Vikan - 15.12.1966, Page 7
Fallegar iölagjafir!
að illmögulegt er annað en brjóta
þau, séu til þess fallin að auka
virðingu manna fyrir lögunum.
Þeir sem vilja gera endurbætur
á hinni svokölluðu drykkjumenn-
ingu eður ómenningu þessarar
þjóðar, taka gjarnan ýmsar þjóð-
ir sér til fyrirmyndar í áróðri
sínum, svo sem Frakka, og hefur
mér skilizt að þeir drekki létt vín
svona rétt eins og við drekkum
kaffi, en séu hins vegar sjaldan
nema rétt „góðglaðir“, en hins-
vegar séu þeir líklega oftast nær
dálítið „í því“.
Því spyr ég í þriðja lagi: Ef að
slíkri menningu yrði komið hér
á landi, er þá ekki alveg auðsætt
að breyta þarf umræddum lögum,
því að oft þurfa menn að aka
bíl, eða eiga menn bara að „grísa
á“ að aka undir áhrifum, og vona
í lengstu lög að ekki verði reki-
stefna út úr því? Spyr sá sem
ekki veit.
Að síðustu langar mig til að
bera fram spurningu varandi ís-
lenzka sjónvarpið.
Teljið þið þarna á Vikunni lík-
legt að sjónvarpið nái til allra
landsmanna eftir 5 eða 7 ár?
Nú eru meira en 30 ár síðan að
útvarpið hóf sendingar sínar, en
eftir því sem komið hefur fram
í dreifbýlinu sumsstaðar, þá er
vart hægt að segja að útvarpið
nái ennþá eftir öll þessi ár til
allra landsmanna.
Að síðustu vona ég að þessu
bréfi verði ekki stungið undir
stól. Kveðja, Tralli.
í Noregi og Svíþjóð er bjór-
drykkja leyfð, en þar er refsivert
að aka bíl með 0.5 prómille á-
fengismagn í blóðinu og þar yfir.
Sama regla gildir hér á landi, og
ætti þá varla að vera mikil
ástæða til að breyta henni, þótt
við fengjum bjórinn.
Samkvæmt skýrslu, sem svo-
kölluð sjónvarpsnefnd hefur látið
frá sér fara, mun vera gert ráð
fyrir að sjónvarpið nái til allra
landsmanna innan sjö ára.
KÁFANDI OG FLAÐRANDI
UPP UM MANN ALLAN.
Kæra Vika.
Við erum hérna nokkrar stelp-
ur allar undir 15 ára aldri utan
af landi. Höfum lent í því að
maður yfir tvítugt giftur og á
krakka, hefur nokkuð oft fengið
okkur til að passa barnið. Hann
reynir alltaf að koma því svo
fyrir að hann lendir einn með
okkur t.d. keyra okkur heim og
er þá káfandi og flaðrandi upp
um mann allan. Svo hefur hann
líka verið að reyna að koma
stelpunum sem vinna með hon-
um til við sig, strjúkandi þær á
alla kanta. Hann er búinn að
koma svoleiðis fram við okkur
einar 8—10 og við erum farnar
að hræðast hann. Kæra Vika, nú
er það spurningin er þetta of
lítilfjörlegt til að kæra það eða
höfum við ekki aldur til að bera
fram ákæruna. Getur maðurinn
verið heilbrigður? Ég vona að þú
svarir þessu sem skýrast og án
útúrsnúninga. Það er nú svo sem
ekki það að við séum neinir engl-
ar þegar strákar eru annarvegar,
hvaða stelpa 13—14 ára kærir
sig um að vera með harðgiftum
manni um 20 ára, þar að auki
pabba.
P.S. Svaraðu fljótt. Hvernig er
skriftin. Nokkrar lafhræddar.
Prófið þið að láta hann vita af
því, að ef hann hætti ekki þessu
káfi og flaðri, þá munið þið segja
foreldrum ykkar frá því, þau geti
svo látið kæruna ganga lengra.
Ef liann lætur sér ekki segjast
við hótunina eina saman, skulið
þið gera alvöru úr henni. Skriftin
er ekki ósnotur, en heldur við-
vaningsleg.
HRIFIN AF STRÁK.
Kæri Póstur.
Þú hefur gefið svo mörgum
góð ráð. Ég ætla nú að biðja þig
að gefa mér gott ráð. Það er svo
að ég er hrifin af strák sem á
heima hérna rétt hjá bænum.
Hann veit að ég er hrifin af hon-
um. Ég hef verið með honum eitt
kvöld og svo hef ég náttúrlega
talað oft við hann. En um daginn
var mér sagt að hann væri með
annarri stelpu en hann sagði mér
að hann væri ekki með neinni,
og ég trúði honum. Á ég að spyrja
hann að því eða bara láta hann
flakka, en ég gæti það varla.
Viltu segja mér hvað ég á að
gera. Án útúrsnúninga.
Anna Dísa.
Bíddu og sjáðu hvað sctur,
þangað til þú færð öruggar sann-
anir fyrir því, hvort hann er með
stelpunni eða ekki. Sé hann með
henni og þú viljir endilega eiga
hann ein, er ekki annað ráð fyrir
hendi en að gera honum tvo
kosti: að hann hætti að vera með
henni eða þú hættir við hann.
FLAMINGO
straujárnið
er létt og lipurt, hitnar og kóln-
ar fljótt og hefur hárnókvæman
hitastilli, hitaöryggi og hitamæli,
sem alltaf sýnir hitastigið. Fæst
fyrir hægri og vinstri hönd — og
þér getið valið um 4 fallega
liti: Króm, topasgult, opalblátt
og kóralrautt.
lpl€WmWÆt£f€*
hárþurrkan
- fallegri og fljótari
700 W hitaelement, stiglaus
hitastil 1 ing 0—80°C og nýi tur-
bo-loftdreifarinn skapa þægilegri
og fljótari þurrkun. Hljóðlát og
truflar hvorki útvarp né sjón-
varp. Fyrirferðarlítil í geymslu,
því hjálminn má leggja saman.
Auðveld uppsetning á herberg-
ishurð, skáphurð, hillu o.fl., en
einnig fást borðstativ og gólf-
stativ, sem líka má leggja sam-
an. 2 fallegar litasamstæður,
bláleit (turkis) og gulleit (beige).
FLAMINGO
strau-úðarinn
er loftknúinn og úðar tauið svo
fínt og jafnt, að hægt er að
strauja það jafnóðum. Omiss-
andi þeim, sem kynnst hafa. Lit-
ir í stíl við straujárnin.
FLAMING0
snúruhaldarinn
er ekki síður til þæginda, því
hann heldur straujárnssnúrunni
á lofti, svo að hún flækist ekki
fyrir.
FYRSTA FLOKKS FRA
Ábyrgð og traust Sendum
varahluta- og við- um allt
gerðaþjónusta. land.
FDNIX
SÍMI 24420. SUÐURGÖTU 10. RVÍK.
PÖNTUN
-------Sendið undirrit. í póstkröfu:
. . . . stk. FLAMINGO hárþurrka . litur:
. . . stk. FLAMINGO borðstativ.............
.... stk. FLAMINGO gólfstativ .............
.... stk. FLAMINGO straujárn ... litur:
. . . . stk. FLAMINGO úðari .......... litur:
... stk. FLAMINGO snúruhaldari ............
N a f n : ..................................
Heimili: ...................................
Til: FÖNIX s.f., Pósthólf 1421, Reykjavík.
kr. 1115
kr. 115
kr. 395
kr. 495
kr. 245
kr. 110
50. tbi. VIKAN 7