Vikan


Vikan - 15.12.1966, Side 21

Vikan - 15.12.1966, Side 21
að draga bílana yfir með uxum. Svo var gert. Hann tók magnet- una af og varði vélina, hinir létu magnetur sínar kyrrar en vöfðu einhverju um vélarnar. En God- ard var bráður á sér að vanda og lét draga hollenska bílinn ógæti- lega yfir klungur í fljótsbotnin- um, svo aftur hásingin skekktist og annar afturöxullinn bognaði. Bizac og Collingon reyndu að laga skemmdirnar, en du Taillis, sem um þetta leyti var afar illa haldinn af hitasóttinni, var ekki fyllilega ánægður með árangur þeirra. En þarna megin árinnar var fastari jarðvegur og þeim gekk greiðlega þar til kom að foksandinum. Þá festi Cormier sig, og það tók eina klukkustund að losa hann. Eftir það gekk allt vel út yfir landamærin, þar sem höfðinglega var tekið á móti þeim. Le Matin hafði fengið sér- staka undanþágu fyrir leiðang- ursmennina, sem fríaði þá við venjulegu landamæra mála- stappi, svo þeir þurftu ekki ann- að en að gefa hátíðlegt loforð um að fjarlega örugglega öku- tækin úr Rússlandi aftur, úr því þeir borguðu ekki toll af þeim. Du Taillis játaði, að það væri tilgangur ferðarinnar, og þar með var þeim heimiluð innganga í rússneska keisardæmið. Þeir fengu sérstakt leyfi til að bera tvær pístólur, og voru hvattir til að hafa þær áberandi uppi við, og ef tilefni gæfist, að skjóta þá fyrst en spyrja ekki fyrr en á eftir. Á þessum tíma léku glæpa- menn lausum hala í Síberíu. Þeir fengu ekki bensínið sitt í Kiakhta, fremur en Borghese prins. Hins vegar komust þeir í samband við annan kaupmann, sem lumaði á nokkru bensíni og gátu búmmað út úr honum 300 lítra upp á endurgjald úr væntan- legri bensínsendingu síðar meir. Það var Cormier, sem að nafn- inu til stóð fyrir þessari samn- ingagerð, en þftö' var einmitt svona lagað, sem Godard kunni öðrum mönnum betur, svo hann fór með drjúgan hlut frá borði þrátt fyrir varfærni Cormiers. Þetta, ásamt öðru, sem gefa þurfti góðan gaum, svo sem ó- heyrilegum gistireikningum, sem þeim var réttur þegar að brott- förinni kom, dvaldi fyrir þeim fram eftir degi, svo það var ekki fyrr en drjúgri stundu eftir há- degi, að þeir lögðu af stað. Þeir höfðu ekki ekið nema svo sem fimm kílómetra, þegar þeir voru stöðvaðir. Þarna var lagt á borð undir laufkrónum trjánna og fólk í veizluskarti: Leiðangursmönn- um var boðið til brúðkaupsfagn- aðar. Godard lét ekki bjóða sér oft, heldur gaf sig af miklum móði í dansinn. Longoni fór að dæmi hans. Collignon játaði, að honum þætti góður bjór, og sat bráðlega í flöskuhaug, sem stækkaði stöð- ugt. Það uppgötvaðist einnig, að Longoni var mikið fyrir mjólk, og honum var borinn hver kann- an á fætur annarri. Cormier sat gneypur í bílnum og hafði ekki hendur af stýrinu, en Bizac vakkaði í kring um farartækin og hugði að einu og öðru í sam- bandi við þau. Du Taillis reyndi af sínum veika mætti að taka þátt í gleðinni. Þeir dvöldu þó ekki lengi, heldur héldu áfram upp í fjöllin og létu þar fyrirber- ast um nóttina. Næsta dag fór allt tíðindalitið. Þriðja daginn, þegar þeir komu til Missowaya, beið þeirra skeyti frá Borghese, þar sem hann var- aði þá við að fara kringum Baikalvatn á landi, heldur taka ferju ef mögulegt væri. Það var leyfilegt, samkvæmt reglum leið- angursins. Engin ferja hafði reglulegar ferðir yfir til Irkutsk, en þess