Vikan


Vikan - 09.11.1967, Qupperneq 48

Vikan - 09.11.1967, Qupperneq 48
tilhneigingu til a,ð meðhöndia hana með fyrirlitningu og kæru- leysi, eins og allar aðrar stelpur, en eftir nokkra stund lét hann undan töfrunum í bláum augun- um. Nú, þj(emiur dögum efljir komu hennar til Drumbeat var hann hennar tryggur þegn. — Mér verður líka illt í mag- anum af humar, Jamie, sagði hún. — Ég er ekkert sérstaklega hrifin af honum. Paddy virti matseðilinn fyrir sér og síðan Adrienne — Hakk- að kjöt, sagði hún svo hátíðlega. — Þá vil ég líka fá það. Jamie rétti föður sínum þykkan papp- ann með matseðlinum. Hann hafði ekki getað lesið almenni- lega það sem á honum stóð og þessvegna hafði hann beðið um humar fyrst. Martin Westbury tók að lesa vínkorlið aftur. Þegar hann hafði ákveðið sig tók hann aftur til við umræðuefnið, sem hafði ver- ið á dagskrá hjá þeim, síðan þau komu inn á matstofuna. — Eruð þið nú alveg viss um að þið viljið fara i bíó? spurði hann börnin. — Ójá — leyfðu okkur það! — Og hvernig er það með þig? hann leit spyrjandi á Adrienne. — Eigum við um nokkuð að velja? spurði hún brosandi. — Auðvitað. Persónulega finnst mér þetta alltof fallegur dagur til að sitja í troðfullu bíói með vondri lykl. Við fáum okkur gönguferð. — Við getum ekki sent þau ein á bíó. Þau eru ekki nógu stór til þess. — Vitleysa, þau eru jafn áfjáð í að losna við okkur og við við þau, sagði Martin lágt. — Þú talar fyrir sjálfan þig. Ég ber ábyrgð á Paddy og ég læt hana ekki róa. — Það er einmitt það sem er mergur málsins. Hún verður ekki ein. Martin dreypti á Hocheimer- víninu og lét gullinn vökvann renna í glas Adifienne. Hann studdi olnboganum á borðið og sagði: — Hlustaðu nú — Það er laugardagur og það eru næstum sjö hundruð krakkar í bíóinu. Það fór hrollur um hana. — Þama sérðu. Við þurfum ekki annað en gefa sætavísunni rausnarlegt þjórfé til að vera fullkomlega frjáls að þvi að njóta þessa góða veðurs með góðri sam- vizku. Við getum sótt þau klukk- an hálf sex. Adrienne virti fyrir sér börn- in sem voru önnum kafin að úða í sig matnum. Hún bar eng- ar brigður á hæfileika Jamie að bjarga sér sjálfur, en því var öðruvísi varið með Paddy. Hún var enn að velta því fyrir sér hvernig hefði staðið á því að hún féllst á að fara til Chelten- ham. Sakleysisleg uppástunga frá Martin um að hann og son- urinn fylgdu henni og Paddy til Cheltenham til að gera ofurlítil — Hvað ertu nú að gera? — Blanda í glas. Ég geri ráð fyrir að pabbi þinn hafi fulla þörf fyrir það, þegar hann kem- ur. — Áttu mikið gin? Adrienne hélt flöskunni upp á móti birtunni. — Nóg í eitt kvöld. — Viltu þá ekki blanda því saman við viskí handa honum, svoleiðis heitir Mickey Finn. Herra Timpson gaf honum það um jólin í fyrra og hann var í voða góðu skapi lengi á eftir. Nei, kæri Jamie, þú neyð- ist til að taka afleiðingunum af því sem þú hefur gert í dag. Pabbi þinn hefur fullan rétt til að vera reiður við þig, en ég held að hann muni skilja þig, ef þú segir honum nákvæmlega, hvers vegna þú fórst til myll- unnar. — Það held ég ekki. Hann er ekki sérstaklega snjall að skilja það sem ég geri. Adrienne tók um hönd hans. — Jamie, vinur minn. Maður verður oft óskaplega hræddur og utan við sig, þegar maður heldur að einhver sem manni þykir vænt um sé í hættu. Slund- um verður þessi hræðsla að reiði, þegar í ijós kemur að allt hefur farið vel. Nú hefur pabbi þinn verið hræddur um þig í heilan dag, og ekki haft hugmynd um hvar þú varst eða hvað þú varst að gera, svo við verðum að leyfa honum að fá útrás, þar til hann er kominn yfir gremjuna yfir hegðun þinni. Mótmæltu nú ekki og segðu honum sannleikann. Jamie var beggja blands á svipinn. Hann verður ekkert hrifinn af því. — Nei, sennilega ekki. En hann hlustar áreiðanlega á þig. Hún lyfti hendinni. Gegnum gnauðið í vindinum heyrðist bíll renna í hlað og svo var hurð skellt. — Sitlu nú kyrr við eld- inn, sagði Adrienne og flýtti sér til dyra. 10. kafli. — Af hverju get ég þá ekki fengið humar? spurði Jamie. — Ekki á fimmtán shillinga skammti. Þar að auki verðurðu veikur af honum, sagði faðirinn ákveðið. Jamie varð kafrjóður í kinn- unum, þegar hann starði yfir borðið á litlu stúlkuna. Hann hafði fallið gersamlega fyrir Paddy Hamilton og næst eftir Adrienne Blair fannst honum hún hljóta áð vera fallegasta kvenkynsvera í heiminum. Til að byrja með hafði hann sýnt Nýtt sarn fr Gróft handprjónagarn úr/1 -»»< 48 VIKAN 45- tbl-

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.