Vikan - 24.10.1968, Page 4
AÐ VERÐA GAFAÐUR
Sæll, þú alvitri Póstur!
Við erum hérna tvær í
alveg hræðilegum vand-
ræðum. Þannig er mál með
vexti, að okkur langar til
að verða gáfaðar, meira að
segja fluggáfaðar.
Við vitum reyndar, að
bezta ráðið til að verða
gáfaður er að fara í skóla
og aftur skóla. En það er
einmitt vandamálið, sem
við stríðum við. Við vitum
ekki hvernig við eigum að
snúa okkur í þessu. Allir
þeir skólar, sem við vild-
um reyna að komast í eru
svo kröfuharðir, að við
uppfyllum alls ekki þau
skilyrði, sem sett eru. Við
erum svo illa gefnar, að
við komumst ekki inn í
neinn skóla til að verða
gáfaðar.
Við höfum aðeins vesælt
gagnfræðapróf, sem ekkert
gagn er í. Við komumst
því ekki í Kennó og ekki
í Verzló. Ofan á allt þetta
erum við haldnar þeim
kvilla að vera vandlátar,
t. d. viljum við alls ekki
Eara í húsmæðraskóla. Og
við erum hræddar við
sprautur og okkur geðjast
ekki að börnum, svo að
Hjúkrunarkvennaskólinn,
Ljósmæðraskólinn og
Fóstruskólinn koma ekki
til greina.
Loksins komum við að
kjarna málsins. Hann er
sá, að þú, alvitri Póstur,
segir okkur í hvaða skóla
við ættum helzt að fara, til
að verða fluggáfaðar eða
til að mynda aðeins gáf-
aðri en við erum.
Tvær illa gefnar,
sem vilja vera
gáfaðar.
Gáfur eru guffsgjöf. Þótt
þiff tækjuff próf úr öllum
skólum á landinu, væruff
þiff eftir sem áffur ná-
kvæmlega jafn heimskar
effa gáfaffar og þiff eruff.
Hins vegar getið þiff orffiff
fróffari og þroskaffri á
Iangri skólagöngu; heilinn
í ykkur verffur ögn betur
þjálfaffur en hann var. Þiff
segizt vera fráhverfar öll-
um kvenlegum fræðum og
viljiff ómögulega fara í
húsmæffraskóla effa fóstru-
skóla. Og þiff viljiff heldur
ekki vinna göfugt og róm-
antískt mannúffarstarf meff
því aff gerast hjúkrunar-
konur. (Hafið þiff ahlrei
lesiff læltnarómana; um
sætustu hjúkkuna, sem
verffur ástfangin af mynd-
arlegasta skurfflækninum,
einmitt á þeirri stundu
sem hann mundar hnífinn
og reynir aff bjarga lífi
konunnar sinnar, sem lenti
í bílslysi. Auffvitaff deyr
frúin, enda var hún miklu
eldri en hann, og síffan
giftist hetjan sætu hjúkk-
unni). Fyrst þiff eruff ekki
innréttaffar fyrir neitt af
þcssu, þá verðiff til aff
bregffa ykkur yfir á svið
karlmannsins. Hvernig
væri aff fara í Sjómanna-
skólann?
ÁST í SÍMA
Kæri Póstur!
Undanfarnar vikur hef-
ur ókunnur maður hringt
í mig næstum á hverjum
einasta degi. Eg er ógift og
bý ein í lítilli íbúð. Og það
hefur varla brugðizt, að
þegar ég ær nýkomin heim
úr vinnunni um sexleytið,
þá hringir hann. Hann
neitar að segja til nafns
síns, og ég er orðin mjög
forvitin að fá að vita hver
hann er.
í fyrstu fannst mér þetta
hinn versti dónaskapur og
ég skellti ævinlega á
manninn, þegar hann vildi
ekki segja til nafns. En í
rauninni hefur maðurinn
aldrei sýnt mér neina
ókurteisi. Hann hefur svo
sem ekkert annað gert en
spjalla við mig um daginn
og veginn og slá mér of-
urlitla gullhamra. Hann
veit hvað ég heiti, hvernig
ég lít út, hvar ég vinn og
ýmislegt fleira virðist
hann hafa grafið upp um
mig. Nú er svo komið, að
ég er farin að hafa gaman
af að tala við hann. Ég
sakna hans, ef hann hætti
allt í einu að hringja. Hann
hefur þægilegan málróm,
viðfelldinn hlátur og get-
ur verið anzi skemmtileg-
ur.
En hvernig á ég að kom-
ast að því hver hann er?
Eg hef reynt allar leiðir til
þess að veiða það upp úr
honum, en mér tekst það
ekki. Einhver sagði mér,
að ég gæti lagt tólið til
hliðar og haldið þannig
4 VIKAN
42. tbl.