Vikan - 24.04.1968, Page 49
sá bara stórt rúmið með háu
stólpunum, vaxfölt andlit gömlu
konunnar á koddanum og útlín-
ur líkama hennar undir ábreið-
unni.
Hljóðlaust gekk hún yfir gólf-
ið og lét fallast niður í stólinn
við hliðina á rúminu.
Gamla konan lá með lokuð
augun og andardrátturinn var
tíður og erfiðislegur. Við og við
fóru kippir um höfuðið og and-
litsdrættirnir vipruðust eins og
hún ætlaði að fara að gráta. Það
sem fyrir hana bar í draumnum
hlaut að vera eitthvað sem
hrelldi hana og Barböru var
þungt um hjartað af meðaumk-
un.
Allt í einu opnaði hún augun.
Þau voru eins og í móðu og það
leyndi sér ekki að hún sá ekkert
ákveðið og Barbara hallaði sér
fram og tók um hönd hennar.
Hægt og hikandi sneri hún
höfðinu, svo brosti hún og það
færðist líf í augun. — Lísa,
hvíslaði hún. — Þú ætlar ekki
að fara frá mér aftur? Þú ætlar
að vera kyrr hjá mér?
Barbara kyngdi munnvatni
sínu: — Já. Ég skal vera kyrr,
því lofa ég.
LIL-JU
LILUU
LILLIU
LILJU
LILJU BINDI
ERU BETRI
Fást í næstu búð
ansáiquc
j&íórcenmginn
Framhald af bls. 31
ekki haldið aftur af sér að þjóta henni til hjálpar með óþolinmæði,
sem bar keim af öðru og meira en skyldurækni gagnvart óstýrilátri
eiginkonu.
Svo fékk hann allt í einu og óvænt skilaboð frá Osman Faraji: •—
Komdu fljótt ...... konan, sem himnarnir hafa trúað þér fyrir, er
í háska stödd .....
Þegar hér var komið í upprifjunum, stóð Joffrey de Peyrac skyndi-
lega upp í klefa sinum i Gouldsboro. Skipiö hnykktist til, fyrst á annan
veginn, svo á hinn, svo hann hafði næsturn tapað jafnvæginu. —
Stormurinn hefur brotizt út, muldraði hann.
Olíukyrr haflöturinn um sólarlagið hafði boðað komandi storm og
þetta voru fyrstu merkin. Hann stóð kyrr og hafði langt milli fóta
til að eiga auðveldara með að halda jafnvæginu.
Hugsanir hans drógust stöðugt aftur til fortíðarinnar, þær voru
hvitar eins og sólin, rauðar sem blóð.
—- Komdu fljótt ...... Konan, sem himnarnir hafa trúað þér fyrir
er í háska stödd .....
Þannig voru endarnir hnýttir saman til að tengja þau á ný.
En þegar hann kom til Meknés var Osman Faraji allur; hafði látið
lifið fyrir rýtingi kristins þræls. Daunninn af valköstunum blandað-
ist saman við ilminn af rósunum i görðunum ........
Hverjum Gyðingi í Gyðingahverfinu, allt frá brjóstmylkingum til
gamalmenna yfir tírætt, hafði verið slátrað að skipun soldánsins. Um
ræðuefnið var aðeins eitt: Flótti sjö kristinna þræla, þar á meðal
konu úr kvennabúrinu.
— Og hvílik kona, vinur minn, sagði Mulai Ismail og augu hans
stóðu á stiikum af næstum lotningarkenndri aðdáun: — Hún reyndi
meira að segja að skera mig á háls ...... Sjáðu bara. Og hann sýndi
honum örið á hálsinum.
— Og með mínum eigin rýtingi. Þesskonar snilld dáist ég að. En
mér hefur verið sagt, því miður að ég sé þrautleiðinlegur. Hún þoldi
meira að segja pínslir. Ég fyrirgaf henni vegna þess að hún var
allt of íalleg og vegna þess að yfirgeldingurinn minn krafðist þess
eindregið að ég gerði það. En hvaða eitri hafði henni lánazt að
lauma að þeim óspillta manni? Því nú er hann dáinn, vegna veikleika
síns fyrir henni. Hann, sem var svo sterkur og vís. Og henni heppn-
aðist að flýja. Hún var djöfull i konulíki.
