Vikan - 10.04.1968, Blaðsíða 37
— Hvað ætlar þú nú að gera?
— Vera kyrr heima. Hugsa um
búið. Verða gamall.
Hún renndi niður munnvatni
sínu og sagði, annars hugar: —
Ætlarðu ekki að gifta þig?
— Auðvitað! Hann sneri til
höfðinu og leit á hana. — Ertu
afbrýðisöm?
Hana langaði að reka honum
löðrung. — í guðanna bænum,
Tom! Hún reyndi að ýta hon-
um frá sér, en hann tók um
höndina á henni.
— Af hverju reiddistu nú?
— Ég er ekki reið.
— Ertu kannski trúlofuð?
Hann settist upp, og glettnin
skein úr augum hans. — Ég
þori að veðja, að það ertu. Rík-
um bissnismanni sem hefur ljós-
hærðan einkaritara og á Jagúar
— eða er það kannski Porsche?
— Hvorugt, svaraði Lena
hugsunarlaust.
— Jæja, en þú átt sem sagt
kærasta!
— Nei. Jú. Það er að segja, ég
er ekki trúlofuð. Og þótt svo
væri, kæmi þér það ekki við.
Elskar þú hann?
— Tom.........
— Elskar hann þig?
Hún starði á hann. Var hann
að gera grín að henni eða ekki?
Óvissan gerði hana óstyrka, en
þegar hún reyndi að rísa á fætur
og koma sér burt greip hann í
hana.
— Því það geri ég nefnilega,
sagði hann.
Eins og lömuð starði hún á
hann, fann sinn eigin öra hjart-
slátt, skynjaði augu hans, hör-
und og munn, sem nálguðust
stöðugt.
— Tom ........
— Vertu bara róleg, svaraði
hann.
Á eftir sagði hann: — Þetta
hefur mig lengi langað að gera.
Af hverju þarftu endilega að
vera skotin í öðrum? Við gætum
átt svo dável saman.
Allt í einu varð Lenu hroll-
kalt. Þau litu upp og sáu að sól-
in var horfin bak við kolsvart
ský. Öldurnar voru orðnar úfn-
ari og nú bárust fyrstu regn-
droparnir með vindinum.
Tom spratt upp. — Það er bezt,
að við hypjum okkur heim, sagði
hann.
Lena klöngraðist á fætur.
Henni var ekki bara kalt, hún
var líka svo undarlega örmagna.
Tom tók hana við hönd sér og
dró hana af stað. En áður en þau
næðu heim, voru þau orðin
holdvot.
Nelly, sem var nýkomin heim,
var reið og æst, þegar þau bar
að garði, svona til reika. Hver
bar ábyrgð á Lenu? Hverjum
yrði kennt um, ef illa færi?
— Nú fer ég beint upp og
læt renna í heitt bað handa
þér, og svo ferðu beina leið í
bólið, þrumaði hún að lokum.
— En Nelly ...........
SKOLAR BURT
ERFIÐ ÖHREININDI!
Luvil er alveg nýtt! Skolefni, sem inniheldur
efnakljúfa, náttúrunnar eigin blettaeyðara.
FJARLÆGIR BLETTI, SEM EKKERT
ÞVOTTAEFNI VINNUR Á. Efnakljúfa-
kraftur Luvil leysir óhreinindin upp og eyðir
þeim. Fjarlægir svita-,eggja-,kaffi-og blóð-
bletti - en þetta getur ckkert annað efni -
Luvil er betra og öruggara en klór.
LUVIL GETUR KOMIÐ í STAÐINN
FYRIR ÞVOTT! Þar sem Luvil skolar í
burt erfiðustu blettina, verður allur frekari
jn'ottur auðveldur,- Það tekur minni tíma,
krefst minna þvottacínis og heildarútkoman
verður betri.
Luvil vinnur svo vel, að frekari
þvottur er oft óþarfur. Þér skolið
einungis og þurrkið.
cU
«3
.
nýja skolefnið
MED EFNAKLJÚFA KRAFTIÍ
X-LUV1-8844
14. tbi. VIKAN 37