Vikan - 06.04.1967, Qupperneq 6
olíuofnar
með og án skorsteins eru tilvaldir [ hverskonar
húsnæði, sem upphitunar þarf með. Hita frá 25—
100 fermetra.
Ennfremur fáanlegir sem olíuofn og ketill fyrir
nokkra miðstöðvarofna.
IIIIUÍ
Husqvarna olíuofnar gefa góðan og
jafnan hita, eru sparneytnir og útlitsfallegir.
útibú Laugavegi 33.
ALLTAF Á TALI
Kæri Póstur!
Ég er ekki í nokkrum vafa um,
að ég á fallegustu og beztu eig-
inkonu í víðri veröld. En auð-
vitað er hun ekki gallalaus frek-
ar en önnur mannanna börn.
Hún hefur til dæmis þann leiða
vana að tala reiðinnar ósköp í
síma. Ef ég reyni að hringja í
hana af skrifstofunni á morgn-
ana, þá er alltaf á tali hjá henni.
Og svo illa vill til, að tvær af
sex beztu vinkonum hennar hafa
ekki ennþá fengið sjónvarp, og
þess vegna eiga þær til að
hringja í miðri dagskránni og
trufla konuna mína. Hún virðist
ekki geta stillt sig um að tala
við þær, þótt illa standi á, og
þegar samtalinu lýkur loks, verð
ég að segja henni hvað hafi gerzt
í sjónvarpinu á meðan hún var
að tala. Fyrst í stað hafði ég
bara gaman af þessum galla
hennar, en nú er þetta byrjað að
fara svolítið í taugarnar á mér.
Birtu nú þetta bréf fyrir mig. Ég
ætla að lesa það upphátt fyrir
hana með viðeigandi glotti og
vita hvort hún skilur ekki sneið-
ina.
Beztu kveðjur.
Hamingjusamur.
Ef þú nærð ekki sambandi við
konuna þína símleiðis á morgn-
ana væri kanski ráð að hringja í
einhvern nágranna og biðja hann
að koma boðum til hennar. Ann-
ars þekkjum við enga konu, sem
ekki hefur ánægju af að tala við
vinkonur sínar í síma. Og ef þú
lítur í eigin barm: Talar þú aldr-
ei í síma við kunningja þína?
Þú gerir það kannski í vinnu-
tímanum á skrifstofunni. Ef kon-
an þín hefur engan galla annan
en þann að tala heldur mikið í
síma, þá áttu áreiðanlega beztu
eiginkonu í víðri veröld.
BANNAÐAR BÍÓMYNDIR
Kæri Póstur!
Ég fór síðastliðinn laugardag í
Háskólabíó, en þá var þar sýnd
mynd bönnuð fyrir börn. Það var
lögregluvörður til þess að engin
börn undir 16 ára aldri kæmust
inn. En hvað skeður? Þegar ég
kem inn sé ég tvo stráka 13 ára
sem ég þekki vel, þó að það væri
tvöfaldur vörður, lögregla og
dyravörður. Hvernig er eigin-
lega með þessa löggæzlu hérna?
Þarf lögreglu til þess að standa
yfir dyravörðunum til að þeir
framkvæmi skyldu sína og dugar
ekki til?
Virð ing ar f yllst,
Ein sextán ára.
Þegar bæði lögregluþjónn og
dyravörður standa við dyrnar
gera þeir áreiðanlega skyldu
sína og krefjast nafnskírteinis,
þegar þeim finnst ástæða til
þess. En margir unglingar eru
bráðþroska nú á dögum og auð-
vitað hljóta alltaf einhverjir að
sleppa, sem ekki hafa náð rétt-
um aldri. Hins vegar hefur kvik-
myndaeftirlitið oft verið gagn-
rýnt fyrir hvaða myndir eru
bannaðar og hvaða ekki, og sú
gagnrýni hefur í mörgum tilfell-
um verið á rökum reist.
TÖKUBARN FRÁ VIETNAM
Kæri Póstur!
Margir eiga bágt í heiminum
og margir þurfa hjálpar við. Og
mikið gætum við fslendingar
hjálpað, ef við vildum og nennt-
um. Við eyðum milljónum í alls
konar grín, t.d. sportveiðar,
óþarfa bílaakstur, söfnun á mörg-
um sviðum. Og svo allt áfengið
sem við drekkum. Það er mesta
sóunin.
Ef mig langaði nú til þess að
taka að mér lítið barn frá Víet-
nam eða úr einhverjum flótta-
mannabúðum, því nóg er til af
slíku, hvert á þá að snúa sér? Eða
erum við íslendingar máski svo
6 VIKAN
14. tbl.