Vikan


Vikan - 19.10.1967, Side 45

Vikan - 19.10.1967, Side 45
bágt með svefn, hvorl hann væri ánægður með fæðið, skrifaði handa honum lyfseðla og. hrós- aði líkamsbyggingu hans. Sagði að maður með slíkan líkama væri viss með að verða fjörgam- all. Hann hlustaði á og grobbaði af sér. „Ef þér reykið, megið þér það gjarna,“ sagði ég. „Sjálf- ur reyki ég ekki og ef þér spyrð- uð um mitt álit, myndi ég segja að tóbaksreykingar væru böl og líkamanum skaðlegar. En séuð þér þeim vanur, vil ég ekki meina yður þær.“ Þannig gaf ég honum ýmsar tilslakanir, aðeins til þess, að honum liði vel. Með sjálfum mér hugsaði ég sem svo: Nú dekra ég þetta litla við mann, sem ég hefði annars ekki virt viðlits, og það eingöngu vegna þessa eina, sem ekki má nefna og ekki er hægt að gleyma. Og ekki nóg með það, ég vitja hans, rann- saka hann, til að reyna að kom- ast eftir, hvað hann hefir sótt til Dínu og Dína til hans. Og jafnframt því sem ég stunda hann, reyni ég að tileinka mér hreyfingar hans. Fyrst um sinn duldi ég þetta fyrir konu minni. En svo glopr- aðits það út úr mér og sagði sig sjálft. Hún hlýddi á, en virt- ist engan áhuga hafa fyrir því. Það var eiginlega sem ég vildi, en þó var ég ekki ánægður. Eigi að síður vissi ég vel, að ef hún hefði tekið því öðruvísi, hefði ég síður en svo verið ánægð- ari. Maðurinn hresstist fljótlega og að því kom, að hann færi af spítalanum. Þó dokaði ég við með hann þann dag og daginn þar eft- ir og ánýjaði fyrirmæli mín um að gera vel við hann, svo hann skyldi ekki gefa um að vera út- skrifaður sem fyrst. Þetta var á eftirstríðsárunum, og erfitt að útvega nægilegt fæði fyrir sjúkl- ingana, hvað þá handa þeim, sem voru í afturbata, ég tala nú ekki um fyrir heilbrigða menn. Og ég fór að gefa honum af mín- um eigin mat, af því sem bænd- urnir færðu mér. Hann át og drakk og var glaður, las dag- blöðin, gekk um garðinn, lék sér við sjúklingana og glettist við hjúkrunarkonurnar. Hann þyngdist og var sprækari en all- ir hinir, sem hjúkruðu honum, svo ekki var unnt að hafa hann lengur á sjúkrahúsinu. Ég lét gefa honum góða lokamáltíð og útskrifaði hann. Að máltíð lokinn kom hann til að kveðja. Mér varð litið á fitukeppina, sem héngu niður af hökunni. Augun lágu djúpt, eins og á konu, sem sagt hefur skilið við allt, nema át og drykkju. Ég stóð við skrifborð mitt og þóttist leita í skjölun- um, að einhverju sem hefði týnst. Því næst tók ég smápípu og athugaði hana rækilega. Meðan ég lét þannig, sem ég væri önnum kafinn, komu tvær hjúkrunarkonur -inn, önnur til að spyrja mig um eitthvað, hin til að kveðja „uppáhaldssjúkl- ing læknisins". Allt í einu sneri ég mér við, eins og ég myndi nú eftir að min væri beðið, og rak upp lágt undrunaróp eins og Dína, þegar hún verður þess vör, að einhver bíður eftir henni. Jafnframt leit ég á sjúklinginn með undirhökuna, sem var nú á förum og sagði við sjálfan mig: „Þú veizt ekki hver ég er, en ég veit hver þú ert. Þú ert sá, sem leitt hefur ógæfu yfir mig og eyðilagt líf konunnar minnar.