Vikan - 24.04.1968, Page 18
SUMMSNJtKARUNN
as^i?;
BARNASAGA OG TEIKNINGAR
EFTIR HERDÍSI EGILSDÓTTUR
Villa og Palli voru systkin.
Þau voru 5 og 6 ára gömul.
Sagan um þau gerist
um sumarmálin.
Einn síðasta dag vetrarins
voru þau úti í garði
að búa til snjókarl.
Þau voru mjög hlýlega klædd,
því ennþá var frost
og gríðarmikill snjór.
Þótt þau væru ung
vissu þau að sumarið
var í nánd
og til þess hlökkuðuþau mikið
„Þetta verður síðasti
snjókarlinn okkar í vetur“,
sagði Villa með spekingssvip.
„Já, áreiðanlega“svaraði Palli
„því sumarið kemur bráðum“.
„Ég hlakka svo mikið til
á sumardaginn fyrsta“,
sagði Villa og Ijómaði í framan,
„Heldurðu ekki, að það verði
gaman að vakna um morguninn
og hlaupa út í sundbol
og tína blóm og ber?“
Villa baðaði út höndunum,
á meðan hún hélt þessa ræðu.
Palli varð eitt
spurningarmerki í framan.
„Segir þú satt?
Hverfur snjórinn um nóttina
og verður heitt og gott
strax um morguninn?"
„Hvað heldur þú, drengur?
Það væri nú eitthvað skrítinn
fyrsti sumardagur,
ef það yrði ekki“,
sagði Villa hreykin.
Hún var árinu eldri
en bróðir hennar,
og hún taldi það skyldu sína
að fræða hann
um lífið og tilveruna.
„Jú, sko. Annars héti það ekki
18 YIKAN 16-tw-
J