Vikan


Vikan - 19.10.1967, Qupperneq 50

Vikan - 19.10.1967, Qupperneq 50
 T- '*Nfl '1 jÉL b •í im VIKAN OG HEIMILIÐ ritstjóri: & Gudridur Gisiadóttir. Nokkur ráO uminn- römmun oo mynda Það er ekki sama hvernig myndirnar eru hengdar á veggina, — heldur ekki hvernig rammarnir eru. Séu þessi tvö atriði ósmekk- lega gerð, er sama hve fallegar myndirnar eru; þær njóta sín ekki. Þess vegna er gott að hafa nokkrar reglur til hliðsjónar, sem þó eru alls ekki algildar. Smekklegt fólk getur leyft sér að gera ótrúlegustu hluti og sloppið vel frá því, en þeir, sem ekki hafa öruggan smekk eða listrænt skyn, ættu að líta á sýnishornin sem hér verða birt. Ekki er hægt að gefa ákveðnar reglur um rammana. Alltof skrautlegir og fyrirferðar- miklir rammar geta hreinlega „drepið“ fín- gerða mynd. Áberandi litur á rammanum á stundum illa við myndina og oft hef ég séð ramma, sem taka of mikið upp af aðallitn- um í málverkinu — til óprýði. Hvítir, gyllt- ir eða viðarlitir rammar eru öruggaslir — eða aðeins einföld glerplala, klemmd á með sérstökum klemmum, en annars staðar á síð- unni verður þeirri innrömmun lýst. Vafasamt er að hengja abstrakt málverk við hlið gamallar myndar, en þó getur það tekizt ágætlega við góðar aðstæður. Mjög þungar og stórar myndir fara oftast ekki vel yfir smágerðum húsgögnum, og þeir, sem ekki treysta of vel á eigin smekk ættu að hengja myndir í gömlum stíl fyrir ofan gamaldags húsgögn, en þó hef ég séð abstrakt málverk yfir rokokó kommóðu og það var eins og hvorugt gæti án hins verið. Eins og þið sjáið á myndunum, er oft heppilegt að hafa einhverja vissa línu í huga, þegar myndir eru hengdar upp, t. d. að neðri eða efri brún þeirra á sama vegg sé í sömu línu. Einhver ósmekklegasta upphenging, sem hægt er að hugsa sér er tröppuhengingin, — þegar myndirnar koma í skáhalla línu nið- ur eftir veggnum, en hún er einmitt frekar algeng hér. Þótt myndirnar séu ckki á sama vegg, er gott að hafa í liuga citthvert samra;mi milli þeirra. Á mynd- inni er sýnt hvernig linan við ncðri brún myndanna er sú sama frá einum vcgg til annars og einnig frá öðru samliggjandi og opnu herbergi. llér cr sýnt hvernig koma má myndskreytingu fyr r á ólíkan hátt í sömu borðstofunni. T. v. cru jafn- stórar myndir hengdar hlið við hlið í sömu hæð, en t. h. cr ein stór mynd og tvær minni og takið eftir því, að ncðri brún myndanna. er jöfn og ytri brún litlu mvndanna þannig, að samræmi næst vcl. Séu myndir af misjafnri stærð og lögun hengdar saman, er gott að mynda i huganum fcrhyrndan ramma. og hcngja myndirnar innan lians. Þið sjáið hva.ð er átt við mcð því að athuga þessa mynd. — Myndin í miðjunni cr römmuð inn með klemmum, sem talað er um annars staðar hér. Stór og þung húsgögn geta haft áhrif á stöðu mynd- anna. Þarna skapast gott jafnvægi á vcggnum með því að miða cfri brún myndanna við gömlu klukk- una. 54 VIKAN 42- tbl-

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.