“ Bræðin ólgaði í mér, ég var svo reiður, að mig sveið í augun. Maðurinn rétti mér höndina og tók að stama fram þakkar- orðum, fyrir að ég hefði frelsað hann frá dauða og fært honum lífið á ný. Ég rétti honum fing- urgómana, hirðuleysislega og fullur fyrirlitningar, þurrkaði af þeim á sloppi mínum þegar í stað, líkt og ég hefði snert við úldnu hræi, og fór mína leið. Ég fann, að hjúkrunarkonurnar horfðu á mig og fannst sem þær vissu hvers vegna ég hagaði mér svona. Var þó engin ástæða til að halda það. Skömmu síðar sneri ég aftur til vinnu minnar, en var ekki samur maður. Ég fór upp í læknastofuna og bað starfs- bróður minn að gegna fyrir mig. Kvaðst vera kallaður til réttar- halds, að bera vitni í máli, sem ekki þyldi neina bið. Hjúkrun- arkona kom og spurði, hvort hún ætti að panta leigubíl. „Já, kær- ar þakkir, systir, gerðu það!“ Um leið og hún fór inn í síma- klefann, hljóp ég brott frá spítalanum eins og vitlaus mað- ur. Leið mín lá fram hjá krá og mér datt í hug að fara inn og drekkja sorgum mínum í áfengi, eins og sárreiðir menn komast að orði. Ég róaðist ögn og hugs- aði sem svo, að harmar koma og harmar fara og svoleiðis verður það einnig með það, sem angrar mig. En ég var ekki ró- legur nema stutta stund og þá hvarf ég aftur til sömu sorgar. Ég staulaðist af stað og gekk í eina eða tvær stundir, en stakk þá við fótum og sá, að ég hafði gengið í hring og var aftur kom- inn á sama stað. X. Ég kom heim og sagði konu minni frá. Hún hlustaði á og mælti ekki orð. Hjarta mitt fylltist reiði yfir að hún skildi sitja þarna þegjandi, eins og ekkert væri. Ég knýtti höfuðið niður í bringu, eins og hann hafði gert, þegar hann var að þakka mér, hermdi eftir rödd hans og sagði: „Ég þakka yður, herra læknir, fyrir að hafa frelsað mig frá dauða og fært mér lífið á ný“. Svo sagði ég við konu mína: „Svona var mál- rómur þessa náunga, og svona stóð hann.“ Þetta gerði ég til að sýna henni smán sína, hvílík hneisa það var, að hún skyldi hafa aðhyllst hann og gefið hon- um ást sína, áður en hún fann mig. Hún horfði á mig, eins og málefnið væri ekki þess vert að eyða á það orðum. Ég gaf nán- ar gætur að svip hennar, til að vita hvort ég sæi ekki vott af gleði yfir því, að þessi hengil- mæna var hress orðin. En ég sá engin gleðimerki nú, fremur en ég hafði séð minnsta hryggð- arvott, þegar ég sagði henni frá sjúkleika hans. Eftir tvo til þrjá daga var sárasti broddurinn horfinn og særði mig ekki framar. Ég stundaði sjúklingana, talaði við hjúkrunarkonurnar eftir þörf- um og hvarf heim til konu minnar þegar að loknu dags- verki. Stundum bað ég hana að lesa upphátt fyrir mig úr bók- um sínum, og hún lét það eftir mér og las. Ég sat, horfði á hana og sagði við sjálfan mig: „Þetta er andlitið, sem sléttaði úr hrukkum fýlupokanna og feykti gremjunni út í veður og vind hjá öllum, sem á það litu.“ Ég strauk mér rólega yfir andlitið og hélt áfram að horfa á hana. Og stundum buðum við kunn- ingjum okkar í kaffi eða kvöld- mat. Þá spjölluðum við um allt, sem var umtalsvert, og ég fann glöggt, að ýmislegt er til í heiminum, fleira en ástarharm- ar. Og ég gekk ánægður og ró- legur til rekkju. Nótt eina vitjaði maðurinn mín í draumi, hann var ögn veiklulegur — og hinn við- felldnasti. Ég skammaðist min gagnvart honum, fyrir að ég skyldi hafa hugsað illa til hans, og hét því, að gleyma kala mín- um í hans garð. Hann laut niður að mér og spurði: ,JHvað er það, sem þú villt? Þú óskar mér ills, bara af því ég hef verið í hendi þér.