Vikan


Vikan - 19.10.1967, Síða 36

Vikan - 19.10.1967, Síða 36
Ronson HÁRÞURRKA HEIMILANNA EINKAUMBOÐ: I. GUÐMUNDSSON & CO. H.F., REYKJAVlK 40 VIKAN 42- tbl- STJO RNUSPÁ*^ w Hrútsmerkið (21. marz — 20. apr(l): Þú heíur áhorfendur sem fara í taugarnar á þér, kannske geturðu vanið þá af glápinu. Sjúkur kunn- ingi þinn þarf mjög að hafa samband við þig. Þú hefur skyldum að gegna gagnvart honum. Nautsmerkið (21. apríl — 21. maí): Vinur fjölskyldunnar réttir þér hjálparhönd svo mikið og vel að þú áttar þig ekki almennilega strax. Þú ert dálítið seinn fyrir, en komdu fremur of seint heldur en koma alls ekki. Tvíburamerkið (22. maí — 21. júní): Þú verður mikið i umferðinni og skaltu treysta á eigin hæfni, viðbrögðum annarra er ekki treystandi. Hafðu stjórn á skapi þínu, reiði slævir aðeins dóm- greind þina. Heillatala er fjórir. Krabbamerkið (22. júní — 23. júlí): Reyndu að hafa öll þín mál á hreinu svo ekki verði hægt að bera neitt á þig sem þú kærir þig ekki um. Þú verður fyrir nokkurri stríðni, en þú verður að standa þig. Þú skemmtir þér á föstudag. §*r Ljónsmerkið (24. júlí — 23. ógúst): Líkur eru á að keppinautar þínir komi ekki heið- arlega fram við þig og ætli að svíkjast aftan að þér. Styrktu sambönd þín og gakktu vel frá samn- ingum, varastu ógreinilegt orðalag. Meyjarmerkið (24. ágúst — 23. september): Hafðu gát á skapi þínu, óhöpp geta alltaf átt sér stað og gera ekki boð á undan sér. Þú lendir í dá- lítilli klípu, af því að þú ætlaðir að hafa rangt við, en það komst upp um þig. Vogarmerkið (24. september — 23. október): ‘ Þú stofnar til nýrra kynna við persónu sem þér líst mjög vel á. Vandaðu þig við störf þín og Ijúktu þeim af á þeim tíma sem til þeirra er ætlaður. Eyddu kvöldunum heimavið. Drekamerkið (24. október — 22. nóvember): Þú færð fréttir sem þér finnast mjög óréttlátar, hvað þig snertir. Þú leitar aðstoðar ættingja þinna og þeir ganga frá mikilvægum málum fyrir þig. Gakktu hægt um gleöinnar dyr. Bogamannsmerkið (23. nóvember — 21. des.): Ósjálfstæði ákveðinnar persónu pirrar þig, en þú kemst samt ekki hjá því að afgreiða hana. Þú um- gengst fjölskyldu þína og ættingja óvenjumikið. Háttarlag þitt ber of mikilli sjálfselsku vott. £ Steingeitarmerkið (22. desember — 20. janúar): Þú hefur slakað á kröfum þínum um fullkomnun og finnur að þú hefur þroskazt mikið síðastliðna mánuði. Kunningjakona þín fer í langferð og muntu þurfa að afgreiða einhver mál fyrir hana á meðan. Vatnsberamerkið (21. janúar — 19. febrúar): Auktu ekki öðrum áhyggjum með vandamálum þin- um. Treystu á sjálfan þig og spenntu bogann ekki of hátt. Hafstu ekki neitt að sem valdið getur ást- vinum þínum gremju eða áhyggjum. Fiskamerkið (20. febrúar — 20. marz): Þú hefur vel til þess unnið að iétta þér upp og reyndu að láta aðra taka þátt í gleði þinni. Þú eyð- ir miklum tíma með gesti sem dvelur hjá þér um stundarsakir. Líkur eru á sjóferð.

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.