Vikan - 25.07.1968, Side 11
i' iuttir VPrða á næstunni þrír Jiættir meS Sinfóníulil.iómsveit íslanðs, en hljómsvcitin hcfur ckki áður
ltomið fram i sjónvarpiuu.
l orsytc-ættin saman komia: Efsta röö frá vinstri: Fran-
's Jrsula Howeils), Georgc (Jolm Barcroft), Helene
iLana Morris), M- :ty (Terejice Aiexander), Winifred
i'Jaryr.Tet Tyzack). önnur röð frá vinstri: Nicliolas
(Kynaston Reevcs), ítur.ar (A. J. Brown), Soames (Eric
I’orter), Irenc (Nyrec Dawh Porter), Jo (Kenneth
.Toore), Emily (Fanny Kovve, Timothy (John Baskcomb),
J.virr(John Welsh). Þriöja röð frá vinstri: Julcy (Nora
Nich.ilson), Swithin (Gcorge Woodbridge), Ann (Fay
íoii' uton), Jolyon (Joseph O'Conon), Hcster (Nora
Swinburne). Fremst: Junc (June Barry) og Bosinney
(John Bennett).
i’orkeli Sigurbjörnsson stjórnar liáttum, par sem liljóm-
sveitin leikur vcrk fyrir ungt fólk.
Melander við undirleik Ólafs X/ignis
Albertssonar. Hún syngur sænsk
þjóðlög og óperuaríur. í hinum
þættinum syngur Ólafur Þ. Jónsson,
einnig við undirleik Ólafs Vignis
Albertssonar. Ólafur hefur sungið
víða á skemmtunum, síðan hann
kom heim í vor og nýtur vaxandi
vinsælda. Hann syngur bæði inn-
lend og erlend lög ( sjónvarpsþætti
sínum.
Þá er væntanleg dagskrá með
Kennaraskólakórnum, en hann hef-
ur óður komið fram í sjónvarpinu.
Að þessu sinni syngur kórinn ein-
göngu Islenzk þjóðlög: Maíljóð, Ver-
óld flóa, Krummi krunkar úti, Spuna-
vlsur, og Vísur Vathsenda-Rósu.
Stjórnandi er Jón Ásgeirsson.
Los Angeles Brass Quintett var
staddur hér I vetur og lék þá fyrir
sjónvarpið fúgu I E-moll eftir Bach
og þrjár kaprísur eftir Paganini.
Frá Nordvision hefur borizt dag-
skrá frá Norðurlandamóti barnakóra,
en þar söng kór Öldutúnssskólans I
Hafnarfirði.
En ekki hafa allir gaman af söng-
lögum og sígildri hljómsveitartón-
list. Af léttum tónlistarþáttum ber
fyrst að nefna nýjan skemmtiþátt,
sem Magnús Ingimarsson og hljóm-
sveit hans sér um. Einsöngvarar eru
Vilhjálmur Vilhjálmsson og Anna
Vilhjálmsdóttir. Þáttur þessi mun
vera I svipuðum dúr og hinir vin-
sælu þættir Ólafs Gauks og Svan-
hildar.
Þá er I ráði að Ríótríóið og Hljóm-
ar flytji hvor sinn þáttinn, en fyrri
þættir þeirra hafa þótt takast vel.
Ef'til vill verða einnig þættir með
bltlahljómsveitunum Orion og Flow-
ers.
Talsvert verður um endurtekið
efni fyrstu vikurnar I ágúst, meðan
starfsemi sjónvarpsins er að kom-
ast I réttar skorður eftir sumarleyfið.
Meðal annars verður endurtekinn
þáttur um Sigurðs Þórðarson, tón-
skáld, og leikrit Þjóðleikhússins, Jón
gamli eftir Matthlas Jóhannessen.
Valur Gíslason og Gísli Alfreðsson
leika aðalhlutverkin, en Lárus Páls-
son aukahlutverk. Var það með s(ð-
ustu hlutverkum, sem hinn ástsæli
leikari lék og eina hlutverkið, sem
hann lék I sjónvarp.
Sumt af því, sem hér hefur ver-
ið nefnt, er enn I deiglunni, svo
að vel má vera að það falli brott
og aðrir þættir komi I staðinn. Auk
þess er þetta aðeins lltið brot af
Framhald á bls. 34
29.tbi. VIKAN 11
6