Vikan


Vikan - 14.11.1968, Blaðsíða 32

Vikan - 14.11.1968, Blaðsíða 32
Vanti yður tækifærisgjöf þá munið Ronson. Ronson kveikjarar fyrir dömur og herra, fjölbreyttara úrval en nokkru sinni fyrr, einnig úrval af borðkveikjurum. Einkaumboð: I. GUÐMUNDSSON & CO. HF. Hverfisgata 89, Reykjavik. Hrútsmerkið (21. marz — 20. apríl): Ef þú kærir þig um geturðu fengið tímafrekt en ábatasamt aukasíarf. Vertu ekki lengi að ákveða þig. Þú ert í sambandi við mann, sem á eftir að vcita þér mikilvægar upplýsingar. Vogarmerkið (24. september — 23. október): Allt bcndir til þess að þú eigir erfiðara með að kcma verkum þínum af en undanfarið og einnig cö þú verðir fyrir óvæntum erfiðleikum heima- .y ir. Einbeitni og natni bjargar nokkru. m Nautsmerkið (21. apríl — 21. maí): Vertu þolinmóður, þótt framkvæmdir þínar tefjist nokkuð. Það er eins og flestir séu á móti þér svo þú verður að höndla upp á eigin ábyrgð. Eyddu kvöldunum til bókalesturs. Leikhúsferð á laugard. <§p Drekamerkið (24. október — 22. nóvember): Jafnvægi einkennir geroir þínar þessa viku. Þá átt ckki von á neinum stóratburðum, en þó færðu fréttir sem þér þykir nokkur matur í. Vertu heima á fimmtudagskvöld. Tvíburamerkið (22. maí — 21. júní): Þú verSur var við óvæntan hlýhug frá vissum ætt- ingja. Umhverfi þitt hefur ekki upp á mikla til- breytni að bjóða. Einbeittu þér að starfi þínu. Gættu vel aö ölJum öryggisreglum. Bogmannsmerkið (23. nóvember — 21. des.): Nágranni þinn og félagi gera þig að trúnaðarmanni síunm. Skipulagsgáfur þínar ættu að geta notið s.'n vel. Veðurfar skiptir þig afar miklu og mun senni- lega valda töfum. Á Krabbamerkið (22. júní — 23. júlf): Þú færð góð tækifæri til að koma þér vel fyrir. Þú hefur mikið að gera, snúningar kringum ákveðna hluti verða þér til mikilla tafa. Haltu kyrru fyrir ef þú átt þess kost. £ Steingeitarmerkið (22. desember — 20. janúar): Hugur þinn leitar nýjunga. Þú kaupir þér allmik- ið safn bóka, sem verða þér að nokkru liði. Þú færð fréttir af vini þínum sem verka ekki vel á þig. Þú átt við vanda að etja. Ljónsmerkið (24. júlí — 23. ágúst): Sökum utanaðkomandi áhrifa verðurðu að leggja ýmis mál í annarra hendur. Nágranni þinn veldur þér óþægindum með hnýsni sinni. Þú gerir góð við- skipti sem öðlast þó ekki fullt gildi strax. Vatnsberamerkið (21. janúar — 19. febrúar): Vikan verður hagstæð tii ýmissa framkvæmda, en þú ættir að liafa reynda menn með í ráðum. Eyddu frístundunum £ faðmi fjöiskyldunnar. Þér berst lit- il g:öf, langt að komin. Meyiarmerkið (24. ágúst — 23. september): Vertu varkár og skiptu þér ekki að einkamálum annarra. Þér er óhætt að treysta á gæfuna og leggja í nokkra tvísýnu. Reyndu að vera stjórn- samur heima fyrir. Þú færð langþráð bréf. Fiskamerkið (20. febrúar — 20. marz): Gættu þess vel að halda fram rétti þínum á vinnu- stað svo ekki verði á þig hallað. Láttu ekkert fara framhjá þér — þú virðist standa í harðri samkeppni. Vertu hress, hvað sem á dynur.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.