Vikan - 24.04.1968, Page 2
á
\
þad
næst bezta
nægirekki
ÞESS VEGNA BJOÐUM VIÐ VANDLATUM VIÐSKIPTAVINUM VERÐLAUNABILINN
VAUXHALL
VICTOR v68
í Morgunblaöinu 21. nóv. s.l. segir blaöamaður frá stærstu bílasýningu Bret-
lands í Earls Court í London og m. a. þetta um nýja Victorinn:
Sú enska bifreið, sem mesta
athygli hefur vakið á sýning-
unni í Karis Court, er Vaux-
hall Victor 1600 og 2000. Þessi
bifreið er eins ný og bifreiðar
gerast, þ.e.a.s. hún hefur verið
byggð upp frá frumatriðum, án
iþess að stuðzt hafi verið við
eldri gerðir af Vauxhall nema að
mjög litlu leyti.
Sýningargripur Vauxhall í
Earls Court vakti fyrst athygli
sýningargesta vegna nýrra út-
lína. Yfirbygging bifreiðarinnar
hefur verið teiknuð upp á nýtt
undir greinilegum áhrifum frá
General Motors.
Á sýningarpalli Vauxhall voru
sýnishorn af ýmsum atriðum í
undirvagni og stjórntækjum bif-
reiðarinnar, sem segja má að allt
sé nýtt. Vélin er til dæmis al-
gjörlega ný af nálinni og er ár-
angur af fimm ára undirbún-
ingsrannsóknum. Upphaflega
var markmið framleiðendanna að
byggja vél, sem framleitt gæti
50% meiri orku en þáverandi vél
ar.Vauxhall, en væri samt ekki
þyngri en þær.
Þetta hefur þeim tekizt með
ýmsum lagfæringum og nýjung-
um. Nýjungar í vélinni eru m.a.
þær, að kambásinn hefur verið
fluttur upp fyrir ventlana til
þess að losna við undirlyftu-
stengur. Vélinni hefur verið hall
að um 45 gráður til þess að
losna við hristing og fjölda-
margt annað hefur verið gert
til þess að gera vélina sem bezt
úr garði.
Gírkassi Vauxhall Victör er
tekinn úr eldri gerðum, en
tengslin og allt, sem þeim fylg-
ir er nýtt.
Fjöðrun á framhjólum er svip-
uð og í eldri gerðum, en að
aftan eru fljótandi öxlar festir
við skúffuna með örmum. Ofan
á tengiörmunum eru gormar og
höggdeyfar. HemJar á Vaux<hall
20Ö0 eru diskahemlar að fram-
an, en skálar að aftan. Á Vaux-
hall 1600 eru skálar að aftan
og framan.
Að innan hefur Vauxhall Vict-
or tekið gjörbreytingum, sem
flestar miðast við að fullnægja
kröfum Bandarikjamanna um
öryggi.
Unóirritaður óskar eftir nánari upplýsingum um NÝJA VICTORINN ’68
NAFN
HEIMILISFANG
Nýi Victorinn er að verða metsölubíll í Evrópu
Sýningarbíll á staðnum.
VAUXHALL-BEDFORD UMBOÐIÐ
Ártnúla 3, stnii 38 900.
Mikilsverðasti
hnappurinn
VIKAN birtir í þessu blaði
grein um sjónvarp og áhrif
þess á börn. Niðurstaða grein-
arinnar er sú, að sjónvarp geti
verið hættulegt fyrir börn.
Þessi skoðun byggist á víð-
tækri rannsókn, sem gerð var
í Þýzkalandi og ummælum
uppeldisfræðinga og skóla-
manna í Bandaríkjunum og á
Norðurlöndum.
Lítil reynsla er fengin fyrir
sjónvarpi og áhrifum þess hér
á Iandi og engar rannsóknir
hafa farið fram í þeim efn-
um. En reynsla annarra þjóða,
sem nolið hafa sjónvarps í
miklu lengri líma en við, ætti
að geta vakið okkur til um-
hugsunar.
Enginn ber á móti því, að
sjónvarp er fullkomnasta
miðlunartæki, sem nútíminn
hefur fundið upp. Það er stór-
kostlegt menningar- og
fræðslutæki að ógleymdum
öllum þeim ánægjustundum,
sem það veitir. En erum við
nógu varkár gagnvart börn-
um okkar? Sjá þau ekki sitt
af hverju í sjónvarpinu, sem
hefur slæm áhrif á þau? Upp-
eldisfræðingar eru flestir sam-
mála um, að það sé háskalegt
fyrir börn að horfa á glæpa-
myndir, hverju nafni sem þær
nefnast, en efni af slíku tagi
er rúmfrekt í dagskrám flestra
sj ón varpsstöðva.
Sjónvarpið hefur sína kosti
og galla eins og flest jarðnesk
fyrirbæri. Við þurfum að njóta
kosta þess og sjá til þess, að
gallar þess skaði hvorki okk-
ur né börn okkar.
Með áðurnefndri grein
fylgja sjö boðorð fyrir sjón-
varpsnotendur. Hið síðasta
hljóðar svo: Það eru margir
hnappar á hverju sjónvarps-
tæki. Mikilsverðastur er sá,
sem slekkur á því.
G.Gr.