Vikan - 24.04.1968, Qupperneq 14
FORSAGA
Hún hafði njósnað um þau í
þrjá daga, áður en upp um hana
komst og vissi hvernig þau litu
út og hvað þau hétu. Þau vissu
ekkert um hana, hvorki hvaðan
hún kom eða hver hún var og það
var ekki ætlunin að þau fengju
að vita það.
Höllin og garðurinn voru um-
lukt háum múr, en á hluta var
girðing í staðinn fyrir múrinn og
þar hafði hún rambað á smá
glufu, sem hún gat skriðið í gegn-
um.
[ElSirii [Dln pflí m rrTí TP ÍKW fisr flnmcn |U| rrp
UQo m uu Jœ) m m \m JJUJJIlLL l lil
Fyrsta daginn hafði hún hugsað
sér að taka með sér myndavélina,
en skipti um skoðun og tók
teikniblokk með sér í staðinn.
Sem betur fór var hún all sæmi-
legur teiknari. Nægilega góður
til að geta sannfært sig um að
hún væri afar saklaus listnemi í
leit að skemmtilegum fyrirmynd-
um, ef svo illa færi að upp um
hana kæmist.
Rétt upp úr ellefu sá hún þau
koma með gömlu konuna í hjóla-
stólnum. Maðurinn sem ýtti hon-
um var hár og afar laglegur eða
hafði verið það, hefði hann ekki
verið svona beiskur og hroka-
fullur á svipinn. Hún hafði heyrt
í veitingahúsinu að hann hefði
verið grunaður um morðið á
James Macfarlane, syni gömlu
konunnar og þeir voru til sem
litu þannig á, að hann hefði ekki
átt að hljóta sýknun. En það var
greinilegt að L.ady Macfarlane
var mjög háð honum.
Hjúkrunarkonan sem þau köll-
uðu Dobie og ráðskonan frú
Griffin komu á eftir og báru
með sér borð, blöð, sjal, og þegar
þau höfðu gert þægilegt í kring-
um gömlu konuna fóru þau aftur.
Stúlkan hélt áfram með teikn-
inguna sem hún var byrjuð á.
Nokkru síðar sá hún Lady Mac-
farlane teygja sig eftir blaði, hún
rak sig í borðið og er hún reyndi
að koma í veg fyrir að það ylti,
leit út fyrir að hún myndi falla
úr stólnum.
Stúlkan þaut fram. Gamla kon-
an starði á hana og reis hægt á
fætur. Andardrátturinn var ör og
óreglulegur: — Lísa, hvíslaði
hún. — Lísa — litla, stúlkan
mín....
Hún tók nokkur riðandi skref
og stúlkan sem sá manninn og
báðar konurnar nálgast sagði
fljótmælt: — Ég heiti Barbara
Marsten. Fyrirgefið að ég gerði
yður hrædda! Ég ætlaði ekki að
gera það.
Lengra komst hún ekki, þvi
henni var hrint tii hliðar svo
harkalega að hún var nærri dott-
in. Síðan lyfti maðurinn — hún
vissi að hann hét Rick Fraser —
gömlu konunni upp í fangið, gaf
konunum fyrirmæli um að
hringja eftir lækni. — Og þér —
hann leit reiðilega á Barböru. —
Þér gerið svo vel að koma með.
Ég vil fá skýringu.
Síðan fékk hún fyrirmæli um
að bíða í ganginum og þar sem
hún vildi ekki fara fyrr en hún
vissi hvemig þeirri gömlu myndi
reiða af, stóð hún hlýðin kyrr.
Og að lokum kom hann. Hún
hafði búið sig undir óþægilega
stund. en þetta var verra en hún
hafði nokkru sinni getað ímynd-
að sér. Hún hafði aldrei verið
meðhöndluð jafn svívirðilega á
allri sinni ævi.
Og síðan hafði hann neytt hana
til að sýna honum gatið í girð-
ingunni og horft hæðnislega á
meðan hún fikraði sig í gegnum
það með miklum erfiðismunum.
Hún haltraði það sem eftir var
að girðingunni, þar sleppti hann
henni svo snögglega að hún var
næstum rokin um koll aftur.
Hann leit á glufuna og lyfti
augabrúnunum af undrun. Svo
virti hann hana fyrir sér frá
hvirfli til ilja með glettnis-
glampa í augum.
