Vikan - 06.04.1967, Síða 47
fjólur af blómasölukonum, Þær
sögðu um hana
— Þegar Duse brosir, langar
mann til að lifa lífinu, og njóta
alltaf gleðinnar!
Hún vann sér inn milljónir
á hinum mörgu leikferðum sín-
um, en hún notaði sjaldnast pen-
ingana handa sjálfri sér. Hún
borgaði leikurum sínum gott
kaup, og mikill hluti peninganna
fór til að gera sýningarnar sem
bezt úr garði, og það var alger
nýjung í þá daga. Það sem af-
gangs var, notaði hún til góð-
gerðarstarfsemi og lagði eitthvað
svolítið upp til elliáranna. Hún
hætti að leika, þegar hún varð
fimmtug og kveðjusýninguna
hélt hún í Vín; það var í
skemmtilegum gleðileik eftir
Goldoni. Engan grunaði þá að
hin káta veitingakona væri hel-
sjúk, svo dauðveik að hún gat
varla staðið upprétt á sviðinu.
Það var ekkert lát á lófaklapp-
inu eftir sýninguna, og sviðið
fylltist af blómum, þar á meðal
fjöldinn allur af fjóluvöndum,
vöfðum silkiböndum í ítölsku
fánalitunum. La Duse kvaddi á-
horfendur, tárin runnu niður
kinnar hennar, en það varð eng-
inn var við það að hún varð að
halda sér fast í stól, sem var
falinn bak við tjaldið. Aftur og
aftur hvíslaði hún til meðleikara
sinna:
— Basta, non ne posso pui.
Þetta er nóg, ég get ekki meirá.
í mörg ár fór hún huldu höfði.
En þegar fyrri heimsstyrjöldin
brauzt út, kom hún allt í einu
fram við vígstöðvarnar í Udine,
hún var ítölsk af líf og sál og
vildi hjálpa til af fremsta megni.
Smávaxna, föla leikkonan, gekk
frá einu sjúkrarúminu til ann-
ars, reyndi að hafa ofan af fyrir
þeim særðu, og mörgum hjálp-
aði hún yfir erfiðustu stundirnar.
Hún fylgdi líka mörgum hinna
föllnu til síðustu hvílu, hún var
sorgbitin, ítölsk kona, fáir vissu
að þar fór Eleonora Duse. Hún
seldi allar eigur sínar, til að
hjálpa bágstöddum, jafnvel leik-
búninga sína og bækur lét hún í
sama tilgangi. Að lokum seldi
hún skrautgripi og minjagripi,
sem hún hafði þegið að gjöf frá
þakklátum aðdáendum. Hún
ferðaðist um ftalíu þvera og
endilanga.
Kvöld nokkurt var hún að bíða
eftir lest í Udine, ásamt nokkr-
um konum úr Rauða krossinum,
þá fór hópur hermanna framhjá.
Þeir hrópuðu húrra fyrir manni
sem gekk meðal þeirra, manni
sem leit á stríðið sem ævintýri.
Án þess að líta upp hvíslaði Eleo-
nora Duse:
— d’Annunzio....
Þegar stríðinu lauk var hún
búin að tapa því fé, sem hún
Sterkt nýtt vopn
í baráttu yðar gegn
tannskemmdum
HIÐ NYJA GIBBS FLUOR TANNKREM STYRKIR TENNUR YOAR
GEGN SYRUM OG VERÐUR AHRIFA VART INNAN 21 DAGS:
Um leið og þér byrjið að bursta tennurnar með Gibbs
Fluor tannkremi verði þær ónæmar fyrir skaðlegum
áhrifum munnvatnssýranna. Allir vita að sýrur valda
tannskemmdum.
Gibbs Fluor tannkrem styrkir glerung tannanna og
gefur þeim meira mótstöðuafl gegn skaðlegum sýrum.
Eftir þrjár vikur fer að gæta áhrifanna og þá getið þér
varið tennurnar betur en nokkru sinni fyrr.
Hin leynilega Gibbs formúla sem styrkir glerung
tannanna táknar stórkostlega framför á sviði tannvarna,
þess vegna er Gibbs Fluor tannkrem sterkasta vopnið
í baráttu yðar við tannskemmdum. Þess vegna ættuð
þér að byrja að nota Gibbs Fluor tannkrem strax í dag.
Eftir 21. dags notkun Gibbs Fluor tannkrems,
kvölds og morgna, hafa tennur yðar öðlast þann
styrkleika, sem nauðsynlegur er gegn skaðlegum
áhrifum sýranna.
Hvernig Virkar Gibbs Fluor?
Gibbs Fluor inniheldur efnasamsetningu sem hefur
styrkjandi áhrif á glerung tannanna, sem nefnist
“stannous fluoride”, sem ekki er hægt að nota í
venjulegt tannkrem.
Það þurfti fremmstu og reyndustu tannkremafram-
leiðendur Bretlands til að uppgötva formúlu þá, sem
Gibbs Fluor tannkremið byggist á. Um leið og þér
byrjið að nota Gibbs Fluor tannkrem virka efni þess á
tvennan hátt, til að minnka upplausnarhættu glerung
tannanna, svo bæði “stannous” og “fluoride” hafa
þýðingarmiklu hlutverki að gegná.
Einfaldar reglur, sem tryggja
heilbrigðar tennur
Það eru tvær grundvallarreglur, sem
tryggja heilbrigðar tennur:
(l) Burstið tennumar reglulega tvisvar á dag.
(2) Farið til tannlæknis tvisvar á ári.
Munið að regluleg tannhreinsun er
undirstaða heilbrigðra tanna og góms,
hreins og fersks munns. Með Þvi að bursta
tennurnar vel fjarlagið Þér mat, sem annars
myndar skaðlegar sýrur. Burstið upp og
niður, einnig bak við tennurnar,—
verið vandvirk.
Farið roghilega til tannlæknis, Það sparar
yður óÞægindi og sársauka. Heilbrigðar
tennur eru dýrmæt eign: Þær auka gott
heilsufar, vellíðan og fegurð. Hirðið
Því vel um tennur yðar.
Látið fjölskyldu yðar byrja
að nota
Gibbs Fluor
________TANNKREM
J Gíbbsfluor^e
X-GF 2/ICE-P65S
14. tbi. VIKAN 47