Vikan - 24.04.1968, Side 6
Legg rækt við að sérhver skreyting eða
blómvöndur sé rétt túlkandi fyrir það tilefni
sem við á.
ÁLFTAMÝRI 7
AHÚSIÐ
simi 83070
Kjólablóm fyrir órshótíBlna.
Afmælisvendir.
BrúSarvendir,
brúðar-blóma-kóróna.
BrúSkaupsafmælisvendir.
Skrautinnpökkun ó gjöfum.
Blómaprýði við útfarir:
SamúÖarvendir, útfararvendir.
Blómsveigar, minningarvendir.
Legg yður ó róðin með að gróS-
urskreyta híbýli yðar.
Hef margra ára starfsreynslu í helztu blóma-
löndum Evrópu.
Öll blóm á gróðurhúsaverði.
ÁLFTAMÝRI 7 — SlMI 83070
UTAVER
Pilkington’s postulín veggflísar
Stærðir: 7V2 cm x 15 cm og 11 cm x 11 cm.
Barrystaines linoleum
parket gólfflísar
Stærðii 10 cm x 90 cm og 23 cm x 23 cm.
GOTT VERÐ
EINMANA EKKJA.
Kæra Vika!
í síðustu Viku var ég að
lesa bréf frá manni, sem
sagði að einmanaleikinn
væri að sliga sig.
Ég er ein af þessum ein-
mana manneskjum. Þann-
ig er háttað með mig, að
ég varð ekkja á góðum
aidri og á þrjú börn.
Síðan ég varð ein hef ég
ekki hugsað um annað en
að ala börnin upp og vinna
fyrir þeim. En nú eru þau
uppkomin og þarfnast mín
ekki lengur, sum gift.
Ég vinn úti alla daga og
finn ekki til einmanaleik-
ans á meðan. En svo þeg-
ar heim kemur er ég ákaf-
lega einmana.
Ég er hlédræg og heima-
kær og er lengi að kynnast
fólki, og út get ég ekki
farið ein. Mig langar oft
út, t. d. í leikhús eða jafn-
vel að dansa, en endirinn
verður ávallt sá, að ég sit
heima, vegna þess að mig
vantar félaga. Ég er efna-
lega sjálfstæð og hef ekki
áhuga á hjónabandi.
Nú vil ég spyrja þig,
Vika mín: Væri ef til vill
möguleiki fyrir mig að
komast í samband við
þennan mann, t. d. bréf-
lega. Ef svo er viltu þá láta
mig vita sem fyrst. En
þetta á að sjálfsögðu að
vera algjört einkamál.
Ein einmana.
Umræddur bréfritari
óskaði eftir pennavinum,
og við höfum þegar sent
honum nafn þitt og heim-
ilisfang.
AÐ FYLLA ÚT í PEYSUNA.
Góði Póstur!
Ég fann þennan snepil,
sem ég sendi þér með upp-
lýsingum um, hvar er hægt
að fá pistil með æfingum
sem stækka brjóst. Mér
hefur fundizt dálítið mik-
ið spurt um það í Póstin-
um. Ég vona, að þú getir
lesið þetta og hjálpað ein-
hverri dömunni til þess að
fylla út í peysuna.
Virðingarfyllst,
Þ. K. S.
„Snepilliiui" sá arna er
auglýsing úr amcrísku
blaði frá fyrirtæki sem
selur bæklinga með æfing-
um til þess að stækka
brjóst. Fyrirtækið ábyrgist
góðan árangur og lofar að
endurgreiða andvirði
bæklingsins, ef hann kem-
ur ekki að neinum notum.
Bæklingurinn heitir „Mark
Eden Developer and Gua-
ranteed Bustlinc Contour-
ing course“ og utanáskrift
fyrirtækisins er: „Mark
Eden, P.O. Box, Dept. TS-
35 San Francisco, Calif.
94119.“ Og auðvitað er
þessi þjónusta ekki gefin.
Það þarf að senda 9 doll-
ara og 95 cent með pönt-
uninni!
BONNIE OG CLYDE.
Kæri Póstur-
Ég hef skrifað þér
nokkrum sinnum áður, og
þú hefur alltaf birt bréfin
mín og svarað mér vel og
skilmerkilega. Ég þakka
þér kærlega fyrir það. Það
er kosturinn við þig, að þú
birtir bréf frá venjulegu
fólki, sem á við venjuleg
vandamál að stríða, en
slík bréf virðast ekki eiga
upp á pallborðið hjá öðr-
um blöðum.
Mig langaði til að lýsa
ánægju minni yfir nýju
tízkunni. Það er sennilega
af því að ég er orðin svo
gömul, að mér líkar vel
við hana aldrei þessu vant.
Hún kemur mér kunnug-
lega fyrir sjónir. Svona
vildi maður líta út, þegar
ég var á mínum sokka-
bandsárum, en því miður
voru fjárráðin ekki mikil
í þá daga, svo að sjaldan
gat maður klætt sig sam-
kvæmt nýjustu tízku.
En það er annað í sam-
bandi við þessa tízku, sem
ég kann alls ekki að meta.
Það er fyrirmynd hennar:
Þessi Bonnie og Clyde.
Eftir blaðaskrifum að
dæma fæ ég ekki betur
séð, en Bonnie hafi verið
viðurstyggilegt glæpa-
kvendi og ekki var Clyde
betri. Hvernig í ósköpun-
um stendur á því, að ung-
lingamir taka þetta
þokkalega par sér til fyrir-
myndar og gera það að
dýrlingum?
Ég hef alltaf staðið með
æskunni og varið hana
eftir beztu getu, en nú Hzt
mér ekki á hana. Mér er
ekki kunnugt um, hvort
þetta Bonnie-æði hefur
6 VIKAN 16 tw-