Vikan - 24.04.1968, Page 16
THE BEACH BOYS.
VINSÆLDIR
MAHIRISHI
AUKAST
Indverski jóginn Mahirishi Mahesh
eykur stöðugt við vinsældir sínar
enda hefur hann fengið sér tii full-
tingis við útbreiðslu speki sinnar
liðsmenn ýmissa nafntogaðra hljóm-
sveita, þar ó meðal Bftlana, eins
og kunnugt er — og einnig liðs-
menn bandarísku hljómsveitarinnar
The Beach Boys. Maharishi er þeg-
ar orðinn vel þekktur í Bretlandi,
en víst er um það, að hefði Bítl-
anna ekki notið við, vissi enginn
haus né dindil ó manninum. Nú
ætla The Beach Boys að gefa
Bandaríkjamönnum kost á að kynn-
ast jóganum og það með nokkuð
óvenjulegum hætti. Verður hér um
að ræða þriggja vikna hljómleika-
ferð hjá hljómsveitinni og mun Ma-
harishi koma fram á hljómleikun-
um. Brian Wilson, einn liðsmanna
Beach Boys, hefur samið sérstaka
tónlist til flutnings á hljómleikum
þessum. Er þetta að sögn mjög
óvenjuleg músik með guðrækilegu
ívafi. Fyrri helming hljómleikanna
munu Beach Boys leika þessa alvar-
legu músik sína, en síðan tekur
jóginn við og heldur fyrirlestur og
svarar spurningum áheyrenda á
eftir. The Beach Boys hafa að und-
anförnu dvalizt í Indlandi, þar sem
þeir hafa setið við fótskör meist-
ara síns og hlýtt á vizku hans.
Ekki alls fyrir iöngu birtist nafnið Don Partridge á vinsældalistanum brezka
í fyrsta sinn. Fæstir vissu, hver Don Partridge var cn lagið, sem hann söng,
Rosie, lét vcl í eyrum — og söngurinn hreint ekki verri en gengur og gerist.
Margir urðu l>ví að vonum undrandi, þegar í ljós kom, að Don Partridge var
umferðasöngvari og betlari og hafði það að atvinnu að leika á gítar, munnhörpu
og trommur fyrir vegfarendur á Leicester torgi meðan cinhver vinur hans gekk
meðal manna og safnaði skildingum í krukku. Trommuna hafði hann á bak-
inu og munnhörpuna í gjörð um hálsinn. Þótt Don segist hafa haft góðar tekj-
ur af þessum starfa (um 70 pund á viku), hyggst hann nú hverfa af götunni
enda hefur hann viða fengið tilboð um að koma fram. Don samdi sjálfur lagið
Rosie, og hann segist hafa fieiri lög í pokahorninu, sem hann hefur áhuga á
að koma á framfseri.
DAVE DAVSEl
Dave Davies hefur nú sent frá
sér tveggja laga plötur með lög-
unum „Death of a clown“ og
„Susanna is still alive“ — og
hafa báðar plöturnar fengið
mjög góðar viðtökur. Það kom
mörgum á óvart, að Dave skyldi
byrja að syngja upp á eigin spýt-
ur. Þess ber þó að gæta, að und-
irleik á plötum hans annast fé-
lagar hans úr Kinks. Þetta til-
tæki hefur verið skýrt þannig,
að Dave muni syngja á plötur
lög í þeim dúr, sem gert hafa
The Kinks svo vinsæla hingað
til. Sjálfir hyggjast Kinks nú
breyta um spilamáta og er það
að þeirra eigin sögn „til þess að
hjakka ekki alltaf í sama far-
inu“. Kinks eru tvímælalaust
með betri hljómsveitum í Bret-
landi. Hljómsveitin nýtur hæfi-
leika Ray Davies, sem hefur
samið öll þau lög, sem gert hafa
Kinks vinsæla. En lögin, sem
Ray semur nú, eru talsvert frá-
brugðin þeim, sem hann samdi
fyrst, þegar hljómsveitin var að
koma fram á sjónarsviðið. Lög-
in, sem Dave, bróðir hans, sem-
ur og syngur eru hins vegar af
þeim toga. Með þessu móti geta
Kinks gert öllum fylgjendum
sínum til hæfis: Þeir sem kunna
bezt að meta músik, eins og þá
sem þeir fluttu í eina tíð, kaupa
plötur Dave Davies — en þeir,
sem vilja fylgjast með nýjum
hugmyndum Ray Davies kaupa
plötur með The Kinks á merki-
miðaniun.
nnwm
—T^Tt"
16 VIKAN 18-*W-