Vikan - 03.02.1966, Blaðsíða 8
<:
' - /
ímíMm
\
wmmmm.
mmmmi
Wmm,
Wmm
Wmmí
Mmm
mmmwMi
Nútíma kona notar
Yardley fegrunarvörur
Yardley fegrunarvörur eru fram-
leiddar fyrir yður samkvæmt
nýiustu tækni og vísindum, eftir
margra óra rannsóknir og til-
raunir í rannsóknarstofum Yardl-
ey í London og New York.
Yardley veit að þess er vænst
af yður, sem nútíma konu, að
þér lítið sem bezt út, ón tillits
til hvar þér eruð eða hvernig
yður líður.
Þess vegna býður Yardley yður
aðeins hin réttu andlitsvötn og
krem, hvernig svo sem húð yðar
er og Yardley tízkul itirnir (
varalitum, augnskuggum og
make up, sem fara yður bezt.
BIÐJIÐ UM YARDLEY í NÝJUSTU
PAKKNINGUNUM.
Innflytjandi GLÓBUS h.f.
Þorramatur f
Nsusti
Miðvikudaginn 19. jan. s.l. bauð Yeitingahúsið Naust
blaðamönnum til átveizlu af tilefni komu Þorra, en undan-
farin níu ár hefur veitingahúsið haldið upp ú þennan mánuð
með því að hafa á boðstólum allskonar íslenzkt góðmeti og
hlotið fyrir miklar vinsældir.
Fagnaðurinn fyrir blaðamenn var hinn veglegasti að vanda;
Yar þeim bóðið upp á allan hinn venjulega þorramat, svo sem
svið og súran hval, hákarl, hrútspúnga, sviðasultu og rófu-
stöppu og margt fleira. Auk þess var gefið að smakka á nokkr-
um sérréttum, þar á meðal maríneruðum kræklingi og gratí-
neruðum sníglum, sem eru algert nýmæli í mataræði hér á
Iandi. Alla gerð þessara rétta og þorramatarins annaðist Ib
Wessmann, yfirmatsveinn veitingahússins. — Framkvæmda-
stjóri Nausts er Geir Zoega.
Á meðfylgjandi mynd, sem Kristján Magnússon tók við
þetta tækifæri, sjást nokkrir blaðamanna velja úr trogunum,
sem maturinn var borinn fram í. Má þar þekkja (t.f.v.) þá
Harald Hamar, Morgunblaðinu, Eið Guðnason, Alþýðublað-
inu, Árna Gunnarsson, Ríkisútvarpinu, Dag Þorleifsson, Vik-
unni og Elías S. Jónsson, Tímanum.
Með fæðingarbletl
í Barcelona lýsti lögreglan
eftir 28 ára gamalli blóma-
selju, Rositu Canaes, sem
hafði svikið fé út úr hótelum
ag veitingastöðum borgarinn-
ar. I lýsingu á henni segir
meðal annars: — Hún hefur
látlausa, fyrirmannlega fram-
komu.... og er með sér-
kennilegan fæðingarblett neð-
an við naflann. — Við vitum
ekki, hvort hún hefur fund-
izt, en næstu daga var mik-
ið um kærur frá kvenfólki,
sem taldi sig hafa orðið fyrir
ósæmilegri fatameðhöndlun
af hálfu ókunnugra karl-
manna.
g VIKAN 5. tbl.