Vikan


Vikan - 04.01.1968, Blaðsíða 4

Vikan - 04.01.1968, Blaðsíða 4
Pera, sem beinir Ijósinu niður. Hentar í nýtízku eídhúsinnréttingar. Leslampa Vinnustaði Og á aðra staði sem beina þarf Ijósi á. SRAM- Superlux AÐ FYRIRGEFA. Kæri Póstur! Til þín hafa svo margir leitað með vandamál sín, og nú er röðin komin að mér. Við erum búin að vera gift í fjögur ár og erum bæði 23 ára. Við eigum eina dóttur, sem er tveggja og hálfs árs. Okkur hjónunum hefur samið eins og bezt verður á kosið. En síðast- liðið sumar var maðurinn minn sendur í annan lands- hiuta til að vinna. Þegar hann kom heim, sagði hann mér, að hann væri búinn að vera nokkrum sinnum með annarri stelpu þar á staðnum og spurði hvort ég gæti fyrirgefið sér það. Hann kvaðst ekki vilja hafa neitt með hina að gera og sagðist ekkert skilja í, að hann skyldi hegða sér svona. Finnst þér nú, að ég eigi að láta hann sigla sinn sjó eða búa með honum áfram? Mér finnst ég aldrei geta treyst honum framar. Ég veit að þú svarar mér eins fljótl og vel og þú getur. Með fyrirfram þökk, G. R. P.S. Hvernig er skriftin? Jú, við mundum ráð- leggja þér að halda áfram að búa með honum. Ó- tryggð í ástum er eins og allir vita sú reynsla, sem markar einna clýpst spor í sálarhróið okkar. En slíkt dofnar með tímanum, þótt það hverfi kannski aldrei til fulls. Ef þú fyrirgefur honum þetta hliðarhopp, verður það til þess, að sam- vizka hans skerpist og hann ber meiri virðingu fyrir þér en áður. Ef þú fyrirgefur honum verður þú að gera það ekki aðeins í orði held- ur einnig á borði. Það versta sem þú gætir gert væri að gjalda honum í sömu mynt, eins og margir gera. Þar með eru öll ykk- ar mál orðin flækt og kom- in í óleysanlegan hnút. Nei, þú skalt fyrirgefa honum og hann mun re.ynast þér betri eiginmaður eftir en iður. Skriftin er stílhrein )g falleg. ÉG ÆTLA AÐ FÁ MÉR KÆRUSTU . . . Kæri Póstur! Nú langar mig til að biðja þig bónar. Hún er sú að hjálpa mér að muna fá- ein kvæði, sem mig langar til að læra öll og kunna þau rétt. Ég skrifa upp það hrafl sem ég kann úr þeim og sendi það með bréfinu. Ég vona, að þú viljir gera mér þann greiða og birta þetta í Póstinum. Ef þú kannast ekki við þessi kvæði, væri kannski reyn- andi að birta hraflið og vita hvort einhver lesandi getur ekki hjálpað mér. Marsibil Magnúsdóttir. Við viljum meina, að fyrsta erindið, sem þú send- ir okkur sé úr „Ævintýri á gönguför“. Ef það er ekki rétt, þá er textinn að minnsta kosti saminn und- ir lagi, sem þar er sungið. Þetta erindi hlýtur að vera bjagað hjá þér. Það sést á ituðlunum oð ríminu. Þess- ar vísur er voru til skamms tíma á hvers manns vörum, lærðum við þannig: Ég ætla að fá mér kærustu sem allra, allra fyrst, en ekki verður gott að finna hana. Hún skal hafa kinnar sem hrútaber á kvist og hvarmaljósin björt sem demantana. Þetta er langur bragur, en því miður kunnum við ekki meira. En við biðjum lesendur að hjálpa Marsibil og senda okkur vísurnar allar og réttar. — Marsibil sendi tvær línur úr öðrum brag, en við könnumst ekk- ert við hann. Þær hljóða svona: Á kúskinnsskóm var karl- inn sá svo kauðslegur að sjá. VITLEYSINGARNIR SEM STJÓRNA LANDINU. Kæri Póstur! Nú ætla ég loksins að skrifa þér, og ég ætla að byrja á því að setja svo- lítið út á Vikuna. Ég kaupi hana alltaf. EN hvers vegna eruð þið hættir með Bíla- prófun Vikunnar? Ef þið hafið ekki pláss fyrir próf- ið, blessaðir hættið þá við þessa Júllu Jóns! Árið 1965 komu Benz-verksmiðjurnar með nýjan Benz 250. Af 4 VTIvAN 1. tbl.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.