Vikan - 24.04.1968, Síða 8
Winther bríhiðl
VI
fást í þrem stærSum.
Einnig reiðhjól í
öllum stærðum.
Spítalastíg 8. - Sími 14661. - Pósthólf 671.
NÝ ELDAVÉL, GERÐ 6604, MEÐ 4 HELLUM,
STÖRUM STEIKAR- OG BÖKUNAROFNI.
Yfir- og undirhiti fyrir steikingu og bökun,
stýrt með hitastilli. Sérstakt glóðarsteikar
eliment (grill), stór hitaskúffa, Ijós í ofni.
Þríreiðhjól
Brezki verkfræðingurinn Ge-
orge Wallis í Surbiton, Surrey,
hefur fundið upp þríhjól, sem
vakið hefur mikla athygli. Það
hefur verið framleitt sem stíghjól
í tveimur gerðum, og bifhjól.
Það merkilegasta við þríhjólið
er að framhjólið hallast í fjöru-
tíu og fimm gráða horn þegar
farið er fyrir götuhorn eða tekin
U-beygja, en afturhjólin hnikast
hvergi. Höfuðkosturinn er að hjól
þetta lætur engur miður að sjórn
eji reiðhjólið en er jafnframt
stöðugt eins og þríhjólið. Það er
mjög létt í keyrslu.
Vélknúna gerð þríhjólsins get-
ur flutt einn farþega. Sú gerð
kostar í Englandi um fjórtán þús-
und krónur, en stíggerðin aðeins
fjögur þúsund. Uppfinningamað-
urinn undirbýr nú framleiðslu á
þriðju gerðinni, sem á að geta
flutt léttan farangur.
Hann er kallaðnr
„Raspótín Bandarikjanna“
Walt Whitman Rostow: Banda-
ríski herinn verður að sigra í
Víetnam!
Nú er svo komið að bandarísku
hershöfðingjamir í Víetnam fá
næstum eins marga hermenn og
mikið af hergögnum og þeir fara
fram á. Það er fyrst og fremst
sagt að þakka eða kenna einum
manni: Walt Whitman Rostow,
sem er fimmtugur að aldri.
Upp á síðkastið hefur Rostow
þessi komizt í mikla kærleika
við Johnson forseta og er nú einn
hans nánustu ráðgjafa. Hann
kvað vera einn herskáasti „hauk-
urinn“ í þeim hópi, enda sjá hers-
höfðingjarnir ekki sólina fyrir
honum. Sumir bandarískir blaða-
menn hafa titlað hann „Raspútín
Bandarikjanna". Áhrifavald hans
yfir forsetanum kvað hafa stór-
aukizt síðasta hálfa árið. Hann
er talinn hafa valdið mestu um
síaukna þátttöku Bandaríkjanna
í Víetnamstríðinu og er sagður
hafa sannfært forsetann um nauð-
syn þess að varpa sprengjum á
Hanoi og Haiphong. Eina lausn-
in, sem hann getur hugsað sér
á Víetnamvandamálinu, er hern-
aðarlegur sigur Bandaríkjanna.
Þegar í tíð Kennedys var Rost-
ow, sem er þjóðhagfræðingur að
mennt og sonur rússnesks inn-
flytjanda, orðinn áhrifamikill
ráðgjafi í Hvíta húsinu. Þegar
Kennedy var myrtur sögðu flest-
ir nánustu samstarfsmenn hans
af sér — nýja forsetanum til
mikillar hrellingar. En Rostow
hreyfði sig hvergi. Hann var sá
eini af ráðunautum Kennedys,
sem kom fram við Johnson af
fullri vinsemd, meðan sá síðar-
nefndá var aðeíims varaforseti.
Kennedy geðjaðist ekki fullkom-
lega að Rostow, fannst hann of
„bóhemalegur", en annars mjög
fær maður. Þá þegar hafði Rost-
ow tekið upp þann hátt, sem
hann hefur haft á síðan, að láta
sem minnst á sér bera opinber-
lega.
8 VIKAN Ifi- tbh'