Vikan


Vikan - 19.10.1967, Blaðsíða 7

Vikan - 19.10.1967, Blaðsíða 7
P.S. Væri svo ekki athugandi aö safna undirskriftum um tak- mörkun erlendra ferðamanna á íslandi? VEÐMÁL. Pósturinn, Vikunni! Viltu skera úr veðmáli? A. heldur því fram, að við úthlutun Oscars-kvikmyndaverðlaunanna sé dregið úr nokkrum nöfnum, án þess að verðlaunahafinn sé ákveðinn fyrirfram. En B. heldur fram hinu gagnstæða, þ.e. að einn sé útvalinn af úthlutunarnefnd- inni til að hljóta verðlaunin. Hvor hefur rétt fyrir sér? AB. Okkur þykir afar ósennilegt, a'ð dregið sé um jafn mikilsvirt verðtaun og Oscars-verðlaunin. Nefndin hlýtur að ákveða liverju sinni hver skuli hljóta verðlaun- in, án þess að hlutkesti eða eitt- hvað slíkt komi til. Að öðrum kosti væri hrein hending hver fengi þau hverju sinni. Hins veg- ar er hugsanlegt, að nefndin sé ekki sammála um neinn e.instak- an og tveir eða fleiri hljóti jafn- mörg atkvæði. f slíku tilfelli er ef til vill gripið til hlutkcstis. Að okkar dómi vinnur B. því veðmálið . TVÖ BRÉF UM SKÓLABÚNINGA. Kæra Vika! Ég varð fegin í sumar, þegar ég sá, að farið var að ræða um skólabúninga og nauðsyn þeirra. Ég hef lengi verið þeirrar skoð- unar, að slíkir búningar séu mjög heppilegir og réttlátir gagnvart börnunum. Auk þess spara þeir stórfé hjá barnmörgum fjölskyld- um. Ég var að vona, að þeir yrðu teknir upp strax nú í haust, þegar skólarnir byrjuðu. En ekk- ert gerðist. Á maður að trúa því, að það sé vita gagnslaust að vekja at- hygli á þörfum málum í blöðun- um? Láta ráðamenn þjóðarinnar raddir almennings, sem koma fram í rabbdálkum blaðanna, sem vind um eyrun þjóta? Með þökk fyrir birtinguna. Vonsvikin húsmóðir. Kæri Póstur! Á fyrstu dögum jafnaðarstefn- unnar vildu margir útrýma fá- læktinni með því móti að skylda alla lit að ganga í eins fötum. Tilgangur hugsunar af þessu tagi er i sjálfu sér fallegur, en hann er svo óraunsær og barnalegur, að furðulegt hlýtur að teljast, að nokkrum manni skuli detta hann í hug. Ég hef sjaldan orðið eins hissa og um daginn, þegar ég sá, að verið var að ræða í blöðunum í fúlustu alvöru að skylda öll skóla- börn til þess að ganga í eins föt- um! Ég hef aldrei á ævi minni heyrt aðra eins fásinnu! Hvernig getur nokkrum fullorðnum manni dotlið þvílíkl og annað eins í hug? Halda menn að lífsgátan verði ráðin með einu pennastriki? Kæri Póstur! Hjálpaðu mér að kveða þennan draug niður. Einn sjálfstæður. Það kemur ekki oft fyrir, að okkur berist tvö bréf samtímis, sem bæði fjalla um sama efnið og þar sem bréfritarar eru full- komlega á öndverðum meiði um málefnið. En þetta kom sem sagt fyrir núna og bréfin birtast liér með. Það eru fleiri en ein og fleiri en tvær hliðar á hverju máli. Eftir þessi tvö ágætu bréf lætur Pósturinn liggja milti hluta álit sitt á skólabúningunum. Þó kæmi honum ekki á óvart, þótt bið vrði á því, að þeir yrðu tekn- ir í notkun. DANSKUR SKILDINGUR. Kæra Vika! Ég á pening, sem mig langar mjög mikið til að vita eitthvað meira um. Þessi peningur gæti verið úr silfri. Oðrum megin er kóróna og undir henni er útflúr, sem gæti verið að táknaði stafinn 4 og utan um þetta eru stafirnir Dominus Miht Adiutor. Á hinni hliðinni er kóróna og undir henni skjaldarmerki. Sitt hvor- um megin við skjaldarmerkið eru stafirnir B og H, og undir því er fíll. Stafirnir í hring eru XII Skilling Danske 1717. Gæti þetta verið ekta peningur? Og ef =vo væri er hann þá einhvers virði? Með fyrirfram þökk. Ó. G. Okkur þykir líklegt af lýsing- unni að dæma, að hér sé um danskan skilding frá árinu 1717 að ræða. Annars crum við illa að okkur í þessum fræðum. Ef einhver fróður myntsafnari les þetta, ætti hann að senda okkur línú. JJL VID EDUIH SAMMAIA „Hún er bœði faliegri °g fullkomnari“ CENTRIFUGAL WASH MODtU MED EINUM HNAPPI veljið þér þvottakerfið, og C.W. 620 Q ÞVÆR, (T) HITAR, (?) SÝÐUR, (?) MARGSKOLAR, (?) ÞEYTIVINDUR siii þvoii -iii im- Sápuskammtar settir í strax — vélin skolar Alveg þeim sjálfkrafa niður á réttum tíma hljóður P skoleffii Tekur sjálf inn sérstakt skolefni If BB10 ^v,v*r^» afbragðs ef þér óskið að nota það ■ BIBUICsU þeytivinding i nerkjaljósfestiiig Þarf ekki að festast niður með boltum III Nœlonhúðuð að utan — fínslípað, fllll ryðfrítt stál að innan 25 tenging SÍMI 2 4420 - SUÐURGÖTU 10 - REYKJAViK. Sendið undirrit. mynd af FONIX C.W. 620 með nánari upplýsingum, m.a. um verð og greiðsluskilmála NAFN ..................................—.................... HEIMILI .................................................... TIL Fönix S.f. pósthólf 1421, Reykjavík 42. tbi VIKAN 7
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.