Vikan


Vikan - 19.10.1967, Blaðsíða 16

Vikan - 19.10.1967, Blaðsíða 16
Þegar ég hóf embættisstörf, var á sjúkrahúsinu ljóshærð hjúkrunarkona, sem allir sjúklingar elskuðu og dáðu. Þegar þeir heyrðu hana ganga um, risu þeir upp í rúmum sínum, réttu fram hendurnar eins og börn og kölluðu: „Systir, systir, komdu!“ Það slétt- aðist meir að segja úr hrukkunum á fýlupokun- um, sem allt í veröldinni er andstætt, geðvonzkan hvarf og þeir gerðu sér far um að láta að vilja henn- ar. Ekki svo að skilja að henni væru skipanir tiltæk- ar á tungu, en brosið á vörum hennar kom þeim til að fara eftir öllu sem hún sagði. Og svo þessi augu, næstum svartblá, hverjum sem hún leit til, fannst hann kominn upp í sjöunda himinn. Einu sinni spurði ég sjálfan mig: „Iívaðan kemur það, þetta vald?“ Þegar hún horfði á mig', leið mér nákvæm- lega eins og sjúklingunum. Ekki lá í því minnsta undir- hyggja frá hennar hlið, hvorki gagnvart mér né öðrum, því þessi stúlka girntist ekki nokkurn mann. Það var blátt áfram eitthvað aukreitis í brosinu á vörum hennar og í augunum dökku, sem olli því að þau sögðu meir en hún sjálf ætlaðist' til. Svo var hún elskuð og dáð, að jafnvel hinar hjúkrunar- konurnar sýndu henni hlýju og ástúð. Yfirhjúkrunarkonan var um fertugt, grindhoruð höfðingjasleikja og súr í sinni, hataði sjúklinga og læknalið, allt og alla, nema kannski kaffi, saltstengur og kjölturakkann sinn. En jafnvel hún var hrif- in. Hún, sem aldrei hugsaði til ungrar stúlku öðru vísi en með öfund, kom góðlátlega fram við þessa ungu hjúkrunarkonu. Og þá var ekki um læknana að tala. Hver einasti læknir, sem hún aðstoðaði við sjúkrabeð, þóttist hafa himin höndum tekið. Sjálfur yfirlæknirinn okkar, sem hirti minna um þjáningar sjúldinganna, en hvernig búið væri um rekkj- ur þeirra, jafnvel hann skipti sér minna af því, ef það var hún, sem sat á rekkjustokknum. Þessi aldraði prófessor, sem útskrifað hafði fjölda nemenda og fundið upp læknislyf við mörgum sjúkdómum, lézt í fangabúðum, þar sem málaliði frá nazistum píndi hann dag- lega til líkamsæfinga. Eitt sinn skipaði hann honutn að liggja á kviðnum með hendur og fætur útrétta. Jafnskjótt sem hann var lagstur, skipaði hann honum að rísa á fætur. Af því honum fannst hann ekki nógu viðbragðsfljótur, spark- aði hann í hann með járnuðum stígvélum, þar til hann hafði molað á honum fingurna. Af því fékk hann blóðeitrun og dó. Hverju á ég að bæta við------------þessa stúlku leizt mér vel á, eins og öllum hinum. Og þess skal jafnframt getið, að henni leizt einnig vel á mig. Vitaskuld geta all- ir sagt sem svo. En hinir voru ekki eins frakkir. Ég var frekastur, og mér kvæntist hún. n. Hvernig þá? Síðla dags kom ég út úr borðsalnum. Mætti Dínu. Ég spurði hana: „Eigið þér annríkt?" ,,Nei, alls ekki.“ „Hvað hefur þá komið fyrir í dag?“ „Ég er laus frá spítalanum í dag,“ svaraði hún. „Hvernig ætlið þér að nota leyfið?“ „Það er ég ekki farin að hugsa um ennþá.“ Ég hélt áfram: „Leyf- ist mér EITUR að gefa yður gott ráð?“ „Með ánægju, herra læknir/' „En með því skilyrði,“ bætti ég við, „að ég l’ái greiðslu i'yrir ráðlegg- ingu mína. Nú til dags fæst ekkert ókeypis.“ Hún leit á mig og hló. „Ég er með afbragðs uppástungu —- ja, eigin- lega tvær. Önnur er sú, að við förum í leikhúsiðý hin að við förum í óperuna. Og ef við hröðum okk- ur, höfum við tíma til að fara inn á kaffihús fyrst. Viljið þér þetta, systir?“ Hún kinkaði kolli vingjarnlega. „Hvenær eigum við að fara?£ „Þegar yður sýnist.“ „Ég skal vera tilbúin undir eins, og svo förum við.“ „Hvenær sem þér komið, er mér ekkert að vanbúnaði/ sagði hún. Síðan fór hún upp í herbergi sitt og ég til minna starfa. Þegar ég kom inn til hennar stundu síðar, var liún búin að klæða sig um. Mér fannst hún hafa gjörbreytzt og var nú enn yndislegri en í einkennisbúningi stofnunarinnar, og hafði mér þó sannarlega fundist hún álitleg í honum. Eg fékk mér sæti í herbergi hennar og virti fyrir mér blómin á borðinu og hjá rekkju hennar. Ég spurði hvort hún vissi hvað þau hétu og nefndi hvert blóm með nafni á þýzku og latínu. En svo fór ég að verða smeykur um, að einhver fár- veikur sjúklingur kynni að verða lagður inn og kallað yrði á mig, svo ég reis á fætur og bað hana að hraða sér. Eg sá, að henni þótti miður. „Hvað leiðist yður?“ spurði ég. „Ó, ég var svo viss um, að lækn- irinn myndi vilja þiggja eitthvað.“ „Nú skulum við fara,“ sagði ég, „en ef þér kærið yður um, kem ég inn til yðar á eftir og þá skal ég með ánægju þiggja allt sem þér bjóðið mér og biðja um meira.“ „Má ég reiða mig á það?“ og ég sagði skal ég jafnvel biðja ,Því heiti ég. Og eins um meira, ansaði ég. Við gengum út úr garðinum og ég sagði við húsvörðinn: „Sjáið þér hana systur hérna, — ég er að nema hana brott frá stofnuninni.“ Húsvörðurinn leit vinjarnlega til okkar og sagði: „Allt í lagi, herra læknr, — allt í lagi, Dína systir!“ Við fórum út á biðstöðina. Þarna kom strætisvagn, hann var fulhir. Annar kom og hann ætluðum við að taka. Dína steig upp i vagninn. Þegar ég var á leiðinni á hæla henni, sagði vagnstjórinn: „Allt fullt.“ Hún fór lit úr vagninum og beið hins næsta með mér. Þeir fara með rangt mál, er segja að engum skyldi sárna þótt strætisvagn eða stúlka fari, því alltaf komi annar vagn og önnur stúlka til. ITvað stúlkuna snertir, — haldið þið kannski að önnur sé til eins og Dína? Og að því er vagninn varðar, — þá hef- ur mér alltaf leiðst öll bið. Annar strætisvagn kom, sem átti leið út úr borg- inrii. Hann var nýr, rúmgóður og tómur. Við geng- mn inn. Á svipstundu (eftir lclukkustund sam-, kvæml úrinu) var vagninn kominn á leiðarenda, og við vorum stödd á fögrum stað með fjöl- mörgum görðum en fáum húsum. Við gengum eftir veginum, spjölluð- um um spítalann og sjúklingana, um yfirhjúkrunarkonuna og læknana og prófessor- inn sem
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.