Vikan - 09.11.1967, Síða 34
SNYRTIVÖRUR
Fást aðeins hfác
Reykjavík: Karnabær, snyrtivörudeild.
Klapparstíg 37. — Sími 12937.
Akureyri: Vörusalan.
Keflavík: Kyndill.
Siglufjörður: Túngötu 1.
ísafjörSur: Snyrtivöruverzlun ísafjarSar.
Selfoss: ÞórsbúS.
Heildsölubirgðir:
Sími 18970.
Tígristönn
Framhald af bls. 23.
neinu, þar til sá dásamlegi dagur
reis, sem hann mundi ævinlega
glöggt, þegar tvítug stúlka, dökk
yfirlitum, í fasi eins og prinsessa,
horfði á hann yfir borð ( Saigon
fangelsinu og sagði: — Þú ert að
fara héðan, Willie Garvin — með
mér.
í rökkrinu í vagninum færði hún
höfuðið til á öxl hans. Hún andvarp-
aði í svefni og svo varð andardrátt-
urinn jafn á ný. Ó, Jesús Kristur,
hugsaði Willie Garvin í dýpstu auð-
mýkt, og undraðist alla þessa dýrð.
Hún stóð honum svo miklu framar,
þótt hún vildi aldrei viðurkenna
það. Hugur hennar var skýr og
andinn svo óumræðilega sterkur, að
hann gat aldrei látið sig dreyma
um að ná því, en einkennilega
ómeðvitandi um þennan mismun á
þeim. Enginn hafði orðið til að
endurskapa heiminn fyrir henni,
eins og hún hafði endurskapað
hann fyrir honum; en upp úr
bernsku, sem hann veigraði sér við
að leiða sér fyrir hugskotssjónir,
hafði hún sprottið sem . . . Modesty
Blaise.
Hann fann ekki til minnstu öf-
undar í garð Mike Delgados, né
nokkurs annars manns, sem hafði
notið hennar á þann hátt. Á hundr-
að vegu hafði hann, Willie Garv-
in, notið hennar miklu ýtarlegar en
nokkur þeirra. Fyrir einhverja guðs-
mildi hafði hún kjörið að skapa
hann, og þau bönd, sem sköpunin
hafði hnýtt, voru eins og stálhlekk-
ir miðað við þann silkiþráð, sem
endrum og eins og stutta stund í
einu, tengdi hana öðrum mönnum.
Willie Garvin horfði út úr vagn-
inum. Gerace notaði nú hemlana og
dráttarjálkarnir slökuðu á og héldu
sér ( vagninn, sem rann þyngsla-
lega niður hæðina að Ijósum Cas-
cais.
Framhald í næsta blaði.
Peysur á barnaskóla-
börnin
Framhald af bls. 47.
Saumiö ermarnar í handvegina
nema vinstra megin aö aftan.
SaumiÖ meö ]>ynnturn garnþrœö-
inum og aftursting.
Saurmiö einnig erma og hliöa-
sauma á sarna hátt en stuölaprjón-
iö meö varpspori. HÁLSLlNING
Á TELPUPEYSUNÁ: Takiö nú
upp á prj. nr. 5 og byrjiö viö
opna liandveginn, fyrst geymdu l.
af bakstlc., 8 l. hliö ermarinnar,
13—13—15—17—17 l. á hliö, 6
geymdu l. aö framan, 13—13—15
—17—17 l. á hliö, 8 1. á hinni erm-
inni og eru þá 6ý—64—68—76—76
l. á prjónunum.
Prjóniö fram — og til baka
stuölaprjóns 2 l. sl. og 2 l. br. 10-10
—10—11%—11% sm. FelliÖ af
fremur laust og prjóniö um leiö
sl. I. sl. og br. I. br.
Saumiö saman ermasauminn aö
aftan og upp hálslíninguna.
HÁLSLlNING Á DRENGJA-
PEYSUNA:
Prjóniö eins og á télpupeysunni
aö miöri Uningunni prj: þá 1 umf.
si. frá röngu fbrotlína) og síöan
stuölaprjóniö áfram sömu breidd.
Felliö af mjög laust, brjótiö Un-
inguna inn á röngu og t.ylliö niöur
íhöndunum.
Pressiö yfir alla sauma frá
röngu meö örlítiö rökum klút,.
Samsæri um kvöld
Framhald af bls. 12.
O’Connel, lögregluíoringi, sem
Allan talaði við, hló og sagði, að
sem stúdent ætti Allari að vita
að það væri alls ekki bannað að
vitna í heimsbókmenntirnar.
Auk þess væru möguleikarnir
ekki einu sinni einn á móti mill-
jón að finna þessar tvær persón-
ur. — Farðu heim, ráðlagði
O’Connel Allan að lokum.
En Allan vildi ekki gefast upp.
Og að lokum bauðst lögreglufor-
inginn til þess að keyra hann að
Framhald á bls. 36.
34 VIKAN
45. tbl.