Vikan


Vikan - 04.01.1968, Page 37

Vikan - 04.01.1968, Page 37
Þannig misstu bandamenn níutíu og fimm flugvélar af tæplega átta hundruð, sem réðust á Niirn- berg í marzlok 1944- En um haustið 1944 voru árás- irnar á Þýzkaland hertar á ný, enda var sigur bandamanna í Frakklandi þá tryggður og ljóst að komið var að lokaþætti styrj- aldarinnar. Meðal borga sem nú var ráðizt á og urðu sérlega hart úti má nefna Heilbronn, Königs- berg, Duisburg og Brúnsvík. Þessari sókn var haldið linnu- laust áfram fram í febrúar 1945, er mesta og mannskæðasta loft- árás styrjaldarinnar var gerð — loftárásin á Dresden. Árás þessi var ekki einungis sérstæð að því leyti, að hún olli meira manntjóni en nokkur önn- ur hernaðaraðgerð sögunnar. Eins og fyrr er sagt höfðu loft- árásir bandamanna til þessa ým- ist beinzt að borgum, sem höfðu beina hernaðarþýðingu eða voru mikilvægar vegna iðnaðar og samgangna. Engu slíku var til að dreifa um Dresden. Sem sam- göngumiðstöð hafði borgin ekki verulega þýðingu og þótt þar væri allmikill iðnaður, var hann þess eðlis að hann hafði næsta lítið gildi fyrir stríðsreksturinn. Og herbækistöðvar voru þar eng- ar svo heitið gæti. í samræmi við þetta hafði öll saga þessarar fögru höfuðborgar gamla, saxneska kjörfurstadæm- isins og konungsríkisins verið- íbúum hennar hafði alla tíð ver- ið tamari friður en stríð. Þar höfðu flestar greinar lista og vísinda verið iðkaðar af meiri alúð og smekkvísi en í flestum eða öllum öðrum borgum Þýzka- lands. Þar voru frægir skólar, sem á friðartímum drógu að sér námsmenn frá fjölda þjóðlanda, ekki sízt Bretlandi. Þar voru dýr- leg listasöfn og leikhús. Þegar þjóðhöfðingjar Prússa, nágranna Saxa, stunduðu á herneskju og landvinningar, lögðu fyrirmenn í Dresden áherzlu á fegrun lífs- ins með þeim lögulegustu hlut- um, sem guðdómurinn í manns- sálinni hefur skapað. Dæmigerð fyrir þetta eru viðskipti Friðriks Vilhjálms, kjörfursla í Branden- búrg og konungs af Prússlandi, og Ágústs sterka, þjóðhöfðingja Saxa og Pólverja, sem sat í Dresden og skreytti þá borg af svo mikilli alúð, að hún bjó að því allt fram að morðinu mikla 1945. Kóngur þessi, sem var tröll að vexti, klaufi í pólitík og hafði óseðjandi lyst á víni, kvenfólki og fallegum hlutum, hafði feng- ið ágirnd á nokkrum kínverskum poslulínsmunum, sem nágranni hans í Berlín átti. Friðrik Vil- hjálmur, sem var faðir Friðriks mikla og gersneyddur öllum fag- urfræðilegum smekk, lét hann góðfúslega hal'a postulínið — en fyrir það varð Ágúst að láta granna sínum eftir fimm hundr- uð risavaxna dragónriddara með fullum herbúnaði! Freistandi væri að ræða nánar um Ágúst sterka, „Alkibíades Dresdenar“, eins og sumir köll- uðu hann — þótt hann ætti það naumast skilið. Um hann var sem sé sagt með meiri sanni, að hann hafi ekki einungis gert Dresden að þýzkum Versölum, heldur og þýzkri Flórens, sem listelskandi fólk úr fjarlægum löndum fór pílagrímsferð til í stríð- um straumum. Dresdenar-óperan náði þá þeirri frægð, sem hún hefur síðan búið að; þá byggði Pöppelmann þann stórfenglega barokgarð Zwinger, og þá var að frumkvæði kjörfurstans reist listasafn, það