“ Daginn eftir voru tveir gest- ir hjá okkur í kvöldmat, kona og maður hennar, og féll okkur mjög vel við þau bæði. Var hann hinn mesti mannkostamað- ur, og hún hafði blá og fögur augu og fallegar augnabrúnir, hátt og gáfulegt enni og gullna lokka, er dönsuðu um höfuð henni. Rödd hennar var eins og konu, sem lokað hefir girndirn- ar inni í hjarta sér. Við sátum í þrjár stundir og tókum ekki eftir hvað tímanum leið. Hann spjallaði um heima og geima og hún hjálpaði honum með ljóm- anum í augum sér. Eftir að þau voru farin, sagði ég við konu mína: „Ég skal segja þér draum.“ „Draum,“ endurtók hún undr- andi og horfði á mig með hryggðarsvip. Svo hvíslaði hún aftur: „Draum?“ Ég er nefni- lega ekka vanur að tala um drauma, og ég held helzt að mig hafi ekkert dreymt í öll þessi ár. „Mig dreymdi draum,“ sagði ég, og í því varð ég skyndilega kvíðinn. Konan mín settist og hafði ekki augun af mér. Ég sagði henni drauminn. Axlir hennar kipptust til og hún tók að skjálfa. Allt í einu lyfti hún handleggjunum og vafði þeim um hálsinn á mér. Ég faðmaði hana að mér og þannig stóðum við í heitum armlögum full ástar, munúðar og meðaumkun- ar. En þrátt fyrir það vék mað- urinn ekki úr huga mínum, og ég heyrði hann segja sem svo: „Bara af því ég hef verið und- ir handarjaðri þínum, óskar þú mér ills.“ Ég losaði mig úr örmum konu minnar, og magnaður ömurleiki settist að sál minni Ég háttaði í rúm mitt og hugsaði um þetta í ró og næði, þangað til ég datt útaf og sofnaði. Morguninn eftir risum við úr rekkju og snæddum morgun- verð saman. Ég leit til konu minnar og sá, að svipur henn- ar hafði ekkert breytzt. Ég þakkaði henni í huganum fyrir að hafa ekki ávítað mig fyrir atferli mitt daginn áður. Á þeirri stundu sá ég fyrir sjónum mér allar þær áhyggjur og þrautir sem ég hafði valdið henni, síðan við giftumst. Ég minntist þess, hversu ég hafði sí og æ og hvernig sem á stóð, skapraunað henni, sært hana og móðgað, og öllu hafði hún tekið með þögn og þolinmæði. Hjarta mitt fylltist ástúð og blíðu til þessarar konu, er hafði liðið svo mikið fyrir mínar sak- ir, og ég hét því með sjálfum mér, að hætta öllum skapraun- um í hennar garð og sýna henni gott eitt. Það heit efndi ég í einn, tvo, þrjá daga. XI. Og nú fannst mér allt vera að lagast. í raun réttri var ekkert að lagast. Upp frá þeim sama degi sem ég öðlaðist frið með sjálfum mér, var grafið undan þeim friði úr annarri átt. Konan mín umgekkst mig, eins og ég væri henni ókunnur. Og þó var allt sem ég lagði á mig, gert henni til góðs. En hvað þessi kona var eftirtektarlaus! En þó tók hún eftir. Einn góðan veðurdag sagði hún við mig: „Ég vildi óska að ég dæi.“ „Hvers vegna?“ „Hvernig spyr þú?“ Og í munnvikjum hennar vottaði fyr- ir þannig brosi, að hjarta mitt ætlaði að hætta að slá. Ég ávítaði hana og sagði: „Vertu ekki svona kjánaleg.“ „Þetta er ekki kjánaskapur, vinur minn.“ 42. tbi. VIKAN 49

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.