Vikan


Vikan - 10.04.1968, Blaðsíða 15

Vikan - 10.04.1968, Blaðsíða 15
Hrútmenni í læknastélt eru yfirleitt skurðlæknar, tannlæknar og dýralæknar. Hrútmenni hneigjast mjög til líkamlegrar vinnu, ekki sízt málmsmíða og vél- smíða. Á vettvangi Venusar eru hrút- urinn hinn baráttuglaði, orku- lilaðni og óþreytandi sigurveg- ari — svo lengi sem áhuginn endist. Hann hefur óseðjandi þörf fyrir að auglýsa karl- mennsku sína við öll möguleg og ómöguleg tækifæri. Ilrútkonan sýnir oft vissa karl- lega drætti. Hún á það til að fá ástríðuköst, sem hún hefur mikla tilhneigingu til að full- nægja á stundinni og staðnum. Til ástmanns síns eða eigin- manns gerir hún þær kröfur að hann fullnægi óskum hennar tafarlaust . . . Hrútmenni veljast oft í störf, þar sem þörf cr fyrir hörku og einbeittni, til dæmis verða xnargir þeirra hermenn og lögreglumenn. ingarstundin að liggja fyrir upp ó mínútu. Verður nú í stuttu móli farið yfir þá eiginleika, sem fylgja himin- tunglum, og hvað kemur í hlut hvers og eins, eftir því hvaða him- intungl standa ( hrútsmerki á fæð- ingarstundu hans, auk Marz. f táknrænum eða symbólskum fræðum er tunglið jafnan talið kven- legs og dýrslegs eðlis. Það táknar ríka hvataorku, ómeðvitað og ó- mótað líf. Við þessar aðstæður nýt- ur hrúturinn sín prýðilega. Konur, sem fæddar eru við hrút og mána, eru gjarnan haldnar ofsafengnum ástríðum og jafnframt grófgerðar, allt að því karllegar. Fólk undan þessari samstæðu er að jafnaði fljótfært, óróasamt, óraunsætt og barnalegt. Merkúr var að fornu sendiboði guðanna og jafnframt kaupsýslu- guð. Stjörnu þeirri er nafn hans ber fylgir skýr sjálfsvitund, skyn- semi og skilningur á sálarlffi. Menn bornir undir hrút og Merkúr eru oft gæddir mikilli andlegri orku og gáfum, til dæmis Zola hinn franski og van Gogh. Þegar Marz er allsráðandi í hrúts- merki, er vissast að vara sig, þvf þeirri stjörnu fylgir, sem fyrr er sagt, ágengni af ofsafyllsta tagi. Séu ekki verulegar hömlur lagðar á Marz-hrúta, er viðbúið að þeir gerist sekir um skefjalausan yfir- gang og ofbeldi. Þetta hefur þótt sannast á náungum eins og Göring og Napóleoni þriðja Frakka- keisara. Venus, stjarna ástargyðjunnar, er tákn ástar og lífssóknar. Fólk, sem fæðist undir henni og hrútnum bæt- ir við sig eldlegum ástríðum hrúts- ins, en hinsvegar vilja hinir kven- legu og fíngerðu eiginleikar Ven- usar fara forgörðum ( blöndunni. Spænski listmálarinn Goya, Lúðvfk fimmtándi Frakkakonungur og spænska nunnan og rithöfundurinn Teresa frá Avila eru sögð hafa ver- ið dæmigerðir Venusarhrútar. Júpíter er tengdur höfuðguði Róm- verja með sama nafni. Honum fylgja eiginleikar eins og velvilji, rétt- sýni, trúhneigð og tillitssemi. Júpí- ter hefur því góð áhrif á hrútinn, þegar hann nær til hans. Hann hemur krafta skepnunnar og hag- nýtir þá í þjónustu við mannúð og hugsjónir. Tónskáldið Brahms og heimspekingurinn Descartes eru sagðir hafa verið Júplterhrútar. Satúrnus gerir hrýtlingana inn- hverfari, skarpari ( leitun og rann- sókn og færa um að leysa af hönd- um verk, sem krefjast mikillar ná- kvæmni og sjálfsaga. Þesskonar áhrif komu fram á mönnum eins og Baudelaire, Einstein og Haydn. En Satúrnus er blendinn nokkuð og návist hans f hrútsmerkinu ekki ævinlega til góðs. Stundum dregur hann úr Iffsorku hrútmennanna og lamar athafna- þrá þeirra, eða breytir henni ( eyði- leggjandi orku, sem bæði getur beinzt gegn sjálfum þeim og öðr- um. Þetta þótti til dæmis sannast á Goya og ítalska ofstækismunk- inum Savonarola, sem reyndi að þurrka út dýrð Medíseanna í Flór- en$. Úranus skerpir eiginleika hrúts- ins og yfirleitt til betri vegar; gerir hann umbótasinnaðan og byltinga- kenndan. Neptúnus gerir hrýtling- ana ævintýragjarna, hugsjónarfka og vekur hjá þeim dulúðarþrá. Plútó gerir þá yfirleitt enn ágengari en þeir eru fyrir, en jafnframt kald- rif jaðri. Af goðsögnum þeim, sem byggð eru upp ( kringum hrútstákn, er sú um Jason og gullna reyfið fræg- ust. Gyðjan Nefela sendi hrútinn Krýsómallos, sem gæddur var þessu frábæra reyfi, ( austurveg með börn sín, til að forða þeim undan kóng- inum ( Orkómenos sem fyrirhugað hafði að fórna Seifi öðru þeirra. Fór hrúturinn til landsins Kolk- is, þar sem óþjóðir bjuggu. Krýsó- mallos óttaðist fjandskap konungs- ins ( landinu og fékk því Frixos, son Nefölu, til að slátra sér og bjóða kóngi reyfið að gjöf. Kon- ungur, sem Eetes hét, geymdi reyf- ið í lundi, sem helgaður var stríðs- Framhald á bls. 41 i4. tbi. vncAN 15

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.