Vikan


Vikan - 24.10.1968, Side 17

Vikan - 24.10.1968, Side 17
meðferðinni í fangabúðunum; — hverniq þau lýstu sér vissi hún ekki. Þegar Hugh var búinn að panta teið, fór hann að stríða konunni sinni með því að hundarnir væru ekki eins gáfaðir eins og hún vildi vera láta. Libby var mikill hunda- vinur, og Hugh hafði verið tregur til að fara á þessa hundasýningu, en gerði það samt fyrir heimilis- friðinn. í hvert sinn sem hún lét í Ijós áhuga sinn á einhverjum hundi, tautaði hann: ,,Ég get sannað það að heilinn í þessum hundum er ekki stærri en baun," eða, ,þessi hefur verið kynblandaður í marga ætt- liði, hann er taugaveiklaður." Libby virtist ekki taka eftir athugasemd- um hans þó, og nú tók hún stríðni hans með umburðarlyndis brosi. Svo fór hún að hlæja, og sagði við Donat: — Þarna sérðu hvernig mað- urinn minn er. — Það er hægt að kenna hund- um vissa hluti, elskan, sagði Hugh þrákelknislega, — en þeir hugsa ekki rökrétt, og þar af leiðandi eru þeir ekki greindir. — Ef ég má koma með athuga- semd, skaut Donat inn í, — þá er reginmunur é gáfnafari hunda, rétt eins og manna. Það eru örugglega til hundar sem eru greindir og geta hugsað rökrétt. —■ Hefur þú einhverja sönnun fyrir því? spurði Hugh. — Ég held það. Ég sá eiru sinni tík, sem var í hræðilequm vanda stödd, og ég he'd að hún hafi hugsað og framkværrt einmitt það rétta. Donat þa.i'aí' >g I.Wfði á okk- úlfahundar, af því kyni sem Pani var. Aðra hunda átti að drepa. — Hversvegna átti að drepa þá? spurði Libby. — Því ekki það? sagði Donat með daufu brosi. — Þetta var skilj- anleg ákvörðun yfirmanna í mis- kunnarlausu stríði. Þeir þurftu sér- staka varðhunda,- hinir voru ekki til neins gagns, en þurftu samt sem áður fóður. Reyndar fóru þeir með fólkið á svipaðan hátt. Jæja, þegar Antek heyrði þetta faldi hann Pani í hlöðunni. Hann gerði meira en að BUNDUR FAN6ANS SMÁSAGA EFTIR ALBERT IVIALTZ ur öll, eins og til að sjá hvort við hefðum einhvern áhuga á því að hlusta á hann. Þegar Libby sagði með ákafa: — Segðu okkur frá því, kinkaði hann kolli og brosti, á sinn feimnislega hátt og hélt áfram. Hann talaði með útlendum hreim, en enskan hans var óaðfinnanleg. — Hún hét Pani, það er pólskt nafn og þýðir madame eða frú. Þegar Þjóðverjar réðust inn í Pól- land árið 1939, bjó ég í Warsjá. Faðir minn sendi þá okkur móður mína til búgarðs, sem hann étti, um það bil þrjátíu mílum I burtu. Við sáum hann aldrei framar. Hann var kallaður í herinn og hann féll. En það er önnur saga. A búgarðinum var hús, sem við vorum vön að búa í, þegar við dvöldum þarna I fríum. Landareign- in var um tlu ekrur, og það voru hjón sem höfðu jörðina á leigu. Þau áttu tvo syni, og ég var góður vinur þeirra beggja. Annar var á mínum aldri, sautján ára, en hinn, Antek, var ári eldri. Pani hlýddi öllum á heimilinu, en hún var samt hændust að Antek. Milli þeirra Pani og Anteks var einstakt samband skilnings og innilegrar vináttu. Fram að þessu hafði Donat talað á eðlilegan hátt, en þegar hann talaði um vináttusamband vinar síns og hundsins, tendraðist Ijós I aug- um hans og röddin varð ákafari. — I desember 1939, þegar Þjóð- verjarnir vcru búnir að ná yfirtök- um í Póllandi, gáfu þeir út skipun um að allir hundar af hreinræktuðu kyni nokkurra hundategunda, skyldu látnir af höndum og fengnir þeim í hendur. Þar á meðal voru þýzkir loka hana inni, hann bjó út sér- stakan felustað, undir hlöðugólf- inu, stað sem erfitt var að finna. Hann fór út með hana á nóttunni, til að liðka hana, og læddist til hennar á daginn. — Gelti hundurinn ekki? spurði Hugh. — O, nei, ekki einu sinni þegar Antek kom inn í hlöðuna. — Flann hefur múlbundið hana? — Nei, en hann sagði henni að hún mætti ekki gelta. Hugh lyfti brúnum, en Donat brosti og gaf enga skýringu. — Um það bil viku síðar, kom þýzkur herbíll að búgarðinum. í honum voru þrír stormsveitarmenn og túlkur, kvislingur frá einu af landamærahéruðunum. Inni í bíln- um voru þrír hundar, hlekkjaðir við hliðargrindurnar. Jæja, fjölskyldan var þarna öll saman komin, og túlk- urinn, andstyggilegur, lítill hreysi- köttur, sagði við húsbóndann: — Hvar eru hundarnir ykkar? Það var Antek sem svaraði: — Við áttum að- eins einn hund, en hann dó fyrir nokkrum vikum. Þá fór hreysikött- urinn að hlæja. — Þetta virðist vera orðinn faraldur í þessari sveit, það virðist vera bráðapest í hundunum. Donat þagnaði um stund, strauk hendinni um höfuð sér og tautaði: — Maður hatar óvinina, en kvisling- urinn getur fengið mann til að loga af hatri. Jæja, hreysikötturinn sagði eitthvað á þýzku og liðþjálfinn öskraði einhverja skipun. Svo gekk liðþjálfinn til Anteks og miðaði byssu á andlit hans. Móðir Anteks rak upp hljóð og hljóp til þeirra, en einn stormsveitarmaðurinn hrinti Framhald á bls. 32. 42. tbi. VIKAN 17

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.