Vikan


Vikan - 14.11.1968, Blaðsíða 11

Vikan - 14.11.1968, Blaðsíða 11
þykir að mörgu leyti dæmigerð drekakona. Drekamaðurinn leggur að vísu mikið uppúr að, vera glæsilegur á karlmannlegan hátt, en telur hinsvegar að jafnaði fyrir neð- an sína virðingu að hirða mjög mikið um klæðaburð sinn. Þetta gerir hann stundum hálfdrasl- aralegan útlits. SAMKOMULAGS- MÖGULEIKAR Samkomulagsmöguleikum sporð- drekans og sjö fyrstu merkja dýrahringsins hefur þegar verið lýst. Sporðdrekinn og bogmaðurinn eiga ekki sérstaklega vel saman. Þó eru báðir mikið gefnir fyrir frjálsræði og ævintýri. Sporðdreki og steinbukkur eru öllu betra par. Báðir hafa góða frásagnargáfu. Þeir geta náð langt í félagi, svo fremi þeir deili ekki um völd og áhrif. Hugmyndir og smekkur sporð- dreka og vatnsbera fara ógjarna saman. Báðir eru næmir fyrir ögrunum. Sporðdreki og fiskur skilja hvorn annan orðalaust. Ástríður þeirra eru svipaðar, þótt þeir' upplifi þær með ólíku móti. SKORPÍÓNSÁSTIR Sporðdrekinn drottnar í ást og dauða og nótt. Það kemur glögg- lega fram hjá dýrinu, sem merk- ið er kennt við. Ástir þess fara fram í einskonar dansi, sem jafn- framt er eðlun. Að þessum mergj- aða brúðardansi loknum dregur kvendýrið karldýrið með sér niðrí dimma jarðholu og étur það þar með húð og hári. Þótt kvenfólk sem fætt er í merkinu gangi tæplega svona langt, er því þó ekki að neita að ástir drekafólks eru yfirleitt ekki neinir mömmukossar. Dreka- mennið er maka sínum oft óræð- ur leyndardómur; það sækir á hann með ástríðum sem hann skilur varla. Það er eigingjarnt í samlífi, ástarhiti þess getur í skjótri svipan breytzt í bræði. í ástaleiknum er það gjarnt á ofsa- fengin atlot eins og bit og klór. Ástin er í augum þess lífsstríðið sjálft, leitin að því eina og al- gera, því sem er handan tak- tnarka alljrar mannlegrar reynslu og þekkingar. Slík ást hefur heldur lítið með skynsemi að gera, eins og gef- ur að skilja. Þar er ekki um að ræða hik eða þróun. Ástin er al- ger þegar við fyrstu sýn og allt verður fyrir henni að víkja. Jafnframt því sem drekinn krefst algerra yfirráða yfir þeim elsk- aða hefur hann hann upp til skýjanna og gerir að goði, sem ekkert getur komið í staðinn fyr- ir. Allt annað verður hégómi í augum drekans. Hann lifir fang- inn í neti ástríðu sinnar eins og skuggar dauðra í undirheimum, hvort heldur hún leiðir hann til góðs eða ills, til lífs eða dauða. DOSTÓÉVSKÍ OG CARMEN Um drekakarlinn er það ann- ars sérstaklega að segja að hann leggur öllu meiri áherzlu á að vera karlmaður en maður. í hon- um kemur karlmaðurinn, karl- dýrið, fram í sinni hreinustu og skýrustu mynd, með kostum og göllum. Hann vill leggja konuna undir sig eins og hvert annað herfang og brjóta hana til skil- yrðislausrar hlýðni. Ástin gagntekur hann í blóð og merg. Konan er honum stöðug gáta; hann leitar í henni að opin- berun lífsins, kjarna leyndar- dóms eilífðarinnar. Ástin er hon- um í senn eggjandi og skelfileg gáta líkt og dauðinn. Það segir sig því sjálft að frá upphafi er drekakarlinn mjög upp á kvenfólk kominn. í bernsku er hann nátengdur móð- ur sinni, og á fullorðinsárum leið- ir það e. t. v. til tilfinningaklofn- ings milli hennar og eiginkon- unnar. Stundum reynir hann líka að varpa af sér oki kven- seminnar með því að halda kon- um frá sér að meira eða minna leyti. Af þessu getur leitt hörku- stríð milli kynjanna, sem oft fær á sig í senn sadískan og masokk- ískan blæ. Mikil ást, mikil þján- ing, sagði Dostóévský. En sporð- drekinn er líka gæddui' þeim eiginleika að njóta þjáningar sinnar. „Þeim mun óhamingju- samari sem við vorum, þeim mun nátengdari urðum við hvort öðru,“ sagði Dostóévský um sig og Maríu Demitríevnu. Sumir drekakarlar lenda líka í þeii’ri klemmu sem kalla má baráttu holds og anda. Þetta leið- ir alloft til öfga í báðar áttir. Þeir eru líka með afbrýðisamara móti, tortryggnis og deilugjarn- ir. Þetta getur gert hjónaband þeirra að hreinu helvíti, en nautn þeirra af að plaga sjálfa sig og aðra kemur hinsvegar oft í veg fyrir að þeir leiti skilnaðar. Drekakarlar með sterka skap- gerð, og þeir eru sem betur fer allmargir, sleppa oft við flestar þessara hrellinga með því að beizla öfl sálar sinnar og göfga hvatirnar. „Varaðu þig þegar ég elska!“ sagði Carmen við Don José. Þetta mætti vera kjörorð kvenna, sem fæddar eru í sporðdrekan- um. Þær eru allra kvenna kven- legastar í kynferðislegri merk- ingu orðsins, glæsilegar og eró- tískar. Engar eru snjallari að tæla karlmenn en þær, töfra þá og hafa að fíflum. Þær eru sjálfs- elskufullar og nosturssamar og hafa kvalsýkikennda ánægju af að hrjá þá mannaumingja, sem í net þeirra falla, en þeir eru ófáir. Skyldleiki þeirra og kven- dýrs sporðdrekans, sem drepur maka sinn og étur þegar hann Framhald á bls. 30. HOOVER KEYMATIC DE LUX 91 Nýjasta gerS, sjálfvirk þvottavél með 16 þvottaaðferðum HefmsliekSt! vlrumerki Hoover Hoover Hoover Hoover Hoover Hoover Hoover Hoover Hoover Hoover Hoover þvottavélar kæliskópar ryksugur bónvélar rafmagnsofnar straujárn uppþvottavélar hárþurrkur hrærivélar teppaburstar eldavélahimnar S gerSir 5 gerðir 8 gerSir 2 gerðir 3 gerðir 3 gerSir Hoover vörurnar fást i Hoover-kjallaranum, Austurstræti 17, Reykjavik, sími 14376. Einnig víða í verzlunum úti á landi. Varahluta- og viðgerðaþjónusta að Hverfisgötu 72, sími 20670. Einkaumboð: MAGNÚS KJARAN Umboðs- & heildverzlun 45. tbi. vnCAN 11

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.