Vikan - 10.04.1968, Side 52
SNÆLDUST OKKU R
Fagurlega útskorinn snældustokkur var víða bæjarprýði hér áður fyrr. Oft 'var hann kjör-
gripur, sem bar vitni um næmt. fegurðarskyn og listrænt handbragð. En það er með snældu-
stokkinn eins og fleiri af gömlu tóvinnuverkfærunum, þau heyra fortíðinni til. En íslenzka
ullin, sem svo lengi var unnin með slíkum verkfærum, heldur áfram að vera jafn nauðsynleg
og áður, þótt aðferðirnar við vinnslu hennar séu gerbreyttar. Til dæmis hefur ekki enn tekist
að framleiða efni til gólfteppagerðar, er tekur henni fram.
Axminster-gólfteppin eru eingöngu únnin. úr íslenzkri ull — gólfteppin, sem gæða hvert
heimili hlýju og fegurð og gera íbúðina ekki aðeins íbúð, heldur heimili, sem íbúarnir geta
verið stoltir af. Munið að þegar þér kaupið gólfteppi, eiga það að vera alullarteppi frá Ax-
minster, annað ekki. j é
Axminster
GÓLFTEPPAVERKSMIPJA GRENSÁSVEGI 8 SÍMI J0676