— Það verður gaman að sjá
þetta, sagði hann þurrlega.
Að ála sér gegnum þetta litla
gat hafði aldrei verið auðvelt
og að gera það núna fljótt og
glæsilega, frammi fyrir kulda-
legum og gagnrýnum augum
hans var einfaldlega óhugsandi.
Vegna rifnu buxnanna áleit hún
rétt að fara með fæturna á und-
an, sem reyndist fljótlega vera
mikill misskilningur.
Henni heppnaðist að iða sér
innundir girðinguna, alveg upp
að öxlum en þar stóð hún föst.
Blússan kræktist í gaddavírinn
og rifnaði þegar hún sleit sig
lausa. í bræði sinni rykkti hún
sér lengra og festi sig aftur. Að
þessu sinni var það hárið sem
kræktist í, og það var eins og
hún ætlaði að rífa það upp með
rótum, þegar hún rykkti í til að
losa sig. •
Nú var hún hálfpartin farin að
vola af geðofsa og varnarlausu
hatri gagnvart manninum sem
stóð þarna aðgerðarlaus og
horfði upp á vesaldóm hennar.
Svo beygði hann sig og hún
fann að hann kom við hárið á
henni.
— Liggið kyrr, fíflið yðar,
sagði hann. — Því meira sem
þér streitizt verður það verra,
það ættuð þér að geta skilið.
Hún lá kyrr með samanbitnar
tennur, þar til hann sagði: —
Svona nú, nú er þetta að koma.
Þá rykkti hún enn einu sinni til
höfðinu, en hana sveið eins og
hún hefði brennt sig, þar sem
hárlokkur hafði slitnað af.
Hún reis á fætur og starði á
hann heiftúðug í gegnum girð-
ingima, bein í baki og næstum
siolt á svip. Hann spyrnti til
hennar töskunni og hún dró and-
ann djúpt og sagði:
— Áður en ég fer vil ég láta
þess getið að þér eruð óþægi-
legasti ......
— Ég hef engan áhuga fyrir
skoðunum yðar, svaraði hann
þreytulega. — En áður en þér
farið vil ég að þér heitið því
að gera þetta aldrei aftur.
— Ég lofa engu!
— Þá get ég lofað yður
nokkru. Ef þér haldið yður ekki
burtu frá þessum stað skal ég
kenna yður lexíu sem þér
gleymið aldrei. Og ég held æv-
inlega heit mín.
Þau stóðu eitt andartak og
horfðust í augu og aftur fann
hún til þessarar hræðslu. En
hún var harðákveðin í því að
hann skyldi lítan undan en ekki
hún. Það gerði hann ekki.
Þegar hún beygði sig óstyrk eft-
ir töskunni starði hann enn á
hana með sama hrokafulla,
kuldalega augnaráðinu, svo
snéri hann sér við og fór.
— Við skulum nú sjá til, hróp-
aði hún ögrandi á eftir honum,
en hann hélt áfram eins og síð-
asta orðið hefði verið sagt og
hún afgreidd í eitt skipti fyrir
öll.
— Við sjáum nú til, endurtók
hún hörkulega við sjálfa sig um
leið og hún lagði af stað í átt-
ina að þorpinu.
Það voru nærri þrír kílómetr-
ar yfir mýrina til þorpsins og
óþægileg ganga á ójöfnum stíg
með snúinn fót, en það gaf henni
að minnsta kosti eitthvað annað
að hugsa um, en það sem fyrir
hana hafði komið um daginn og
þess var hún mest þurfti sem
stóð.
Hún vissi að þessi mýri var
kölluð Svartafen, vegna fenjanna
sem þar voru sum voru botnlaus
kviksyndi. Þeir sem höfðu vog-
að sér út af stígnum höfðu sumir
lent í heldur óþægilegum ævin-
týrum á þessu svæði. Auðnin
teygði sig eins langt og augað
eygði. Þar var ekki tré að sjá,
aðeins nokkrir runnar hér og þar,
varla nokkurt líf, nema einstaka
kind, eða litlir rjúpnahópar sem
við og við flugu upp rétt við fæt-
ur hennar.
Þetla var ekki staður sem nokk-
ur myndi ■kjósa að ganga um
14 VIKAN 16-tbl-