Vikan


Vikan - 10.04.1968, Page 28

Vikan - 10.04.1968, Page 28
E ffl E3 n r M 2" flG W m Verkleo knmítte ei finoreliDirö næoie efcki ið sé að vísu ekki íslenzkt að upp- runa. Er skúlptúrinn enn þitt að- alviðfangsefni? — Hann var það lengi, en síð- ustu tvö árin hef ég aðallega gert vesgmyndir, skúlptúr-relief get- um við kallað þær, eins konar lágmyndir. Uppistaðan í þeim er alúmín, eins og í öllum mínum myndum, en járn og kopar er brætt inn í sem andstæðuform til að koma meiri þyngd í myndina. Hvernig skilgreinirðu stíl þinn? Er þetta eins konar ab- strakt-expressjónismi, action painting? Þetta á að vissu leyti upp- runa sinn í abstrakt-expressjón- isma; é? hefði líklega ekki gert þetta ef ég hefði ekki kynnzt þeirri stefnu. Ég nota aðferðir hennar, en fer að öðru leyti eigin leiðir, hef formin í huga fyrir- fram. í abstrakt-expressjónisma mótast form myndarinnar hins vegar að miklu leyti spontant. Pollo^k er hvað kunnastur af frumkvöðlum þessarar stefnu, en hano varð skammlífur. Nú er de Kooning þar efstur á blaði. Viltu meina að þú sveigir heldur í áttina til þess fígúra- tífa? Að vissu leyti, já. Þetta er orpanísk list, hættulegur leikur, má segja, því verkin geta sýnzt svo náttúrleg, að fólk heldur kannski að þetta sé allt gert af handahófi og án yfirvegunar. En ég vona að h;ð raunverulega gildi komi fram síðar. Þú hefur sjálfur mótað þín- ar aðferðir og stílbrögð? - Já, algerlega. En þótt ég hafi þróað aðferðir mínar sjálfur, þá fer ég varlega í að telja að þær hafi í sjálfu sér gildi. Það er árangurinn sem skiptir máli. Jóhann bendir á eina skúlptúr- myndina, sem hann hefur stillt upp á stein til hliðar við pott- inn, þar sem glóandi málmgraut- urinn kraumar og vellur. Mynd- in kemur fyrir sjónir sem hraun- drangur er í lögun minnir á kínverska pagóðu, þótt hitt sé iafnaugljóst að sú gerð mustera hafi ekki verið fyrirmyndin. Ég líð ekki að myndir mín- ar beri þess nokkur merki að þær hafi ekki orðið til af sjálfu 2S VIKAN 14 tbl- sér, segir Jóhann. En jafn- framt verður að vera Ijóst að þær hafi ekki orðið til áreynslulaust. Hann þrífur aftur forkinn og veiðir rauðglóandi froðuna ofan af pottinum. — Skúlptúrinn er það tjáning- arform, sem mér hentar bezt. I honum finnur maður ekki hvað sem maður vill, heldur það sem maður vill, það sem maður legg- ur verulega áherzlu á og gefur lífinu gildi. f þessari listgrein finnst mér ég njóta mín bezt. Henni fylgir mikið erfiði, bæði andlegt og líkamlegt - það lík- ar mér vel - og umfram alít jafnvægi. Við fylgjumst nú með Jóhanni heim til hans á Hrauntungu 59, Kópavogi, en þar býr hann ásamt konu sinni, Kristínu Halldórsdótt- ur Eyfells. Þau hjón eru sem kunnugt er félagar og samherjar bæði í lífi og list; þarna hafa þau komið sér upp húsi, sem í senn er heimili þeirra og vinnustaður. Atmosferan þama inni er látlaus og notaleg og virðist hafa orðið þannig af sjálfu sér eins og verk Jóhanns — en auðvitað er málið ekki svo einfalt. Þau hjónin eru bæði skóluð vestanhafs, hafa dvalizt í Banda- ríkjunum nærri tvo áratugi við nám og störf. Þar kynnlust þau og gengu í hjónaband, Jóhann lagði stund á arkitektúr, skúlpt- úr og málaralist við Kaliforníu- háskóla og síðar við Flórídahá- skóla, en þaðan tók hann B. ARCIJ.-próf í arkitektúr og meistarapróf í myndlist (Master of Fine Arts). Kristín tók þaðan B.A.-próf í myndlist og einnig í sálfræði, en þá grein lagði hún upprunalega stund á. Áður en hún kom til Flórída hafði hún sfundað nám við Hofstra Univer- sity á Long Island. Jóhann hefur einnig starfað sem arkitekt og málari i Bandaríkjunum og auk þess kennt við Listadeild Flórída- háskóla. Þau hafa haldið nokkr- ar sýningar á verkum sínum, bæði hér heima og erlendis, og tekið þar að auki þáft í fjölmörg- um samsýningum. — Hefurðu alveg lagt arki- tektinn á hilluna, Jóhann? — Já, það má ég segja. Síðan ég kom heim, hef ég aðeins teikn-

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.