í stað fóru félagarnir með lest og það kostaði 24 rúblur, en farið með ferjunni hefði kostað 300. Þeir komu til Irkutsk að kvöldi 3. júlí, rétt á hæla Borg- heses, sem hafði farið þaðan um morguninn. Borghese hafði gengið sæmi- lega til Verkhne-Udinsk, sem var næsti áfangi hans út frá Kiakhta. Þar var heldur ekki það bensín, sem hann átti von á. Kaupmaður borgarinnar lét þá hafa 50 lítra, allt sem hann átti, en sagði um leið, að þorpsbúarnir yrðu þá að ganga skítugir um sinn — þeir notuðu bensínið eingöngu sem hreinsiefni. Þarna skifti Guiz- zardi um dekk í fyrsta sinn í ferðinni, — en aðeins eitt. Næsta dag lögðu þeir aftur upp, nú um land, sem hafði tekið járnbrautir í þjónustu sína, og brýrnar, sem þeir þurftu að fara um, báru þess merki að hætt var að hirða um þær. Ein brúin var alveg brot- in niður, og þar fengu þeir hesta til að draga bílinn yfir. Það tók þrjá tíma allt í allt, en þeir voru líka nokkrum metrum nær París á eftir. Nú voru þeir komnir að Baikal vatni. Það var talið óhugs- andi að komast kringum það, svo samkvæmt ferðareglunum var fyllilega lögmætt að fara yfir það á ferju. Borghese komst að því, að það gekk engin ferja reglulega yfir til Irkutsk, og beit þá í sig að aka í kring, hverju sem tautaði. í Missowaya fengu þeir loks bensínið og olíurnar, sem þeir höfðu svo lengi átt von á. Og föstudaginn 28. júní lögðu þeir af stað. Það var ekki svo mikið sem slóði meðfram vatninu, nema þar sem troðningar voru innan einstakra byggðarlaga — en Baikalvatn er að flatarmáli á stærð við Belgíu. Leiðin var þakin háu, djúpu grasi og fölln- um trjám, svo þeir urðu að taka á sig króka, og landið var víða vott og erfitt fyrir bílinn. Þarna voru allar brýr ærið hrörar, og þeim varð ljóst að fyrr eða síð- ar myndi draga til tíðinda. Þeir höfðu þann háttinn á, að kanna brýrnar fyrst á fæti, en aka svo rösklega að þeim og halda jöfn- um góðum hraða yfir, til þess að þunginn hvíldi sem skemmst á hverjum einstökum planka. Og einu sinni, þegar þeir þeystu þannig yfir brú, heyrðu þeir tvo snögga skelli, meðan Italan var yfir miðjum straumnum, og þeg- ar yfir kom, sáu þeir að miðjan var gersamlega fallin úr brúnni. — Jæja, sagði prinsinn, — þá verður ekki aftur snúið. Næsta brú var sundur að einum þriðja. Ógerlegt að komast yfir hana. Þeir leituðu að vaði og fundu leið niður að ánni fyrir bílinn. Þar sat skógarhöggsmaður fram- an við kofa sinn og var að reima á sig stígvélin. — Dobro utro, sagði hann. — Dobro utro, tók prinsinn undir. — Geturðu vísað okkur á vað? — Það er ekkert vað hér, litli faðir. Mishika er mannhæðar- djúp. Þarna er bátur. Hann benti á agnarlítinn bark- arbát. Það hefði þurft einn fyrir hvert hjól Itölunnar. — Hvernig komið þið skepn- unum yfir? — Syndandi. — Hvernig myndir þú koma bílnum yfir? Skógarhöggsmaðurinn hugsaði sig um nokkra hríð og svaraði svo: — Það væri hægt að laga brúna. — Er það? Eru hér menn, sem gætu það? — Allir geta lagað brýr. Og nóg er af spýtunum. — Hvað tekur það langan tíma? — Sex menn, ein vika. Barzini tókst allur á loft. Hann sá fyrir sér fyrisagnirnar: ítalsk- ir leiðangursmenn brúa ár í Sí- beríu. En Borghese hristi höfuð- ið: Ég hef fengið fréttir af þrem- ur stórbrúm brotnum framundan, svo ekki sé minnzt á þær minni. Við snúum við, en förum samt kringum Baikal vatn á landi. Þú