Vikan


Vikan - 24.04.1968, Page 11

Vikan - 24.04.1968, Page 11
Viö þurfum að gera okkur greín ffyrir gölium sgönvarpsins engu síöur en kostum þess. Viö þurff- um að njöta kostanna, en búa þannig um hnútana, að gaiiar þess skaöi okkur ekki.__________ f þessari grein er sagt ffrá um- ræöum I nágrannaiðncaum okkar unn stærsta ókost sgönvarpsinss Slæm áliriff þess á öörnín. HJETTULEGT FVRIR RORN til foreldranna. Það kynni að verða til einhverr- ar hjálpar. Hér er miklu meira í húfi en flestir gera sér grein fyrir, segja norskir skólamenn. Auk þreyt- unnar og sljóleikans sem stafar af miklu sjón- varpsglápi, er það vísindalega sannað, að glæpamyndir hafa slæm áhrif á börn. Þau verða frekari og ágengari og æstari [ skapi við að horfa á þær. Sigurd Evensmo, sem á sæti í kvikmyndaeftir- litinu norska, segir: „Það má segja, að það sé meira öryggi fyrir börn að horfa á kvikmyndir heima hjá sér, þar sem foreldrar þeirra eru til staðar, heldur en í dimmum sal kvikmyndahúss. En spurningin er fyrst og fremst, hvort foreldrar geri sér fylli- lega grein fyrir, hversu hættulegt sjónvarpið er. Ef þeir leyfa börnum sínum að horfa á kvik- myndir eða sjónvarpsþætti, sem Kklegt er að hafi slæm áhrif á þau, þá verða þau að minnsta kosti að tala við krakkana á eftir um efni mynd- arinnar. En oft getur slíkt verið hægara sagt en gert. Heimilisfaðir nokkur var að útskýra fyrir syni sínum, að lokinni glæpamynd, að hann þyrfti ekkert að óttast. Þetta væri allt t lagi; þetta hefði bara verið kvikmynd; allt sett á svið og leikið. Þetta væri engin alvara, heldur bara leikur. Þá spurði snáðinn: „En hvers vegna er verið að leika þetta?" Föðurnum varð að vonum svarafátt. Onnur lausn á þessu vandamáli gæti verið að fræða börn um kvikmyndir almennt. Sl(k kennsla ætti að sjálfsögðu að fara fram í skól- Framhald á bls. 44. SJÚ BOÐORÐ FYRIR SJÓNVARPSAHORFENDUR Tveir uppeldisfræðingar við háskólann í Hamborg, prófessor Fritz Stijckrath og dr. Georg Schottmayer, hafa komizt að eftirfarandi niðurstöðum eftir fimm ára rannsóknir á sjón- varpi og áhrifum þess á börn. Niðurstöður sínar kalla þeir „Sjö boðorð fyrir sjónvarps- áhorfendur". 1. í byrjun hverrar viku skulu foreldrar lesa vandlega sjónvarpsdagskrána og velja úr þá dagskrárliði, sem eru við hæfi barna. ’ur W; MsmmKOKhi&at jj 2. Börn yngri en SEX ára eiga yfirleitt ekki að horfa á sjónvarp. Það er vísindaiega sannað, að dagskrárliðir sjónvarps, nema um sé að ræða barnatíma, sem sérstaklega eru ætlaðir yngstu hlustendunum, hafa slæm áhrif á börn á þessum aldri. Þeir hafa ekkert gildi fyrir þau, hvorki með tilliti til fræðslu né skemmtunar. 3. Börn á aldrinum 6 til 9 ára eiga að fá að horfa á sjónvarp, ef um er að ræða dag- skrárliði, sem þau geta skilið og vekja ekki ótta hjá þeim. 4. Látið aldrei börn sitja ein við sjónvarpstækið. Einhver fullorðinn verður alltaf að vera hjá barninu til þess að svara spurningum þess og til þess að útskýra fyrir því, það sem það skilur ekki og koma í veg fyrir, að barnið verði hrætt. Á eftir er mjög gott að ræða efni dagskrárinnar við barnið — til þess að kenna því að dæma sjálft það sem það sér í sjónvarpinu. 5. Foreldrum ber að gæta þess vel, að frítímar barnsins séu fyrst og fremst notaðir til leikja og hreyfingar. Það má alls ekki vanrækja leiki barnsins vegna sjónvarpsins. Foreldrar skulu gæta þess, að sitja ekki sjálfir sýknt og heilagt fyrir framan sjón- varpstækið. Hætta er á, að börnin taki slíkan óvana upp eftir foreldrum sínum. Á sjónvarpstækinu eru margir takkar. Mikilvægasti takkinn fyrir barnafjölskyldur er sá, sem notaður er - TIL ÞESS AÐ SLÖKKVA Á T/EKINU. 6. 7. 16. tw. VIKAN 11

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.