. — Nú hafið þið snúið ykkur að smóbörn- unum? — Jó. Eftir að tryggingalöggjöfin komst á, var þörfin fyrir styrki ekki eins brýn. — En svo var það árið 1958 að ég fór til Norðurlanda-Zontamóts í Kaupmannahöfn og þar kynntist ég Zontakonu frá Árósum, frk. Bodil Willemoes, sem hefur unnið merkilegt braut- ryðiandastarf til hjálpar heyrnardaufum smá- börnum. Byrjaði hún árið 1945 að hafa heyrn- ardauf börn með öðrum í skólanum og náði ótrúlega góðum árangri með að kenna heyrn- ardaufu börnunum að tala og lesa af vörum leiksystkinanna. Þá var ekki búið að koma upp heyrnarstöðvum í Danmörku og því slður að láta lítil börn nota heyrnartæki. — Hvenær var heyrnarstöðvum í Danmörku komið á fót? — Það var árið 1950. En nú þegar við höfð- um heyrt um þetta starf í Árósum langaði okk- ur að sjá það með eigin augum og fórum við tvær konur úr Zontaklúbb Reykjavlkur þangað í þeim tilgangi. — í Árósum kynntumst við dr. med. Ole Bentzen yfirlækni heyrnarstöðvarinnar, sem rek- in er af rlkinu. Tók hann okkur af frábærri al- úð, fræddi okkur og sýndi stöðina. Þegar hann heyrði um verkefni Zontaklúbbsins og að eng- in heyrnarstöð væri til á íslandi, var hann ekki myrkur í maií og sagði að það væri skylda okkar að reyna að hrinda málinu í framkvæmd. — Heimsóttuð þið síðan leikskólann? — Já, og þangað var dásamlegt að koma. 20 — 30 börn voru þarna að leik og virtust alheil og eðlileg, en þegar betur var að gáð voru mörg þeirra með heyrnartæki. Að öðru leyti voru þau ekkert frábrugðin hinum börn- unum og gátu gert sig skiljanleg, þó orðaforð- inn væri kannske ekki mikill, gátu þau flest talað eitthvað. Nú var farið að syngja, einn var forsöngvari og bjó sjálfur til textann við lag sem allir kunnu. Hljóðfallið var slegið með trésleifum. Nú bættust ný orð við, sem betur Framhald á bls. 28. :■ ■■■■ '■XÍV.ÍÍS Á þessum myndum sjást Erlingur Þorsteinsson, háls-, nef- og eyrnalæknir, sem er læknir stöSvarinnar og María Kjeld sem sér um daglegan rekstur stöSvar- innar, aS mæla heyrn barna meS heyrnarmælitæki. (Andiometer). VIKAN 2. tbl.

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.