Vikan - 13.01.1966, Page 30
þaö en auóséó...
skilar
hvítasfa
Já, þaö er auðvelt að sjá að OMO
skilar hvítasta þvottinum. Sjáið
hve skínandi hvítur hvíti þvottur-
inn verður og einnig verða litirnir
skærri á litaða þvottinum sé OMO
notað. Löðrandi OMO, gerir þvot-
tinn ekki aðeins hreinan heldur
einnig hvítari. Reynið OMO og þér
munuð sannfærast.
þvotfinum!
X-OMO 185/1C-6U8
— í Danmörku úthluta heyrnar-
stöðvarnar heyrnartaskjum til
þeirra, sem þess þurfa, en ríkið
ó öll tækin og starfsmenn heyrn-
arstöðvanna fylgjast með því að
þau séu notuð. Séu þau ekki not-
uð, eru þau tekin af fólki.
— Ymislegt nýtt kemur fram ó
þessu sviði sem öðrum, t.d. fæst
nú tæki sem nefnist „teleslynge",
og tengt er útvarpinu annars vegar
•>g heyrnartækinu hins vegar, og er
ómissandi heyrnardaufu fólki sem
ekki hefur fullt gagn af úfvarpinu.
— Dr. Bentzen er ákatlega bjart-
sýnn á það, að með réftri notkun
heyrnartækja sé mögulegt oð xoma
ýmsum heyrnardaufum börnum það
áleiðis, að þau geti verið í venju-
legum skólum, en í sérbekkjum.
Ahugi hans er svo mikill og storfs-
árangur svo góður, að hann hlýf-
ur að vekja bjartsýni allra sem því
kynnast. Vona ég, þótt seinna verði,
að erindi það, sem hann flut+i hér
í fyrrasumar í háskólanum, komist
til almennings í Ríkisútvarpinu.
— Okkur er mikill sómi að því
að njóta velviljaðra ráða og hand-
leiðslu dr. Bentzens. Hann hefur
lengi verið sérfræðiráðunautur Heil-
brigðismálastofnunar Sameinuðu
þjóðanna og egypsku rfkisstjórnar-
innar, auk þess sem hann er eftir-
sóttur fyrirlesari utan síns lands og
innan.
— Er enginn hér á landi, sem
smíðar eyrnatappa fyrir heyrnar-
tæki?
— Jú, einn kennari Heyrnleys-
ingjaskólans gerir það, en hann
kemst ekki yfir að sinna öllum, svo
það er full þörf á að styrkja tann-
smið til náms í því.
— Hve mörg börn innan skóla-
aldurs eru búin að koma til athug-
unar?
— Árið 1964 komu 33 börn inn-
an skólaaldurs til athugunar og af
þeim eru 2 búin að fá heyrnartæki.
í athugun er að heyrnarprófa börn
í leikskólum, en á meðan María
Kjeld er ein við prófunina, er auð-
vitað takmarkað hversu mikið hún
kemst yfir.
— Nokkrir starfshópar sem vinna
í miklum hávaða, hafa einnig ver-
ið prófaðir.
— í Danmörku hefur margt ó-
vænt komið í Ijós við heyrnarpróf-
anir, svo sem það að árlega lask-
ast heyrn margra barna og ungl-
inga við sprengingarnar á gaml-
árskvöld.
— Hafa ýmsir barizt fyrir því að
banna þann ófögnuð, og nýlega
var frá því sagt ( POLITIKEN, að
slíkt bann kæmi til framkvæmda
eftir næstu áramót. Flugeldaverk-
smiðjurnar myndu fara á hausinn
ef það yrði gert fyrr.
— Virðist full ástæða til að taka
til athugunar hvort ekki ætti einn-
ig að banna þennan óþarfa há-
vaða hér, því ekki er að efa, að af-
leiðing hans muni vera svipuð og
rannsóknir í Danmörku hafa leitt (
Ijós.
— Ekki munu fjármunir hafa bor-
izt fyrirhafnarlaust í ykkar hendur,
fremur en annarra. Hverjar hafa
verið helztu fjáröflunarleiðir Zonta-
klúbbsins?
— Við höfum aflað Margrétar-
sjóði tekna með ýmsu móti. Tvisvar
höfum við farið út fyrir klúbbinn
og haldið skemmtanir í ágóðaskyni
og hefur þá sjóðurinn vaxið stór-
lega. Höfðinglegar gjafir hafa bor-
izt frá félagskonum og ýmsu öðru
ágætu fólki, sem vill styðja þetta
málefni. Nokkur undanfarin ár höf-
um við selt kerti til tekjuöflunar og
hefur það gefizt vel. Minningar-
spjöld eru stöðug tekjulind, en þau
eru til sölu hjá frú Hólmfríði Bald-
vinsson, Tízkuhúsinu, Laugavegi 5,
hjá frk. Sigríði Bachmann, forstöðu-
konu Landspítalans og hjá mér.
Hafa gjafir til Margrétarsjóðs farið
vaxandi með ári hverju, þrátt fyrir
það að alltaf fjölgar minningar-
sjóðum. Fyrir allar þessar gjafir er-
um við ákaflega þakklátar, enda
eru þær okkur dýrmætur stuðning-
ur.
— -Ártlar félagið ekki að halda
áfram starfi sínu fyrir þetta sama
málefni?
— Jú, þar eru enn mörg verk-
efni óleyst. Formaður Zontaklúbbs
Reykjavíkur, frk. Auður Proppé, fór
s.l. vor á Norðurlandamót Zonta-
klúbanna, sem haldið var ( Sví-
þjóð og lagði þá lykkju á leið sína
og fór til Árósa til að leita ráða
hja dr. Bentzen, um framtíðarverk-
efnin.
— Við teljum nauðsynlegt að
auka starf heyrnarstöðvarinnar,
enda fer aðsókn að henni sívax-
andi og við teljum ákaflega mikil-
vægt að stuðla að almennri fræðslu
um allt, er þessi mál varðar. Já,
verkefni eru næg og vð vonum,
að félagi okkar takist að vinna
þarft verk.
Sigríður Thorlacius.
Ráðgátan ...
Framhald af bls. 15.
Þegar foringinn fyrir fótbolta-
liði Duanes heyrði þetta, sagði
hann: — Ég trúi því ekki að
Duane hafi sungið og dansað.
Því meira sem ég heyri, því rugl-
aðri verð ég.
Einhverntíma á föstudagskvöld-
ið, eftir að Duane var búinn að
senda Nick 50 dollara, sem hann
skuldaði honum og greiða fölsku
ávísanirnar, hringdi hann til Me-
lindu og spurði hana hvenær hún
kæmi til Kansas. Hann sagði
henni ekkert um heimsóknina til
2Q VIKAN 2. tbl.