Vikan


Vikan - 04.01.1968, Qupperneq 20

Vikan - 04.01.1968, Qupperneq 20
KALLAR ÍHt r----------------------------------------^ ÍSLANDSKLUKKAN Í ÞJÓDLEIKHÚSINU EFTIR ÁRAMÚTIN. SKIPT UM LEIKARA í AÐALHLUTVERKUM Um miðjan október s.l. hóf Þjóðleikhúsið æfingar á íslandsklukku Halldórs Laxness, og verður verkið að þessu sinni frumsýnt um miðjan janúar. Er þetta fyrsta sýningin ó leik- ritinu í ellefu ár, en þótt svo langt sé um liðið, er varla hætt við öðru en atburðarás leiksins, persónur hans og mótun þeirra í með- ferð okkar beztu leikara standi öllum þorra íslendinga skýrt fyrir hugskotssjónum. Þeim mun forvitnilegra er að vita hversu til tekst með í hönd farandi sýningu. Hún verður sem sé sérstæð að því leyti, að nú verður skipt um leikara í flestum meginhlut- verkum leiksins; með öðrum orðum sagt verð- ur það að verulegu leyti ný Klukka, sem gest- ir Þjóðleikhússins fá að sjá eftir áramótin. Sem kunnugt er, var íslandsklukkan fyrst sýnd í Þjóðleikhúsinu tuttugasta og annan apríl 1950, þriðja daginn frá vígslu þess, og var þriðja leikrit hússins. Leikstjóri var þá Lárus Pálsson, og lék hann jafnframt Jón Grindvíking. Jón Hreggviðsson lék þá Bryn- jólfur Jóhannesson, Þorsteinn Ö. Stephensen Arnas Arnæus, Herdís Þorvaldsdóttir Snæfrlði íslandssól, Haraldur Björnsson Jón Marteins- son og Valur Gíslason Eydalín lögmann. Leik- tjöld gerði Lárus Ingólfsson. Þá var leikritið sýnt alls áttatíu og þremur sinnum á tveggja ára tímablli og sýningargestir urðu nærri fimm- tíu þúsund. Næsta sýning á verkinu var 1952, í tilefni fimmtugsafmælis höfundar. Var það sýnt sex sinnum að því sinni og voru að jafnaði sex hundruð gestir á hverri sýningu. I þriðja sinn var Klukkan sýnd 1956, í tilefni þess að Kiljan fékk nóbelsverðlaunin. Þá urðu sýning- arnar tuttugu og fimm og sýningargestir fimm- tán þúsund. Alls hefur leikritið verið sýnt hundrað og átta sinnum. Að þessu sinni mun Róbert Arnfinnsson fara með hlutverk Jóns Hreggviðssonar, Rúrik Har- aldsson leikur Arnas Arnæus, Sigríður Þorvalds- dóttir Snæfríði íslandssól, Jón Júlíusson Jón Grindvíking, Gunnar Eyjólfsson Jón Marteins- . son. Flestir þessara leikara hafa þegar lengi verið í fremstu röð á fjölum Þjóðleikhússins, en þetta er í fyrsta sinn sem þeir fá að reyna sig við Klukkuna, sem gömlu mennirnir, Brynjólf- ur, Þorsteinn, Haraldur, Lárus og aðrir, hafa til þessa túlkað af þvílíkri snilld, að persónur hennar hafa þegar fastgreipazt í huga flestra íslendinga og ekki einungis sem persónur á sviði, heldur eru þær orðnar fólki eins raun- verulegar og minnisstæðar — eða öllu heldur langtum minnisstæðari — en lifandi manneskj- ur sem það umgengst í sínu daglega lífi. Það verður því erfitt hlutverk sem nýju mennirnir fá nú til að glíma við, að forðast stælingar á þeim gömlu, sem alltaf er hætt við að lendi í afkáraskap, en jafnframt að gera persónur Klukkunnar jafn sterkar og áhrifamiklar í aug- um leikhúsgesta og fyrirrennurum þeirra heppnaðist. Þeir, sem fylgzt hafa með leik- ferli Róberts Arnfinnssonar, munu eiga erfitt með að ímynda sér að honum geti brugðizt bogalistin ! nokkru hlutverki, og mörg hinna hafa einnig sýnt ágæt tilþrif. Eitt af því, sem merkilegt er við flutningssögu verksins er, að margir þeirra leikara okkar, sem nú eru upp á sitt bezta, vöktu fyrst á sér athygli ! minni hlut- verkum þess. Þeirra á meðal má nefna Bald- vin Halldórsson, Steindór Hjörleifsson, Árna Tryggvason og Klemenz Jónsson. Að síðustu mætti geta þess, að einn okkar elztu snilldar- manna á sviði, Friðfinnur Guðjónsson lék sitt síðasta hlutverk ! Islandsklukkunni 1956. Þá lék hann manninn sem missti glæpinn. Ef allt fer að líkum, ættu bekkir Þjóðleik- hússins að verða þéttsetnir upp úr áramótun- um, hvað sem sjónvarpi og öðru glingurdóta- ríi líður. Framhald á bls. 40. Baldvin Halldórsson, leikstjóri. „Kvcr úr fornu volumine — jircttándu aldar skrift. Ég fæ ckki betur séð cn þetta séu blöð úr sjálfri Skáldu.“ Arnas Arnæus hefur fundið rifrildi úr þeirri óviðjafnanlegu skinnbók í rúmbotni móður Jóns Ifreggviðssonar. Talið frá vinstri: Jón Hreggviðsson (Brynjólfur Jóhannesson), sr. Þorsteinn (Klemenz Jónsson), Snæfríður íslandssól (Herdís Þorvalds- dóttir), Arnas Arnæus (Þorsteinn Ö. Stephensen), kona Jóns Hrcggviðssonar (Anna Guðmundsdóttir), og móðir Jóns Hreggviðssonar (Emilía Jónasdóttir). Myndirnar allar eru frá fyrstu sýningu leikritsins. 20 VIKAN L tbL

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.