Vikan - 10.04.1968, Qupperneq 6
ÁLFTAMÝRI 7
BLOMAHÚSIÐ
simi 83070
SUÐ
>.RMULI
Legg rækt viö aö sérhver skreyting eða
blómvöndur sé rétt túlkandi fyrir þaö tilefni
sem við á.
Kjólablóm fyrir árshótíðina.
Afmælisvendir.
Brúðarvendir,
brúðar-blóma-kóróna.
Brúðkaupsafmælisvendir.
Skrautinnpökkun á gjöfum.
Blómaprýði við útfarir:
Samúðarvendir, útfararvendir.
Blómsveigar, minningarvendir.
Legg yður á ráðin með að gróð-
urskreyta híbýli yðar.
Hef margra ára starfsreynslu í helztu blóma-
löndum Evrópu.
Öll blóm á gróðurhúsaverði.
ÁLFTAMÝRI 7 — SlMI 83070
r
Uaririlarkurtir
I M M I
IJTI
BÍLSKLRS
HLRÐIR
ýhhi- & Htikurlir
H □. VILHJALMSSDN
RÁNARBÖTU 17 SÍMI 19669
HRUKKUR OG HLÁTUR.
Virðulega Vika og kæri
Póstur!
Mínar beztu þakkir fyrir
allt það skemmtilega, fróð-
lega og góða efni, sem
blaðið flytur oss. Sagan
„Hin vota gröf“ er þegar
orðin geysilega spennandi
og Angelique er alltaf jafn
dásamleg. En mig langar
alltaf í meira af róman
tískum smásögum, helzt
ævagömlum; þær eru bezt-
ar.
Ég á vitanlega við mín
vandamál að stríða eins og
aðrir, og nú langar mig til
að leita ráða hjá þér, Póst-
ur góður: Ég er með 8
hrukkur í andlitinu, 4 imd-
ir hvoru auga. Þær eru
samt engin ellimörk, því
að ég hef verið svona frá
fæðingu.
Þessar hrukkur fara
ákaflega mikið í mínar
fínustu taugar. Þegar ég
hlæ, er andlitið á mér ein
allsherjar gretta, en ég er
líka alltof hláturgjörn.
Elsku Póstur minn! Get-
urðu ekki sagt mér hvort
einhver læknir er til, sem
gæti sléttað ofurlítið úr
andlitinu mínu. Ég hugsa
nefnilega, að það fari að
koma „alvöruhrukkur“ af
áhyggjum!
Hef þetta svo ekki lengra,
en vonast eftir svarinu
bráðlega. Ég spyr ekki um
skriftina. Hún er eins og
hjá 10 ára krakka, hvað þá
stafsetningin.
Lengi lifi Vikan!
Tvítug ráðskona
í sveit.
Við sögðum frá því hér
í Póstinum nýlega, að hægt
væri að láta slétta og slípa
húðina, ef hún hefur
skemmzt af einhverjum or-
sökum. En við ráðleggjum
þér eindregið að fara ekki
að flana út í slíka vitleysu.
Við erum sannfærðir um,
að hrukkumar þínar átta
fara þér vel — sérstaklega
þegar þú hlærð. Skriftin
þín er líka falleg, og við
gátum ekki fundið eina
einustu stafsetningarvillu í
bréfinu þínu.
DRAUMUR UM FERÐALAG
Kæri Póstur!
Ég hef séð, að þú ræður
drauma fyrir fólk, og þess
vegna skrifa ég þér. Mig
langar að biðja þig að ráða
fyrir mig draum, sem mér
finnst all merkilegur. Hann
er svona:
Mér fannst ég vera að
leggja af stað í ferðalag í
stórum langferðabíl. Var
ég að koma fólkinu fyrir og
fannst mér ég bera ábyrgð
á þessu fólki. Þar skammt
frá stendur maður í ein-
kennisbúningi. Fannst mér
ég vera að hugsa um það,
hví hann kæmi ekki og
hjálpaði mér (ég er mál-
kunnug þessum manni), en
hann virðir mig ekki við-
lits heldur forðast mig að
mér finnst.
Var nú allt tilbúið til að
leggja af stað. Rétt hjá mér
situr kona með lítinn dreng
og er hann grátandi. Tek
ég drenginn hjá konunni
og reyni að hugga hann.
Fer ég nú að athuga annan
skó hans og sé ég þá, að
nagli stendur úr skónum
inn í hælmn og finn um
leið eitthvað rakt en ekki
sá ég neitt blóð. Kalla ég
þá til mannsins í einkenn-
isbúningnum og bið hann
að ná í sjúkrakassa en
hann ansar því ekki. Kem-
ur þá maður til mín með
kassann og eitthvað annað
sem hann segir að ég megi
eiga. Svo er lagt af stað og
sit ég aftast í bílnum 0g er
að hugsa um það hví mað-
urinn í einkennisbúningn-
um hafi ekki talað neitt til
mín og forðast mig, og
fannst mér ég vera hálf
sár. Svo finnst mér ég sofna
út frá því og þegar ég
vakna er ég orðin ein í
bílnum einhvers staðar upp
í sveit. En fólkið var
hvergi sjáanlegt né neitt
hús.
Þarna voru stór og falleg
tré og einnig blóm og fag-
urgrænt graslendi svo langt
sem augað eygði. Heiðskír
himinn og allt var svo
bjart þarna í kring. Er mér
nú litið til hliðar við mig
og situr þar þá einkennis-
klæddi maðurinn, en nú
venjulega klæddur. Lilum
við hvort á annað og horfð-
umst í augu góða stund án
þess að segja neitt. Svo
V
6 VIKAN 14 tbl-