Joífrey þurfti varla að spyrja um nafn hennar. Hann gat sér þess
þegar í stað til. Þrátt fyrir ógeðið komst hann ekki hjá því að vera
jafn hrifinn og soldáninn.
— Já, hvílík kona, vinur minn. Og svo sagði hann Mulai Ismail, að
þessi kona væri í rauninni hin franska eiginkona hans, og hann hefði
komið aftur til að kaupa hana lausa, þegar hann frétti að hún væri
hér. Mulai Ismail prísaði Allah hástöfum fyrir óstýrilæti Angelique,
sem hafði bjargað honum, foringja hinna trúuðu, frá að baka sínum
bezta vini óbærilega svivirðu, enn verri vegna þess að enginn sannur
Múhameðstrúarmaður mátti nokkru sinni sænga með konu sem átti
eiginmann á lífi. Hann hefði fúslega látið hana af hendi o,g einskis
lausnarfjár krafizt. Slik voru lög Kóransins.
Soldáninn hafði enn von um að grípa hana og hina þrælana sem
flúið höfðu. Hann hafði sent menn sína í allar áttir að leita að þeim
með fyrirmæli um að drepa þegar í stað alla karlmennina en koma með
konuna lifandi til baka.
Fyrst komu fréttir og síðan nokkur höfuð, svört af storknuðu
blóði og Mulai Ismail sá þegar Colin Paturel var ekki þeirra á
meðal.
— Og konan? spurði liann.
Hermennirnir sögðu honum að kristnu þrælarnir hefðu sagt þeim
allt sem þeir vissu, áður en þeir létu lífið. Þegar þeir náðust hafði
konan ekki verið með þeim, hún hafði dáið af slöngubiti fyrr og
félagar hennar grafið hana í eyðimörkinni. Mulai Ismail reif klæði
sín. Reiði hans var blönduð harmi yfir því að geta ekki sýnt vini
sínum, sem hann mat svo mikils, þann höfðinglega vináttuvott, sem
hann hefði óskað. Og hann skynjaði tregann bak við æðrulausan svip
hins kristna vinar síns.
— Viltu að ég drepi einhverja fleiri? spurði hann Joffrey de Peyrac.
—• Til dæmis þessa heimsku hermenn sem tókst ekki að hafa upp á
henni, áður en hún dó? Sem létu hana sleppa ........ Lyftu vísifingri
og ég skal láta skera þá alla á háls.
Joffrey de Peyrac afþakkaði þennan blóðuga vináttuvott og bældi
niður ógeðið.
Um alla höllina, sem enn angaði af eldi og drápum, ríkti andi yfir-
geldingsins ennþá og Joffrey fannst hann heyra hina söngrænu rödd
hans segja: — Við hér trúum á guð og úthellingu blóðs í nafni hans
..... Þú, þú verður alltaf einn.
Allt i einu varð honum ljóst tilgangsleysi allra áætlana hans, allra
hans hugsana, jafnvel óska. Hversu hlægilegt var þetta alltsaman!
Og hann var þess alls ómegnugur að samræma þessa tvo heima, þann
kristna og heim Múhameðstrúarmanna sem í rauninni lutu þó allir
sama almætti — almætti guðs.
öll réttindi áskilin, Opera Mundi, Pai'is.
—
Ferða plötuspilari
33 og 45 sn., kr. 1712,00.
Lang-, mið- og stuttbylgju-
útvarp ásamt plötuspilara,
kr. 5163,00.
Ferða-segulbönd fyrir 220 V
og battery, kr. 4255,00,
4935,00, 5560,00, 7209,00.
Stereo kr. 8056,00,
16.985,00.
v
FM-, mið- og langbylgju,
220 V og battery 3074,00 kr.
220 V og battery 4096,00 kr.
220 V og battery 4528,00 kr.
Langdrægt. Lang-, mið- og
stuttbylgju 2638,00 kr og
2010,00 kr.
\ RAFIÐJAN HF.
■Ch-J VESTURGÖTU 1'
SÍMI 1 9 2 9 ^
___________________________•
’• “ VIKAN 49