Vikan - 19.10.1967, Blaðsíða 6
með
NIVE A - Ultra-Cremi
eruð þér
alltaf við
öllu búin!
NIVEA-Ultra-Crem verndar
hörundiS — einmitt á velurna.
Allt hörund. Alla daga. Auk þess
er NIVEA nœrandi fyrir hörundiö.
NIVEA-Ultra-Crem veitir
hörundinu þa3, sem þaS þarfnast
til aS haldast stöSugt hreint,
ferskt og heilbrigt, NIVEA-Ultra-
Crem býr ySur sannarlcga
undir „vetrarhörkurnar".
SMÁVOPN OG KÆNSKUBRÖGÐ.
Milly, Molly, Mandy, via Póstur-
inn!
Stúlkur mínar! Það má sjá á
bréfi ykkar (í Vikunni 7. sept.)
að þið eruð heitar út í okkur
piltana, þó að ástæðan sé óljós.
Þið talið um að þið standið höll-
um fæti gagnvart okkur. En ég
segi bara: Guði sé lof, að þið
hafið ekki náð algerum yfirráð-
um ennþá. Við þörfnumst hvers
annars, því verður ekki breytt.
Þið nefnið sem dæmi stúlku, sem
er hálfdauð úr ást og bíður og
nagar á sér neglurnar í þeirri
von að sá útvaldi veiti henni
eftirtekt. Ja, fussum svei! f þess-
um efnum stendur kvenþjóðin
svo sannarlega ekki höllum fæli.
Náttúran hefur gefið ykkur ótal
smávopn og kænskubrögð, sem
þið notið venjulega óspart til
þess að beina augum drauma-
prinsanna í rétta átt. Oftast er
þetta gert á svo dulbúinn hált,
að við tökum ekki eftir því. —
Þegar við svo loksins krækjum
í dömuna, erum við svífandi í
skýjunum af monti yfir tækni-
legri kvennafarsgetu okkar. En
daman hlær í laumi að öllu sam-
an!
Þau litlu samskipti sem ég hef
haft við „veikara kynið“ hafa
sannað mér, að karlmaðurinn
leikur oftast hlutverk bráðarinn-
ar, þó að það sé auðvitað ekki
föst regla.
Rekið þetta ofan í mig ef þið
getið!
Dýrlingur (Eintak af
„sterkara“ kyninu).
Sjálfur Dýrlingurinn svarar
sem sagt Milly, Molly og Mandy,
og er ekki með neina hálfvelgju
eða kveifarskap. Þetta ætlar að
verða allra skemmtilegasta rifr-
ildi. Vonandi svara stúlkurnar
þrjár fyrir sig og láta ekki Dýr-
linginn hafa síðasta orðið, þótt
hann telji sig af hinu „sterkara“
kyni.
STÓR BRJÓST OG SMÁ.
Kæri Póstur!
Ég var að enda við að lesa 38.
tölublað af Vikunni og bréfið frá
„Einni 14 ára“ (fyrirsögnin var
„Og brjóstin vaxa“) vakti athygli
mína. Þar segist þið hafa ætlað
að hjálpa henni, ef aldur hennar
hefði verið hærri.
Nú hef ég við sama vandamál
að glíma. Hið eina, sem maður-
inn minn setur út á vöxt minn
er brjóstastærðin (eða smæðin
væri kannski réttara), svo ég hef
eðlilega mikinn áhuga á að fá
þau stækkuð, ef það er hægt. Ef
um læknismeðferð er að ræða,
vildir þú þá vera svo góður að
gefa mér upp nafn eða nöfn
þeirra lækna, sem gera þetla,
svo að ég þurfi ekki að skrifa
aftur til að fá þær upplýsingar.
Aldur minn er áreiðanlega
nógu hár, og ég er þrigg'ja barna
móðir.
Þakka þér allt gott, bæði gam-
alt og nýtt.
Ein 35 ára.
Sagt heíur verið frá því í blöð-
unum, að kvikmyndastjörnur og
tildurdrósir livers konar hiki ekki
við að gangast undir uppskurði
til þess að auka fegurð sína. Það
er sagt, að þær láti blása út á
sér brjóstin, skipta um andlits-
húð, mjókka lappirnar og svo
framvegis. Okkur er ekki kunn
ugt um, að slíkar aðgerðir hafi
farið fram hér á landi, sem
betur fer. Læknarnir okkar hafa
þarfari verkefnum að sinna. Auk
þess er alls ekki í tízku lengur
að vera brjóstamikil. Twiggy,
sem nú er íyrirmynd kvenfólks
hvar sem er í heiminum, hún
er nálega brjóstalaus.
NAFNLAUSUM STÓRMENNUM
ÞAKKAÐ.
Kæri Póslur!
Ég leyfi mér hér með að fara
fram á, að þetta bréf verði birt,
því að öðru vísi verður þeim
víst ekki þakkað þessum nafn-
lausu, göfugu stórmennum, er
svo kænlega réðu niðurlögum
Keflavíkursjónvarpsins. Því vott-
ast hér með þakklæti mitt og
margra annarra. Hvar hefði þelta
endað, ef þessir réttsýnismenn
hefðu ekki kippt í taumana, þeg
ar mest reið á?
Ég, gjörspilltur táningurinni,
búinn að fylgjast með Perry Ma-
son, Bonanza og öðru slíku i
fleiri mánuði... nei, reyndar:
nú á þetta ekki við lengur. Mikl-
ar breytingar til hins betra hafa
orðið síðan hinar hryllilegu, sið-
spillandi og forheimskandi út-
sendingar Keflavíkursjónvarps-
ins voru numdar brott frá sjón-
um okkar Reykvíkinga. Þið, Suð-
urnesjamenn! Munið að freist-
ingarnar eru til þess að standast
þær. Horfið því á Harðjaxlinn,
Dýrlinginn og annajð af hinu
mennlandi efni, er íslenzka sjón-
varpið hefur upp á að bjóða.
Kærar þakkir!
Táningur.
6 VIICAN 42- tbl-