Vikan


Vikan - 24.10.1968, Síða 27

Vikan - 24.10.1968, Síða 27
„Eg veit svei mér ekki, hvað í veröldinni við eigum að gera við þig, strákur.“ Móðir lians segist hafa uppgötvað löngu síðar, að Brian hafi alls ekki átt sjálfur alla sök á því, hversu illa honuin gekk í skóla. Hún álítur að skólinn haí'i ekki síður átt sök á því. ,,1‘etta var rétt eftir stríðið. Skólarnir voru yfirfull- ir og erfitt að komást inn í þá. T’etta voru einkaskólar og kennararnir vísuðu hiklaust úr skóla þeim nemend- um, sem þeim geðjaðist ekki að.“ Síðan hraktist Brian úr einum skólanum í annan og hann hafði alls verið í sjö skólum, þegar hann gafst upp og hætti námi. 10. septem,ber 1950 byrjaði grannvaxihn, fölur og hrokkinhærður unglingur að vinna í verzlun fjölskyldu sinnar í Wilton í Liverpool. Hann byrjaði sem sölumaður og fékk fimm pund á viku. Strax fyrsta daginn tókst, honum að selja borð- stofuborð fyrir 12 pund. Kaupandinn var kona, sem hafði komði inn í búðina til að kaupa spegil! Það kom strax í ljós, að Brian var góður sölumaður. Og hann hafði vndi af starfinu. Hann tók einnig að fá áhuga á innréttingu verzlunarinnar og niðurröðun hús- gagnanna, gluggaútstillingum og öðru, sem að verzlun- inni laut. Faðir hans var í sjöunda himni yfir |>ví, að elzti sonur hans og erfingi skvldi hafa ákveðið að helga sig verzlun og viðskiptum, eins og forfeður hans höfðu gert. Og Bri an uppgötvaði sér til mikillar undrunar, að hann var harðánægður með þetta hlutskipti sitt. „Brian hafði alltáf góðan smekk,“ segir móðir hans. „Og hann var alinn upp í fallegu umhverfi innan um fyrstu flokks húsgögn. T>að spillti nú ekki smekk hans.“ Brian var ekki ánægður með gTuggaútslillingarnar í verzluninni. ITann byrjaði að gera tilraunir á þessu sviði. Sumar þeirra þóttu ærið djarfar. TTa-nn stillti til dæm- ist stólum út í gluggann, og lét bakið sniia að veg- farendum. IJað fannst föður lians of Inngt gengið, cn lét það afskiptalaúst. Hann var svo ánægður vfir því, að sonur hans slcvldi hafa valið sér hið eina og rétta lífsstarf, að honum þótti ekki taka því að gcra veður út af smámunum, sem stöfuðu af æsku piltsins og reynslu- levsi. Til þess að öðlast frekari reynslu, var Brian send- ur til annars fyrirtækis, sem fjölskyldan átti ekki, og látinn vinna þar í sex mánuði. Hann stóð sig frábærlega vel í þessu starfi. Þegar hann fór, var honum afhent að gjöf Parker-pennasett. (Með þessum sama penna undirritaði Paul McCartney nokkrum árum síðar fyrsta samninginn milli Brians og Bítlanna). Eftir sex mánuði fór hann aftur til Wilton og tók nú til óspilltra málanna. Hann lét innrétta verzlunina á nýtízkulegan hátt. „Ég hafði mikla ánægju af þessu. Sérstaklega naut ég þess að gera alls konar tilraunir. Eg hafði líka gaman af sölumennskunni. Þegar cg stóð í búðinni, horfði á viðskiptavinina ganga um og virða fyrir sér húsgögnin okkar og ég fann, að þeir trúðu mér og treystu — þá var ég í essinu minu.“ I desember 1952, þegar Brian var í óða önn að end- urnýja og treysta grundvöll fyrirtækisins, var hann kvaddur til að gegna herþjónustu. Hann hugsaði með skelfingu til þess að þurfa nú að fara í herinn. „Eg hafði verið með eindæmum lélegur nemandi í skóla,“ segir hann.„ Og ég var sannfærður um, að ég mundi verða aumasti og versti hermaður í víðri veröld.“ Dvöl Brians í hernum varð stutt. Hann reyndist lélegur hermaður, eins og hann hafði sjálfur óttast og var leystur undan herþjónustu eftir eitt ár — af heilsu- farsástæðum. Hann hraðaði sér aftur til Liverpool og byrjaði strax að vinna af fullum krafti við fyrirtæki föður síns. t verzluninni voru til sölu bæði húsgögn og hljómplötur, og Brian tók nú að leggja meiri rækt við hljómplötu- sölun en áður hafði verið gert. Hann hafði alltaf haft mikinn álniga á tónlist, fyrst og fremst sígildri tónlist. Tun sama leyti eignaðist hann nýtt álmgamál, leik- list. TTann hafði reyndar haft áhuga á henni, þegar hann var í skóla og einu sinni orðið svo frægur að fá að leika i skólaleikriti. Hann sótti nú leikhús næstum á hverju kvöldi og smátt og smátt varð hann staðráð- inn í að gerast leikari. Hann þrevtti inntökupróf í hinn fræga leikskóla, Royal Academy of Dramatic Art, og stóðst það með ágætum. Faðir hans var að sjálfsögðu lítt hrifinn af jiessu nýjasta uppátæki sonarins. Áður hafði Brian viljað verða tízkuteiknari, en faðir hans hafði getað talið hanri af því. Leiklist var af sama toga spunnin i hans augum. Störf af þessu tagi voru ekki við hæfi „heil- brigðra“ karlmanna að hans dómi. En hann fékk ekki ráðið þessu og varð að láta sér það lynda. Brian dvaldist í London í leikskólanuin alla rúmhelga daga, en fór heim til Liverpool um helgar. I hvert skipti sem hann kvaddi föður sinn, spurði gamli maðurinn að hinu sama: hvort hann væri ekki búinn að fá nóg af þessu leikstandi; hvort hann vildi ekki vera kyrr og taka aftur til við kaupsýsluna. Að loknu sumarlevfi 1957 lagði garnli maðurinn þessar sömu spurningar fvrir son sinn. Og að þessu sinni svaraði Brian játandi. Hann ætlaði að vera kyrr í Liverpool. „Mér gekk vel í leikskólanum,“ segir hann. „Kenn- arar mínir sögðu, að ég hefði hæfileika og höfðu trú á, að mér mundi takast að verða leikari. En ég kunni ekki við þetta margrómaða leikhúsandrúmsloft. Það átti ekki allskostar við skapgerð mína. Mér þóttu leikarar leiðinlegir í umgengni til lengdar. Framkoma margra þeirra var tóm uppgerð, sýndarmennska og fals. Ég komast að þeirri niðurstöðu, að líklega ætti kaupsýslan bezt við mig.“ Faðir hans ákvað að færa út kvíarnar og stofna nýja verzlun á bezta stað í Liverpool. Það var einmitt þetta, sem freistaði Brians. Hann veitti hljómplötudeild verzl- unarinnar forstöðu. Hann rak hana af miklum dugnaði 42. tbi. yiKAN 27

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.