Vikan - 24.04.1968, Side 37
— Frederik . .? heyrði hann.undr-
andi, en vel kunna rödd svara. —
Ó, ert það þú, Frederik, — drottinn
minn ....
Hann var kyrfilega búinn að und-
irbúa sig undir það sem hann ætl-
aði að segja, en hann var búinn að
gleyma öllu, hann gat aðeins stun-
ið upp: — Marit. . .
— Hvernig líður þér, drengur
minn? En hvað það er gott að
heyra að þú — að þú . . . .
— Ég hef það ágætt, ég er við
beztu heilsu, en viltu ekki lofa mér
að segja nokkur orð við Marit. . .?
— Frederik, ertu þarna . . . .? Ja,
Frederik, mér þykir leiðinlegt að
segja þér það,' en Marit — Marit
gifti sig fyrir tveim árum, og býr
í Bergen núna.
Hann var kyrr í London þangað
til í ágúst, þá kvæntist hann Jane
í amerfsku kirkjunni, og nokkru sfð-
ar fóru þau til Ameríku. Jane vildi
endilega að hann færi heim til
Noregs, áður en hann sigldi yfir
hafið, en honum fannst ekki að
hann hefði neitt heim að gera. Það
var enginn sem beið hans þar. For-
eldrar hans höfðu bæði dáið fyrir
strfð, og hann hafði alizt upp hjá
ömmu sinni og afa, en þau voru
líka horfin. Hvað átti hann að gera
með að fara heim?
Einn daginn fékk Jane hann til
að setjast við hlið sér. Hún sagðist
vilja tala við hann af fullri hrein-
skilni.
— Ég vil ekki að Marit standi á
milli okkar á komandi árum. Ég
hef sagt það áður, og ég segi enn-
þá, að mér finnst að þú eigir að
fara til Noregs, áður en þú búsetur
þig í öðru landi.
En hann var óbifanlegur. — Það
kemur aldrei neitt á milli okkar,
sagði hann. Við það róaðist hún
og skildi það að hún gat verið
alveg örugg ....
,,Fasten seat belts" stóð með
rauðum stöfum yfir dyrum stjórn-
klefans, og skömmu siðar lenti flug-
vélin, létt og þægilega.
Hann var nú i stjórn við stórt
fyrirtæki f Seattle, og hann þurfti
meðal annars að fara til Bergen í
viðskiptaerindum. Seinna þurfti
hann að halda ferðinni áfram og
fara til Þýzkalands, Frakklands og
ftalíu, sömu erinda, og þá ætlaði
Jane og báðir drengirnir að slást f
förina, þau voru með skipinu Berg-
ensfjord.
Þegar hann steig fæti á norska
grund, eftir rúm tuttugu ár, var
ekki laust við að hann yrði fyrir
undarlegum áhrifum, en hann fékk
ekki tíma til að dvelja við þau.
Viðskiptasambandið f Bergen hafði
sent menn til að taka á móti hon-
um á flugvellinum, og svo um kvöld-
ið var haldin mikil móttökuveizla
fyrir hann á Hotel Norge. Fyrirtæk-
ið hafði boðið öllum deildarstjórum
sínum með konum þeirra til veizl-
unnar.
Þá hitti hann Marit aftur. Hún
kom inn f salinn, við hlið eiginmanns
sfns, sem var Leif Lomer deildar-
stjóri. Hún var glæsileg, þótt árin
Luvil er alveg nýtt! Skolefni, s'em inniheldur
efnakljúfa, náttúrunnar eigin blettaeyðara.
FJARLÆGIR BLETTI, SEM EKKERT
ÞVOTTAEFNI VINNUR Á. Efnakljúfa-
kraftur Luvil leysir óhreinindin uþp og eyðir
þeim. Fjarlægir svita-,eggja-,kaífi-,og blóð-
bletti - en þetta getur ekkert annað efni -
Luvil er betra og öruggara en klór.
LUVIL GETUR KOMIÐ í STAÐINN
FYRIR ÞVOTT! Þar sem Luvil skolar í
burt erfiðustu blettina, verður allur frekari
þvottur auðveldur.- Það tekur minni tíma,
krefst minna þvottaefnis og heildarútkoman
verður betri.
Lu\-il vinnur svo vel, að frekari
þvottur er oft óþarfur. Þér skolið
einungis og þurrkiS.
•ViSSrv.
nýja skolefnið
MED EFNAKLJÚFA KRAFTIf
X-LUVl-8844
SKOLAR BURT
1ERFIÐ ÖHREININDI!
1«. tbi- VIKAN 37