stórkostlegasta, sem nokkru sinni hafði sézt norðan Alpa. Ágúst var furðulegt sam- bland af siðlausum barbara og fáguðum menningarvita, ólmum berserki og úrkynjuðum hirð- svallara. Hann varð fljótlega að þjóðsagnapersónu. Þannig var sagt að foreldrar hans hefðu alið hann upp á Ijónamjólk og til dæmis um krafta hans var haft fyrir satt, að hann hefði eitt sinn klesst saman í greip sér silfurbikar, svo að vínið spraut- aðist upp úr og á nærstadda veizlugesti. Þegar allt kom til alls, bjó Dresden lengur að því, sem Ág- úst sterki hafði vel gert, en hinu sem honum hafði miður farizt. Flestum þótti borgin einhver yndislegasti staður Þýzkalands. Að vísu heyrðust einstaka sinn- um hjáróma raddir. Þannig kvað Ibsen, sem að sönnu var Þjóð- verjahatari, í Ballónbréfi sínu um velkunna og hvimleiða mann- gerð, sem hann varð var við í höfuðborg Saxlands: Digrir, þýzkir þjóðmálsskúmar, þeir sem engin veröld rúmar, vígagrobb með veifu á stöng, „Wacht am Rhein“ þeir kalla söng.... En að áliti flestra voru Dres- den og íbúar hennar miklu frem- ur dæmi um það bezta, sem til er með þýzku þjóðinni, en það sem leiðinlegra er. Brezkur her- maður, sem eins og margir aðrir landar hans voru í fangabúðum í útjaðri borgarinnar, skrifaði í bréfi heim: „Þjóðverjarnir hérna eru tíma hitt- Yfirmaður fanga- búðanna er prýðisdrengur, og það er undravert, hve mikið frjálsræði við búum við. — Feldwebelinn tók mig með sér inn í borgina fyxir skömmu og sýndi mér mið- hluta hennar. Hún er sannar- lega fögur — ég gæti þegið að sjá meira af henni.“ í Dresden virtist möimum stríðið svo fjarlægt, að undrum sætti í landi, sem átti í svo grimmilegri og miskunnarlausri baráltu sem Þýzkaland nasis- mans. Engum, hvorki af Þjóð- verjum sjálfum eða andstæðing- um þeirra, hafði til þessa komið til hugar að loftárás yrði gerð á borgina. Ástæðan til þessarar skoðunar var vitaskuld fyrst og fremst sú, að augljóst þótti að hernaðarleg þýðing Dresdenar væri lítil sem engin, og í öðru lagi að bandamönnum óaði við þeirri villimennsku að eyðileggja borg, sem bjó yfir slíkum menn- ingarminjum. Fjölmargir Bretar þekktu borgina vel frá því fyrir stríðið, er þeir höfðu dvalið þar sem námsmenn og túristar, og þeir báru hlýjan hug til hennar. Alls konar sögusagnir styrktu þá trú að Dresden yrði þyrmt, eink- um meðal íbúa hennar sjálfra. Til dæmis var fullyrt, að Bretar hefðu gert leynilegt samkomu- lag um það við Þjóðverja að láta Dresden í friði gegn því áð Ox- ford yrði hlíft við þýzkum sprengjuárásum; aðrir sögðu að Churchill ætti ættingja í borg- inni og hefði því persónulega tekið hana undir sinn verndar- væng- Þessi trú á ónæmi borgar- innar fyrir ógnum styrjaldarinn- ar leiddi til þess, að þangað sótti fjöldi flóttafólks úr öðrum stöð- um, sem urðu hart úti í loftárás- um. Fyrir stríðið voru íbúar Dres- denar um sex hundruð og þrjá- tíu þúsund, en þegar árásin var gerð að minnsta kosti hálfu fleiri. Sérstaklega mikill varð flótta- mannastraumurinn til borgarinn- danssköli HBRMANNS RAGNARS þeir beztu sem ég hef nokkurn i. tbi. VIKAN 37

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.