skalt fá enn betri fyrirsögn. Tveim dögum síðar fóru þeir yfir Mishika — á brú. Það var stór járnbrú, töluvert lengri en sú sem þeir urðu að hverfa frá; þeir óku hægt og hlógu eins og skólastrákar. Ekki smíðuðu þeir brúna. Þeir fengu hana bara lánaða, og hundrað aðrar, hjá Trans-Síberíu járnbrautinni. Þetta var ekki sem þægilegust ferð, því önnur hjól- in voru innan við teinana en hin utan við þá, óþægilega nærri brúninni á köflum, og bíllinn lyftist og hneig þegar hann fór upp á þverspýtumar undir tein- inum og aftur niður á milli þeirra. Og nú vom fjórir í bílnum, sá fjórði var lögreglumaður með rautt flagg, ómissandi maður, því það var hann, sem stöðvaði járn- brautarlestirnar. Borghese hafði fengið formlegt leyfi til að aka á teinunum, og lagði nú af stað aftur eftir nákvæma rannsókn á áætlun lestanna, því þeir urðu að reikna út hvar þeir myndu verða að fara út af teinunum til að tefja ekki lestina. Þeir gátu ekki farið hraðar en 10 mílur á klst. vegna öldugangs- ökulagsins. Og upp úr níu um morguninn fóru þeir út af tein- unum til þess að lestin frá Miss- owaya kæmist fram hjá. Þeir fóru þar sem möguleiki var að komast hliðargötu og aftur upp á teinana nokkru lengra. Það var þægilegt að aka leirgötuna aftur eftir hoppið á járnbrautinni, en lögreglumaðurinn var ekki glað- ur. Og þegar þeir komu að einni brú enn, sem leit ekkert ver út en allar hinar, stökk hann ofan af bílnum. Prinsinn gekk út á brúna og settist síðan aftur upp í, við hlið Guizzardi, sem eins og venjulega átti að aka yfir brúna. Og Guizzardi gaf í. Brúin riðaði óþægilega, en það var ekki ó- vanalegt og reglan var að stöðva aldrei úti á brúnum. Svo sviku plankarnir undir afturhjólunum. Guizzardi missti af benzíngjöf- inni við hnykkinn. Bíllinn féll niður að aftan og braut undan sér í áttina að framhjólunum. Svo féll Italan í gegn að aftan. Vænn raftur kræktist undir fram- fjaðrirnar og hélt, — en bíllinn hélt pendúlhreyfingunni áfram, afturendinn niður og fram á við, framendinn upp og aftur á við, aðeins koparluktirnar að framan upp yfir brúargólfið. Borghese greip í heilan planka þegar bíllinn hrapaði. Hann varð á milli mælaborðsins og plank- ans, þegar framparturinn sveifl- aðist aftur á bak, og allur þungi vélarinnar lagðist að honum. Með örvæntingarátaki tókst hon- um að breyta sveiflustefnu bílsins með herðunum og notaði þetta andartak til að láta fallast ofan í flauminn. Hann slapp með nokkur rifbein brotin. Guizzardi hékk með á fótunum í stýrinu með höfuðið niður. Barzini var í sætinu aftur í milli aukatank- anna. Þegar farangurinn skall á brúarplönkunum, brustu bönd- in sem héldu honum og farang- urinn skall fram á Barzini og keyrði höfuð hans ofan á milli hnjánna. Þar klúkti hann fast klemmdur og þegar vélin hall- aðist aftur á bak, gusaðist heit olían ofan yfir andlit hans. Guiz- zardi sveiflaði sér upp á við, náði taki á brúarplanka, sleppti fótunum af stýrinu og sveiflaði sér á land. Svo stökk hann út og rykkti Barzini lausum og upp á grunn. Lögreglumaðurinn hljóp eins og anzkotinn væri á hælun- um á honum í áttina að járn- brautarteinunum til að ná í sára- umbúðir eða að minnsta kosti líkbörur. Borghese og Barzini voru meiddir. En prinsinn var þegar Framhald á bls. 26 50. tbi. VIKAN 21

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.